Krefjast 425 þúsund króna lágmarkslauna og víðtækra kerfisbreytinga

Starfs­greina­sam­bandið hefur sam­þykkt kröfu­gerð fyrir kom­andi kjara­við­ræður, bæði gagn­vart atvinnu­rek­endum og stjórn­völdum.

Starfs­greina­sam­bandið hefur sent frá sér kröfu­gerð fyrir kom­andi kjara­við­ræður og er í henni gerð krafa um 425 þús­und króna lág­marks­laun og víð­tækar kerf­is­breyt­ingar, bæði á vinnu­um­hverfi launa­fólks og skatta­stefnu stjórn­valda.

Kröfu­gerðin, sem sam­þykkt var á fundi samn­inga­nefndar í dag, er tví­þætt og bein­ist að stjórn­völdum og Samtökum atvinnu­lífs­ins.

Kjara­samn­ingar renna út úm ára­mót. Aðlild­ar­fé­lög eru Efling-stétt­ar­fé­lag, Vlf. Akraness, Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands, Vlf. Snæ­fell­inga, Vlf. Vest­firð­inga, Vlsfél. Bol­ung­ar­víkur, Stétt­ar­fé­lagið Samstaða, Aldan stétt­ar­fé­lag, Eining-Iðja, Framsýn stétt­ar­fé­lag, Vlf. Þórs­hafnar, Afl-Starfs­greina­fé­lag, Vlf. Suð­ur­lands, Báran stétt­ar­fé­lag, Drífandi stétt­ar­fé­lag, Vfl. Grinda­víkur, Vlsfél. Kefla­víkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sand­gerðis og Vlf. Hlíf.

Í kröfu­gerð­inni gagn­vart SA kemur meðal ann­ars fram:

„Lág­marks­laun verði 425.000 krónur í lok samn­ings­tím­ans að því gefnu að ekki komi til umtals­verðra skatt­kerf­is­breyt­inga, þannig að sköttum verði létt af lægstu launum og lægri milli­launum.

Launa­taflan verði end­ur­skoðuð og ein­földuð veru­lega og skil­greint sé hund­raðs­hlut­fall á milli flokka og þrepa. Fjöldi þrepa verði auk­inn þannig að starfs­ald­urs­þrep mið­ist við eins árs, 3ja ára, 7 ára og 10 ára þrep.

Ung­menna­laun yfir 18 ára aldri verði afnumin en þess í stað mið­ist grunn­laun við 18 ára aldur. Ábyrgð og álag verði metið til launa með skil­greindu hund­raðs­hluta­á­lagi. Með ábyrgð og álagi er meðal ann­ars átt við þjálfun nýrra starfs­manna, álag sem fylgir mann­eklu á vinnu­stað, álag vegna til­finn­inga­vinnu, ábyrgð á öryggi við­skipta­vina, far­þega og vinnu­fé­laga.

Álag fyrir vakta­vinnu á tíma­bil­inu frá mið­nætti til kl. 8 skal vera hærra. Orlofs- og des­em­ber­upp­bætur taki sér­stökum hækk­unum. 1.maí verði skil­greindur sem stór­há­tíð­ar­dagur,“ segir í kröfu­gerð­inni. 

Í kröfu­gerð­inni gagn­vart stjórn­völdum er meðal ann­ars gerð krafa um hækkun á fjár­magnstekju­skatti og tvö­földun á per­sónu­af­slætti. „Lægstu laun verði skatt­frjáls með tvö­földun per­sónu­af­sláttar, sem verði síðan stig­lækk­andi með hærri tekjum, þannig að lækkun skatta á lág- og milli­tekju­hópa verði m.a. fjár­mögnuð með hærra skatta­fram­lagi þeirra tekju­hæstu. Álagning tekju­skatt­kerf­is­ins á lægri og hærri tekju­hópa verði þar með lík­ari því sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. Sá per­sónu­af­sláttur sem um semst þarf að fylgja launa­þróun þannig að ekki dragi jafnt og þétt úr tekju­jöfn­un­ar­á­hrifum skatta- og bóta­kerf­is­ins eins og varð á síð­ustu ára­tugum,“ segir meðal ann­ars í kröfu­gerð­inni.

Lesa má kröfu­gerð­ina gag­vart stjórn­völdum hér, og kröfu­gerð­ina gagn­vart SA hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár