Seðlabankinn hækkar vexti

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentur.

Seðlabanki Íslands.
Seðla­banki Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 4,5 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Samkvæmt Seðla­bank­anum var hag­vöxtur á síð­asta ári og á fyrri hluta þessa árs meiri en fyrri áætl­anir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vís­bend­ingar um hæg­ari vöxt á seinni hluta árs­ins er spáð 4,4 pró­sent hag­vexti á árinu öllu í nóv­em­ber­hefti Pen­inga­mála. Það er tæp­lega 1 pró­sentu meiri vöxtur en bank­inn spáði í ágúst. Gert er ráð fyrir að hægja muni á hag­vexti á næstu miss­erum og að spenna hverfi úr þjóð­ar­bú­skapnum.

Í til­kynn­ing­unni kemur jafn­framt fram að verð­bólga hafi verið 2,8 pró­sent í októ­ber. Munurinn milli mæli­kvarða á verð­bólgu með og án hús­næðis hafi ekki verið álíka lít­ill í rúm fjögur ár. Áfram dragi úr árs­hækkun hús­næð­is­verðs en á móti vegur að inn­flutn­ings­verð hafi hækkað umtals­vert að und­an­förnu. Að hluta end­ur­spegli það hækkun olíu­verðs á alþjóða­mark­aði en gengi krón­unnar hafi einnig lækkað frá því í ágúst.

„Horfur eru á að verð­bólga haldi áfram að aukast og verði nokkuð yfir mark­miði á næsta ári. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað und­an­farið og eru nú yfir mark­miði á alla mæli­kvarða. Verð­bólgu­horfur hafa því versnað en á móti vega horfur á að hraðar dragi úr vexti efna­hags­um­svifa en áður var talið.

Aukin verð­bólga og hærri verð­bólgu­vænt­ingar síð­ustu mán­uði hafa lækkað raun­vexti Seðla­bank­ans umfram það sem æski­legt er í ljósi núver­andi efna­hags­á­stands og -horfa. Því er nauð­syn­legt að hækka vexti bank­ans nú.

Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili minni spennu í þjóð­ar­bú­skapnum, launa­á­kvarð­ana og þró­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.

Pen­inga­stefnu­nefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verð­bólgu við mark­mið til lengri tíma litið. Haldi verð­bólgu­vænt­ingar áfram að hækka og fest­ist í sessi umfram mark­mið mun það kalla á harð­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar. Aðrar ákvarð­anir, einkum á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum, hafa þá áhrif á hversu mik­ill fórn­ar­kostn­aður verður í lægra atvinnustigi,“ segir í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans.

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán 6,25%
  2. Lán gegn veði í verð­bréfum 5,25%
  3. Innlán bundin í 7 daga 4,50%
  4. Við­skipta­reikn­ingar 4,25%
  5. Bindi­skyldar inn­stæður, með­al­tals­upp­fyllt 4,25%
  6. Bindi­skyldar inn­stæður, föst bindi­skylda 0,00%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár