Efling segir umfjöllun í Fréttablaðinu í dag hafa verið pantaða

Formaður Eflingar segir að það sé „stór­feng­legt að verða vitni að sam­trygg­ingu yfir­stétt­ar­innar gegn hags­munum lág­launa­fólks.“ Efling segir að Samtök atvinnu­lífs­ins og Reykja­vík­ur­borg séu gengin í eina sæng.

Efling segir að umfjöllun Mark­að­ar­ins, fylgi­rits Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, um afleið­ingar þess ef kröfur stétt­ar­fé­lags­ins í deilu þess við Reykja­vík­ur­borg, hafa verið pant­aða. Þeim full­yrð­ingum sem birt­ast í pistli eftir Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóra Samtaka Atvinnu­lífs­ins, í sama blaði um sömu mál er auk þess vísað á bug. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir í yfir­lýs­ingu að Samtök atvinnu­lífs­ins og „gervi-félags­hyggja Reykja­vík­ur­borgar“ séu gengin í eina sæng. Það sé „stór­feng­legt að verða vitni að sam­trygg­ingu yfir­stétt­ar­innar gegn hags­munum lág­launa­fólks.“

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins í dag er sagt að launa­munur á milli ófag­lærðs og háskóla­mennt­aðs starfs­fólks á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar mun minnka veru­lega og verða í sumum til­fellum nær eng­inn ef fram settar leið­rétt­ing­ar­kröfur Eflingar fyrir hönd sinna félags­manna verði sam­þykktar. Þetta hafi komið fram í útreikn­ingum sem Samtök atvinnu­lífs­ins hefðu unnið að beiðni Mark­að­ar­ins í ljós.

Annars staðar í Mark­aðnum birt­ist skoð­ana­grein eftir Halldór Benjamín þar sem kröfur Eflingar eru kall­aðar „hnit­miðuð atlaga að lífs­kjörum almenn­ings.“

Hafna afskiptum atvinnurekenda

Í til­kynn­ingu sem Efling sendi frá sér síð­degis í dag hafnar félagið alfarið afskiptum Samtaka atvinnu­lífs­ins af kjara­deilu félags­ins við Reykja­vík­ur­borg vegna Efl­ing­ar­fé­laga sem starfa á lægstu launum hjá borg­inni. „Félags­menn Eflingar hjá borg­inni fara með sjálf­stætt umboð til við­ræðna við sinn atvinnu­rek­anda sem varið er af lögum og stjórn­ar­skrá. Efling mót­mælir því að ótengdir aðilar hlut­ist til um samn­ings­rétt þeirra.“

[adspot]Að mati Eflingar felur sú kjara­leið­rétt­ing sem félagið er að fara fram á fyrir lág­launa­fólk í borg­inni í sér stig­lækk­andi hækk­anir mán­að­ar­launa á bil­inu 22 til 52 þús­und á mán­uði, mest fyrir hina lægst laun­uðu og minnst fyrir hærra laun­aða á launa­bili Eflingar. Kostn­að­ur­inn rúmist vel innan rekstr­ar­af­gangs borg­ar­innar á samn­ings­tím­anum og myndi hækka heild­ar­launa­kostnað hennar um á bil­inu 0,39-1,87 pró­sent. „Það til­boð sem Efling hefur lagt til við borg­ina er í fullu sam­ræmi við hug­mynda­fræði kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði sem und­ir­rit­aðir voru í apríl 2019, en þar var leit­ast við að nýta fyr­ir­liggj­andi svig­rúm til hækk­unar lægstu launa umfram önnur laun.“

Kallar fullyrðingar hræðsluáróður

Sólveig Anna segir það vera stór­feng­legt að verða vitni að sam­trygg­ingu yfir­stétt­ar­innar gegn hags­munum lág­launa­fólks, þar sem mark­aðs­rétt­trún­aður Samtaka atvinnu­lífs­ins og gervi-félags­hyggja Reykja­vík­ur­borgar gangi í eina sæng. „Ég hef fréttir fyrir full­trúa þessa banda­lags: Það er mik­ill mis­skiln­ingur að kjara­samn­ingar Eflingar á almennum vinnu­mark­aði í apríl 2019 hafi afnumið samn­ings­rétt lág­launa­fólks hjá sveit­ar­fé­lögum. Við ræddum um þá samn­ing­anna vorið 2019 sem vopna­hléslínu. Baráttu okkar fyrir bættum kjörum félags­manna lýkur ekki fyrr en þeir geta lifað mann­sæm­andi lífi af launum sínum.“

[links]Efling hafnar einnig því sem félagið kallar vill­andi mál­flutn­ingi í „pant­aðri umfjöllun og pistli fram­kvæmda­stjóra SA í Frétta­blað­inu í dag“.

Efling segir að til­lögur sínar séu byggðar á þekktri fyr­ir­mynd sem Reykja­vík­ur­borg inn­leiddi að eigin frum­kvæði árið 2005. „Þær breyt­ingar leiddu hvorki til hörm­unga, óstöð­ug­leika né kjara­skerð­inga á íslenskum vinnu­mark­aði. Engin ástæða er til að ætla að sams konar breyt­ing árið 2020 myndi hafa slíkar afleið­ingar. Full­yrð­ingar um slíkt eru hræðslu­á­róður.“

Efling segir að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi áður leikið þann leik að upp­reikna kröfur stétt­ar­fé­laga upp í hæstu hæðir með talna­brellum. Það hafi meðal ann­ars verið gert í febr­úar 2019 á meðan að kjara­við­ræður, sem leiddu til lífs­kjara­samn­ings­ins, stóðu yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár