Vantar tugþúsundir til starfa

Helsta vanda­málið í dönsku atvinnu­lífi er skortur á vinnu­afli. Í iðn­aði, verslun og þjón­ustu vantar tug­þús­undir starfs­fólks og á næstu árum verður ástandið að óbreyttu enn alvar­legra. Stjórn­mála­menn eru sagðir snúa blinda aug­anu að vand­anum.

Fjölmarga vantar í störf í Danmörku, meðal annars á veitingastöðum.
Fjöl­marga vantar í störf í Danmörku, meðal ann­ars á veit­inga­stöðum. Mynd: EPA

„Háseta vantar á bát“ var ein þeirra til­kynn­inga sem iðu­lega mátti heyra á árum áður í Rík­is­út­varp­inu og er eins­konar sam­nefn­ari íslenskra atvinnu­aug­lýs­inga, ásamt kannski „Ráðskona óskast í sveit“. Aug­lýs­ingar af þessu tagi heyr­ast vart lengur í útvarp­inu, nú er það netið og atvinnu­síður dag­blað­anna (sem líka eru á net­inu) sem fólk í atvinnu­leit skoðar.

Í Danmörku er ekki hefð fyrir atvinnu­aug­lýs­ingum á ljós­vak­anum, enda engar aug­lýs­ingar í flestum slíkum miðlum þar í landi. Öðru máli gegnir um dag­blöðin. Mörg þeirra birta atvinnu­aug­lýs­ingar í sér­stökum auka­blöðum, gjarna um helgar. Í þessum auka­blöðum birt­ast aug­lýs­ingar frá fyr­ir­tækjum, sem vantar fólk, og sömu­leiðis frá fyr­ir­tækjum sem sér­hæfa sig í manna­ráðn­ingum. Þetta er svipað fyr­ir­komu­lag og við þekkjum hér á landi.

Skin og skúrir

Í Danmörku hafa skipst á skin og skúrir í atvinnu­málum. Í heimskrepp­unni í kringum 1930 var mikið atvinnu­leysi, mest 24.8 pró­sent árið 1932. Á 6. ára­tug síð­ustu aldar var mikið atvinnu­leysi um tíma en síðan dró úr því. Jókst tals­vert á árunum 1974 og 1975 og aftur upp úr 1980.

Eins og í mörgum löndum jókst atvinnu­leysi á „hru­nár­unum“ svo­nefndu eftir 2008 og fram til árs­ins 2013. Eftir það lá leiðin upp á við, fram að heims­far­aldr­inum svo­nefnda.

Tugþúsundir fóru til heimalandsins

Þegar heims­far­ald­ur­inn dundi yfir heims­byggð­ina misstu tug­þús­undir erlendra rík­is­borg­ara sem starfað höfðu í Danmörku, einkum á veit­inga­stöðum, hót­elum og ýmsu tengt ferða­þjón­ustu og verslun ásamt bygg­ing­ar­iðn­aði skyndi­lega vinn­una og ákváðu að snúa til heima­lands­ins. Það sem iðu­lega er nefnt „hjól atvinnu­lífs­ins“ sner­ust allt í einu á hálfum hraða eða í sumum til­vikum mun hægar.

[adspot]Enginn vissi hvert fram­haldið yrði, óvissan var algjör. Það var dauft yfir öllu, veit­inga­staðir hálf­tómir, eða lok­aðir, lítið að gera í versl­unum, færra fólk á ferð­inni. Og grímu­skylda. Margir fyllt­ust svart­sýni en stjórn­völd gerðu sitt besta við að stappa stál­inu í lands­menn. Gripið var til marg­hátt­aðra aðgerða til aðstoðar fyr­ir­tækjum í vanda,

Svo reis landið á ný

Vorið 2021 birti til. Eins og hendi væri veifað fór flest í fullan gang. Ferða­fólk flykkt­ist til Dan­merkur á nýjan leik og hót­elin höfðu vart undan að taka á móti pönt­unum, bygg­inga­iðn­að­ur­inn kippt­ist við, pant­anir eftir alls kyns varn­ingi, allt frá vind­myllum til vasa­úra streymdu inn, veit­inga­stað­irnir lifn­uðu við, göngu­götur og versl­anir fyllt­ust af fólki. Blaða­maður Berl­ingske lýsti þessu þannig að Danmörk væri laust úr viðjum. Bætti við að þessi lýs­ing væri ekki bundin við Danmörku, hún ætti við stærstan hluta heims­ins. Upp­sveiflan kall­aði á fleira fólk til starfa, margt fólk. Tug­þús­undir.

Atvinnurekendur áhyggjufullir

Um miðjan júní árið 2021 greindi dag­blaðið Berl­ingske frá könnun sem blaðið hafði gert meðal 150 danskra fyr­ir­tækja. Við­kom­andi voru öll meðal 1000 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. Rúmlega 20 pró­sent þeirra sem tóku þátt í þess­ari könnun sögð­ust á und­an­förnum mán­uðum hafa orðið að segja nei við pönt­unum vegna skorts á starfs­fólki. Af sömu ástæðu sögð­ust 27 pró­sent til við­bótar sjá fram á að geta ekki afgreitt allar pant­anir sem bær­ust. Til við­bótar sögð­ust 32 pró­sent ótt­ast skort á starfs­fólki þótt þetta slyppi, eins og það var orðað, í augna­blik­inu.

Hvað er til ráða?

Þeir Danir sem eru að svip­ast um eftir atvinnu hafa úr mörgu að velja. Um þessar mundir vantar tug­þús­undir fólks í öll mögu­leg störf. Nánast sama hvert litið er, það vantar alls staðar fólk nema í banka­starf­semi.

Um það bil 100 þús­und manns eru nú á atvinnu­leys­is­skrá. Sú tala hefur ekki verið lægri í 12 ár. Þótt hver ein­asta mann­eskja úr þessum hópi (sem er ekki raun­hæfur mögu­leiki) færi út á vinnu­mark­að­inn hrykki það ekki til, og vantar mikið á.

Í við­tali fyrr í þessum mán­uði sagði Brian Mikk­el­sen, fyrr­ver­andi ráð­herra og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Dansk Erhverv (eitt fjöl­margra sam­taka atvinnu­rek­enda) að fyr­ir­tæki innan sam­tak­anna vanti nú 53 þús­und starfs­menn. Hann vildi ekki giska á hve mörg laus störf væru í boði í land­inu öllu en sagð­ist telja að þau væru vel á annað hund­rað þús­und. „Hvernig er hægt að bæta úr þessu?“ spurði Brian Mikk­el­sen og svar­aði spurn­ing­unni sjálfur „með því að ráða útlend­inga til starfa“. Hann sagði jafn­framt að rík­is­stjórn Mette Frederik­sen hefði blandað saman atvinnupóli­tík og útlend­ingapóli­tík. Stjórnin hefur ekki þorað að segja að erlent vinnu­afl skipti miklu fyrir Danmörku, því hún ótt­ast að verða sökuð um lin­kind í útlend­inga­málum. „Við eigum ekki að loka land­inu, við eigum að opna landið enn frekar en nú er. Hvað gerir fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem annar ekki eft­ir­spurn og fær ekki starfs­fólk? Það flytur til útlanda.“ Brian Mikk­el­sen benti á að í Evrópu eru nú um 14 millj­ónir atvinnu­lausra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár