Gjörbreytt verðbólga á einu ári

Sam­setn­ing verð­bólg­unnar tók miklum breyt­ingum í fyrra. Í byrjun árs vó hátt verð á mat­vöru, bílum og raf­tækjum þungt, en í síð­asta mán­uði var hún að mestu leyti vegna verð­hækk­ana á hús­næði og bens­íni.

Verðhækkanir á bensíni á síðasta ári höfðu jákvæð áhrif á verðbólguna.
Verð­hækk­anir á bens­íni á síð­asta ári höfðu jákvæð áhrif á verð­bólg­una. Mynd: EPA

Meiri­hluti verð­bólg­unnar í byrjun síð­asta árs var vegna verð­hækk­ana á mat­vöru, bílum tóm­stundum og raf­tækjum. Eftir því sem árið leið dró hins vegar úr vægi þess­ara vöru­flokka, á meðan bensín og hús­næði hækk­uðu hratt í verði. Þetta kemur fram þegar und­ir­vísi­tölur neyslu­verðs­vísi­töl­unnar eru skoð­aðar hjá Hagstofu.

Faraldursvörur hækkuðu í verði

Samkvæmt und­ir­vísi­töl­unum hækk­aði verðið á ýmsum vörum sem eft­ir­spurnin jókst eftir í kjöl­far far­ald­urs­ins á vor­mán­uðum 2020. Þessar verð­hækk­anir héldu svo áfram út árið og fram í apríl 2021. [adspot]

Þar má helst nefna mat­vöru, sams konar hækk­anir áttu sér einnig stað hjá hús­gögnum og heim­il­is­tækjum, sér í lagi raf­tækjum, á sama tíma­bili. Bílar hækk­uðu einnig tals­vert í verði, auk þess sem verðið á ýmiss konar tóm­stundir og menn­ing­ar­við­burði jókst líka. Alls voru 57 pró­sent verð­bólg­unnar í jan­úar í fyrra vegna verð­hækk­ana í öllum þessum flokkum.

Líkt og sjá má á mynd hér að ofan dró hins vegar nokkuð úr þessum verð­hækk­unum eftir apr­íl­mánuð. Á sama tíma hækk­aði svo verðið á bens­íni, en það hafði lækkað nokkuð eftir að far­ald­ur­inn kom til lands­ins.

Mest jókst þó vægi hús­næðis í neyslu­verðs­vísi­töl­unni, sam­hliða hröðum verð­hækk­unum á fast­eigna­mark­aði. Samhliða því hækk­aði einnig verðið á við­haldi og við­gerðum á hús­næði, en vægi beggja þess­ara vöru­flokka jókst með hverjum mán­uð­inum eftir það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár