Kosið um sameiningu SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Kosið verður um sam­ein­ingu SFR og Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar í dag. Ef af sam­ein­ing­unni verður þá verður félagið þriðja stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins með 10.300 félags­menn.

Kosning um sam­ein­ingu SFR og Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar hefst á hádegi í dag. Verði sam­ein­ingin sam­þykkt þá verða félags­menn sam­ein­aðs félags 10.300 tals­ins, sem er nærri helm­ingur félags­manna BSRB og þriðja stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

SFR og Starfs­manna­fé­lag Reykja­vík­ur­borgar eru langstærstu félögin innan BSRB en BSRB eru heild­ar­sam­tök stétt­ar­fé­laga starfs­manna í almanna­þjón­ustu. Fyrr á árum höfðu félögin aug­ljósa aðgrein­ingu, SFR, stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu, var félag rík­is­starfs­manna og samdi við ríkið en Starfs­manna­fé­lag Reykja­vík­ur­borgar var félag borg­ar­starfs­manna og samdi við borg­ina. Skipt­ingin hefur riðl­ast nokkuð, m.a. vegna færslu verk­efna frá ríki til sveit­ar­fé­laga og stofn­unar opin­berra hluta­fé­laga um rekstur opin­berra stofn­ana. Nú gera félögin mis­mun­andi samn­inga við sömu við­semj­endur. Bæði félögin eru blönduð félög, með ófag­lærða og háskóla­menntað fólk og allt þar á milli.

Formenn félaganna tala fyrir sameiningu

Formenn félag­anna tala ákveðið fyrir sam­ein­ingu en þeir telja að sam­ein­ingin býður upp á hag­kvæmni í rekstri en félögin eru nú þegar með skrif­stofu á sömu hæð í BSRB hús­inu. Ásamt því hafa félögin átt í marg­þættu sam­starfi í rúm 20 ár og að sögn for­manna er það ástæðan fyrir því að umræður hófust um sam­ein­ingu. Sam­starfið felst meðal ann­ars í sam­eig­in­legri þjálfun trún­að­ar­manna, nám­skeiða­haldi og síð­ast sam­ein­uðu félögin félags­blöðin sín í eitt.

Árni Stefán Jónsson, for­maður SFR, segir að sam­ein­ing geti verið liður í því að styrkja þau í kjara­bar­áttu og verja rétt­indi félags­manna. Hann segir félög sem eru með í kringum 5.000 félaga vera þokka­lega sterk en með sam­ein­ingu verði þau mun öfl­ugri. „Það hefur sýnt sig að gott er að hafa fjöld­ann á bak við sig til að halda hlutum gang­andi,“ segir Garðar Hilm­ars­son, for­maður Starfs­manna­fé­lags­ins í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Ef af sam­ein­ing­unni verður þá verða opin­berir starfs­menn komnir með þriðja stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins. Samkvæmt for­mönn­unum hafa áformin verið kynnt á fjölda funda og á heima­síðu félag­anna. Rafræn atkvæða­greiðsla hefst síðan á hádegi í dag og lýkur á hádegi nk. föstu­dag.

Skiptar skoðanir um sameininguna

Árni Stefán segir að þær kann­anir sem gerðar hafa verið benda til að mik­ill meiri félags­manna styðji sam­ein­ing­una. Efa­semd­araddir hafa þó látið í sér heyra innan raða beggja félag­ana en þar á meðal er vara­for­maður Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar Ingunn H. Þor­láks­dóttir. Ingunn segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að henni hugn­ast þessi sam­ein­ingu. Hún telur að ekki sé mik­ill spenn­ingur fyrir mál­inu í félag­inu og ótt­ast að lítil þátt­taka verði í atkvæða­greiðsl­unni.

Ingunni finnst félagið verða of stórt og of dreift um allt land, hún telur að sam­einað félag yrði of mikið bákn innan BSRB. Starfs­manna­fé­lögin á Sel­tjarn­ar­nesi og Akranesi sam­ein­uð­ust Starfs­manna­fé­lagi Reykja­víkur fyrir nokkrum árum. Telur Ingunn að það hefði verið betra fyrir hags­muni félags­manna að leita eftir sam­ein­ingu við starfs­manna­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í nágrenn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár