Lagt til að að kröfugerð SGS verði hluti af stefnu Sósíalistaflokksins

Þann 19. jan­úar næst­kom­andi verður hald­inn félags­fundur Sós­í­alista­flokks Íslands. Á dag­skrá fund­ar­ins er til­laga um að kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins, gagn­vart stjórn­völdum í tengslum við kjara­samn­inga, verði hluti af stefnu Sós­í­alista­flokks­ins.

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi og formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.
Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Mynd: Skjáskot: RÚV

Tillaga verður lögð fram á félags­fundi Sós­í­alista­flokks Íslands um að kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins, gagn­vart sjórn­völdum í tengslum við kjara­samn­inga, verði hluti af stefnu Sósísa­lista­flokks­ins. Flokk­ur­inn myndi þá taka upp stefnu og kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar gagn­vart stjórn­völdum. Fund­ur­inn verður hald­inn 19. jan­úar næst­kom­andi í Dósa­verk­smiðj­unni. Á dag­skrá fund­ar­ins eru umræður um upp­bygg­ingu flokks­ins, stefnu hans, stöðu, hlut­verk og fram­tíð­ar­á­form.

Allir félagar í Sós­í­alista­flokknum eru hvattir til að mæta og taka þátt í mótun flokks­ins á félags­fund­inum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk 6,4 pró­sent atkvæða í Reykja­vík og einn borg­ar­full­trúa í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. [adspot]

Kröfugerð Starfsgreinasambandsins

[links]Kröfu­gerð SGS var sam­þykkt á fundi sam­bands­ins þann 10. októ­ber 2018. Í kröfu­gerð­inni má finna kröfur sam­bands­ins varð­andi skatt­kerfið, hús­næð­is­mál, brotta­starf­semi á vinnu­mark­aði ásamt fleiru. Í kröfu­gerð­inni segir að þær launa­hækk­anir sem samið hefur verið um síð­ustu ár hafi skilað sér mjög mis­jafn­lega til launa­fólks á Íslandi.

„Dregið hefur mjög úr jöfn­un­ar­á­hrifum skatta- og bóta­kerf­is­ins og hús­næð­is­kostn­aður hefur rokið upp úr öllu valdi. Umræddar breyt­ingar hafa að öllu leyti bitnað með meiri þunga á lág­launa­fólki en öðrum. Það er því ský­laus krafa félags­manna innan aðild­ar­fé­laga Starfs­greina­sam­bands Íslands að stjórn­völd axli ábyrgð á bættum kjörum með end­ur­skoðun skatta- og bóta­kerf­is­ins og stór­átaki í hús­næð­is­málum.“ segir í kröfu­gerð­inni. Jafn­framt kemur fram að tugir þús­unda félags­manna hafi tekið þátt í mótun kröfu­gerð­ar­innar og að það sé sam­dóma álit þeirr að „spjótin bein­ist að stjórn­völdum í kom­andi kjara­við­ræðum.

Starfs­greina­sam­bandið er fjöl­menn­asta lands­sam­band verka­fólks á Íslandi og stærsta sam­bandið innan ASÍ, með sam­tals um 57.000 félags­menn. Starfs­greina­sam­band Íslands (SGS) var stofnað 13. októ­ber árið 2000 við sam­runa Verka­manna­sam­bands Íslands, , Þjón­ustu­sam­bands Íslands og Lands­sam­bands iðn­verka­fólks frá 1973. Stofn­fé­lög Starfs­greina­sam­bands­ins voru 50 að tölu en í dag eru aðild­ar­fé­lögin 19 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár