ASÍ hafnar hugmyndum um frestun launahækkana

Mið­stjórn ASÍ segir að kjara­skerð­ing ógni afkomu­ör­yggi á kreppu­tímum og muni bæði dýpka og lengja krepp­una. Tveir leið­togar stjórn­valda hafa rætt um frestun samn­ings­bund­inna launa­hækk­ana á síð­ustu dögum.

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) hefur sam­þykkt ályktun þar sem því er hafnað með öllu að fresta kjara­samn­ings­bundnum launa­hækk­unum. Tveir leið­toga stjórn­ar­flokka hafa rætt slíkar hug­myndir á und­an­förnum dögum auk þess sem full­trúar atvinnu­rek­enda hafa viðrað þær.

Í álykt­un­inni segir að mið­stjórnin árétti mik­il­vægi þess að stjórn­völd etji ekki aðilum vinnu­mark­aðar saman nú þegar end­ur­skoðun kjara­samn­inga standi fyrir dyrum, en Lífs­kjara­samn­ing­arnir svoköll­uðu eru til end­ur­skoð­unar nú í sept­em­ber­mán­uði. Í þeirri vinnu verður farið yfir hvort að for­sendur þeirra haldi.

Mið­stjórn ASÍ segir að kjara­skerð­ing ógni ekki ein­ungis afkomu­ör­yggi launa­fólks á kreppu­tímum heldur hafi hún einnig skað­leg áhrif til fram­búðar og muni bæði dýpka og lengja krepp­una. „Bætt kjör launa­fólks skila sér bæði í auk­inni neyslu, sem er afar áríð­andi í sam­drætti, og auknu skattfé, enda er launa­fólk helstu skatt­greið­endur lands­ins. Samtök atvinnu­lífs­ins virð­ast hvorki hafa skiln­ing á þörfum atvinnu­lífs­ins né almenn­ings og kjósa heldur að fylgja hug­mynda­fræði­legri línu sem getur, ef henni er fylgt, haft í för með sér lang­vinnan skaða fyrir íslenskt efna­hags­líf og sam­fé­lag. Mið­stjórn ASÍ mun berj­ast af fullum þunga fyrir kjörum launa­fólks og fyrir almanna­hags­munum í þeirri kreppu sem nú stendur yfir.“

[adspot]Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og ráð­herra sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­mála, ljáði máls á því um liðna helgi að mögu­lega ætti að skoða að fresta samn­ings­bundnum launa­hækk­unum vegna yfir­stand­andi ástands.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag að þótt það væri ekki lík­legt til árang­urs að segja aðilum vinnu­mark­að­ar­ins fyrir verkum telji hann sjálf­sagt að „vekja at­hygli á þeim al­mennu sann­ind­um að kjara­samn­ing­ar snú­ast um að skipta því sem er til skipt­anna. Og að þegar all­ar for­send­ur breyt­ast og minna er til skipt­anna, þá geti menn tæp­lega setið við sinn keip og kraf­ist þess að það sem um var samið skili sér. Því verður á end­an­um skilað, en spurn­ing­in er hvernig og hvenær.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár