Segja launafólk sniðgengið við mat á efnahagslegum áhrifum sóttvarna

For­ystu­konur ASÍ, BHM og BSRB hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær mót­mæla því að eng­inn full­trúi launa­fólks hafi fengið sæti í nýjum starfs­hópi sem mun meta efna­hags­leg áhrif sótt­varna­að­gerða. Þær kalla eftir því að hóp­ur­inn verði breikk­aður.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

For­ystu­konur ASÍ, BHM og BSRB mót­mæla því að eng­inn full­trúi launa­fólks hafi fengið sæti í starfs­hópi sem mun leggja mat á efna­hags­legum áhrifum val­kosta í sótt­varna­málum. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá félög­unum þremum sem undir skrifa Drífa Snædal, for­seti ASÍ, Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður BHM.

[links]

Tilkynnt var í dag um skipan hóps­ins. Honum er ætlað að meta skamm­tíma­á­hrif og áhrif á getu hag­kerf­is­ins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar far­ald­ur­inn og áhrif hans líða hjá. Hópinn skipa Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu efna­hags­mála í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og Ásdís Krist­jáns­dótt­ir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins. Bene­dikt Árna­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, mun starfa með hópn­um.

Þær Drífa, Sonja Ýr og Þórunn kalla eftir því að starfs­hópur fjár­mála­ráð­herra sem muni vinna þessar grein­ingar verði breikk­aður þannig „að sjón­ar­mið fleiri en atvinnu­rek­enda fái að koma þar fram. Það er gam­al­dags við­horf að efna­hags­mál snú­ist fyrst og fremst um fyr­ir­tæki en ekki heim­ili og almenn­ing.“

Vilja fulltrúa launafólks að borðinu

Í yfir­lýs­ing­unni er vísað í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um skipan starfs­hóps­ins en þar var tekið fram að hóp­ur­inn eigi að taka til­lit til ólíkra sam­fé­lags­hópa og geira hag­kerf­is­ins. „Þar hefur full­trúi stór­fyr­ir­tækja, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, verið kall­aður til en full­trúar launa­fólks eru víðs fjarri. Þetta er til marks um rör­sýn fjár­mála­ráð­herra í efna­hags­málum, sem getur haft alvar­legar afleið­ingar fyrir íslenskt sam­fé­lag til fram­tíðar,“ eins og það er orðað í yfir­lýs­ing­unni.

Í yfir­lýs­ing­unni krefj­ast þær þess að fjár­mála­ráð­herra boði full­trúa launa­fólks að borð­inu þegar í stað. „Að öðrum kosti verða til­lögur starfs­hóps­ins og vinna hans ómerk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár