Óánægja með stýrivaxtahækkun Seðlabankans

Stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í gær hefur verið harð­lega gagn­rýnd af aðilum vinnu­mark­að­ar­ins, bæði af verka­lýðs­fé­lög­unum og Samtökum atvinnu­lífs­ins. Aðal­hag­fræð­ingur Kviku segir ekki ólík­legt að frek­ari vaxta­hækk­anir séu í kort­unum.

Stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í gær hafa vakið furðu og verið harð­lega gagn­rýnd af aðilum vinnu­mark­að­ar­ins. Í yfir­lýs­ingu mið­stjórnar ASÍ í gær segir að hún muni ekki auð­velda að sátt náist í kom­andi kjara­við­ræðum og fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins sagði að hún hefði ekki jákvæð áhrif á við­ræð­urnar. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans ákvað að hækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig en í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar sagði að aukin verð­bólga og hærri verð­bólgu­vænt­ingar hefðu lækkað raun­vexti Seðla­bank­ans umfram það sem æski­legt væri.

Óánægja frá báðum hliðum

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir hækk­an­irnar vera kaldar kveðjur inn í kjara­við­ræður vetr­ar­ins. Kröfur VR hafa m.a. verið að vextir lækki og böndum verði komið á verð­trygg­ing­una. „Þetta er algjör­lega á skjön við þær leiðir sem við viljum fara og er mjög eld­fimt útspil inn í mjög við­kvæmt ástand á vinnu­mark­að­inum. Þetta sýnir líka og und­ir­strikar að það þarf að fara í algjöra og gagn­gera end­ur­skoðun á pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans og þeim sem henni stjórna. Þetta eru ískaldar kveðjur og mikil von­brigði,“ sagði Ragnar Þór í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmd­ar­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir hækkun vaxta ótíma­bæra: „Við hefðum kosið að Seðla­bank­inn hefði haldið stýri­vöxtum óbreyttum en verið með í stað­inn sterk varn­að­ar­orð varð­andi kom­andi kjara­samn­inga og ekki síður varð­andi þró­un­ina á vinnu­mark­aði“.

Halldór telur hækk­un­ina ekki hafa jákvæð áhrif á kom­andi Kjara­við­ræður: „Seðla­bank­inn seg­ist vera að bregð­ast við hækk­andi verð­bólgu­vænt­ingum en gerir of lítið úr óvissu á vinnu­mark­aði. Það er einnig að renna upp fyrir sífellt fleiri Íslend­ingum að hag­kerfið er að kólna hratt. Benda má á nýlegar svipt­ingar í flug­heim­inum. Seðla­bank­inn lítur hins vegar í bak­sýn­is­speg­il­inn og er að bregð­ast við meiri hag­vexti á fyrri hluta árs­ins en reiknað var með,“ segir Halldór í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Líklegt að fleiri vaxtahækkanir fylgi

Aðal­hag­fræð­ingur Kviku fjár­fest­inga­banka, Kristrún Mjöll Frosta­dóttir, segir ekki ólík­legt að fleiri vaxta­hækk­anir fylgi í kjöl­farið á vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í gær. Kristrún segir það hafa komið á óvart að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands skuli hafa hækkað stýri­vexti bank­ans í stað þess að hinkra og sjá hvort verð­bólgu­vænt­ingar færu að gefa sig. Frá þessu er greint í Mark­að­inum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í dag.

Seðla­bank­inn hefur nýverið létt á inn­flæð­is­höft­unum sem gæti stutt við krón­una og þar með ýtt vænt­ing­unum aðeins niður á við. „Á móti kemur að bank­inn er ef til vill að falla á tíma með vaxta­hækk­anir þar sem verð­bólgu­horfur fara nú hratt versn­andi,“ segir hún í sam­tali við Mark­að­inn.

„Ein af for­send­unum fyrir því var minnk­andi vaxta­munur og því er áhuga­vert að bank­inn stígi nú strax það skref að hækka vexti. Það mætti þó segja að bank­inn sé að ein­hverju leyti á eftir kúrf­unni þegar kemur að vaxta­hækk­unum. Raun­vaxta­stig er orðið lágt og fer lækk­andi með auk­inni verð­bólgu, auk þess sem spennan í hag­kerf­inu mælist meiri en þeir upp­runa­lega héldu. Bankinn á að ein­hverju leyti að vera fram­sýnn og hafa þegar brugð­ist við því að verð­bólgan sé að fara upp í rúm­lega þrjú pró­sent í þessum mán­uði,“ nefnir Kristrún

Aðspurð segir Kristrún ekki ólík­legt að fleiri vaxta­hækk­anir fylgi í kjöl­farið, hvort sem það ger­ist í næsta mán­uði eða eftir ára­mót. „Mark­að­ur­inn er svart­sýnn sem sýnir sig í því að hann hefur þegar verð­lagt rúm­lega hund­rað punkta hækkun á vöxtum á næsta eina og hálfa árinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár