Verðbólgan komin upp í 7,2 prósent

Enn heldur verð­lag áfram að hækka, sam­kvæmt mæl­ingum Hagstofu á vísi­tölu neyslu­verðs. Verð­hækk­anir á mat- og drykkj­ar­vörum hafa vegið þungt síð­asta mán­uð­inn, en flug­far­gjöld hafa einnig hækkað umtals­vert í verði.

Verð­bólgan, mæld sem 12 mán­aða hækkun í vísi­tölu neyslu­verðs, mæld­ist 7,2 pró­sent í apríl. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu.

Þetta er í fyrsta skiptið sem verð­bólgan mælist yfir sjö pró­sentum hér á landi síðan um mitt ár 2010.

Sem fyrr er hús­næð­is­verð stærsti ein­staki áhrifa­þátt­ur­inn, en án hækk­ana á því mælist verð­bólgan rúmum þremur pró­sentu­stigum minni.

Verð á bens­íni og olíum heldur einnig áfram að hækka, en vöru­flokk­ur­inn er nú orð­inn 26 pró­sentum dýr­ari en hann var í apríl í fyrra. Ef ekki væri fyrir þessum verð­hækk­unum væri verð­bólgan einu pró­sentu­stigi minni.

Á mynd hér að neðan má sjá þróun und­ir­liða verð­bólg­unnar frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Þar sést að hús­næð­islið­ur­inn heldur áfram að vega þungt í þróun verð­lags­hækk­un­ar­innar, en á síð­ustu tólf mán­uðum hefur vægi mat­vöru og elds­neytis hækkað jafnt og þétt. Þessir þrír vöru­flokkar útskýra nú tvo þriðju af verð­bólg­unni, sem væri í 2,2 pró­sentum ef þeir hefðu ekki hækkað í verði.

Á milli mán­aða hækk­aði vísi­talan um 1,25 pró­sent. Þar hafði verð á mat- og drykkja­vörum hefur jákvæð áhrif, en verð á þeim er nú 1,4 pró­sentum hærra en í síð­asta mán­uði. Hús­næð­islið­ur­inn hækk­aði svo um 2,4 pró­sent á milli mán­aða og verð á flug­far­gjöldum til útlanda hækk­aði um tæp 23 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár