Már Guðmundsson leiðir starfshóp sem mun greina efnahagsleg áhrif sóttvarna

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp sem vinna mun reglu­legar grein­ingar á efna­hags­legum áhrifum val­kosta í sótt­varn­ar­málum, með til­liti til hags­muna ólíkra sam­fé­lags­hópa og geira hag­kerf­is­ins.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp sem vinna mun reglu­legar grein­ingar á efna­hags­legum áhrifum val­kosta í sótt­varn­ar­málum, með til­liti til hags­muna ólíkra sam­fé­lags­hópa og geira hag­kerf­is­ins. Bæði verða metin skamm­tíma­á­hrif og áhrif á getu hag­kerf­is­ins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar far­ald­ur­inn og áhrif hans líða hjá. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Starfs­hóp ráð­herra skipa Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu efna­hags­mála í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og Ásdís Krist­jáns­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Benedikt Árnason, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, mun starfa með hópnum. Analytica ehf. verður starfs­hópnum til aðstoðar. Starfs­hóp­ur­inn skilar ráð­herra reglu­legum grein­ingum á efna­hags­legum áhrifum val­kosta í sótt­varn­ar­málum, að því er fram kemur hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

[adspot]

„Heims­far­aldur COVID-19 og við­brögð við honum hafa haft djúp­stæð áhrif á íslenskt efna­hags­líf frá því snemma á þessu ári. Stjórn­völd hafa beitt sér­stökum úrræðum á landa­mærum til þess að tak­marka útbreiðslu sjúk­dóms­ins inn­an­lands, m.a. með kröfum um sótt­kví og skimanir, en slík úrræði hafa víð­tæk efna­hags­leg áhrif.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið birti grein­ar­gerð og minn­is­blað þegar ákvarð­anir voru teknar um breyttar aðgerðir á landa­mær­unum í júní og ágúst. Því til við­bótar hefur ráðu­neytið unnið minn­is­blöð um ein­staka þætti og þróun mála fyrir ráð­herra­nefndir og rík­is­stjórn. Í ljósi þess að áhrifa far­ald­urs­ins mun gæta a.m.k. næstu mán­uði og að hann er síbreyti­legur, bæði hér­lendis og erlendis, þurfa við­brögð stjórn­valda að vera í stöðugri end­ur­skoðun. Mik­il­vægt er að unnin verði frek­ari grein­ing á efna­hags­legum kostn­aði og ábata ólíkra sótt­varn­ar­að­gerða og þeim val­kostum sem helst kunna að koma til álita,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár