Verðbólgan á Íslandi hærri en í flestum Evrópulöndum

Verð­hækk­anir hér­lendis voru langt umfram þróun flestra ann­arra Evr­ópu­landa í fyrra, en verð­bólgan í síð­asta mán­uði var aðeins hærri í Tyrkland og Póllandi, sam­kvæmt nýjum mæl­ingum Eurostat.

Einungis Tyrkir og Pólverjar máttu þola meiri verðhækkanir en Íslendingar í fyrra af löndunum sem Eurostat mælir
Einungis Tyrkir og Pól­verjar máttu þola meiri verð­hækk­anir en Íslend­ingar í fyrra af lönd­unum sem Eurostat mælir Mynd: 123RF

Verð­bólgan á Íslandi var mest allra Norð­ur­landa í síð­asta mán­uði og í þriðja sæti fyrir öll Evr­ópu­lönd sem hag­stofa Evr­ópu­sam­bands­ins, Eurostat, mælir. Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá hag­stof­unni sem birt­ust á síðu hennar fyrr í vik­unni.

Samkvæmt töl­unum náði verð­bólgan hér á landi 3,4 pró­sentum í jan­úar. Þetta er rúm­lega tvö­falt meiri verð­hækkun milli jan­ú­ar­mán­aða en á hinum Norð­ur­lönd­unum, en í Svíþjóð, Noregi, Finn­landi og Danmörku var verð­bólgan að með­al­tali 1,5 pró­sent í síð­asta mán­uði. [adspot]

Með­al­verð­bólga meðal aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins var enn lægri, en hún náði 1,2 pró­sentum í jan­úar, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Þar sést verð­bólgan hjá öllum 33 Evr­ópu­löndum sem Eurostat mælir, en á meðal þeirra stóð verð­vísi­talan nán­ast í stað í fyrra í níu löndum og lækk­aði í fimm löndum.

Langmest var verð­hækk­unin í Tyrk­landi, en þar náði verð­bólgan 15 pró­sentum í síð­asta mán­uði. Ef það land, sem er ein­ungis að hluta til evr­ópskt, er tekið úr sam­an­burð­inum trónir Pólland á toppi list­ans með 3,6 pró­sent verð­bólgu. Ísland er svo ekki langt á undan með sín 3,4 pró­sent í árs­byrjun.

Evr­ópu­sam­bandið mælir verð­bólgu sem tólf mán­aða breyt­ingu á sam­ræmdri vísi­tölu neyslu­verðs (HICP), sem er nokkuð frá­brugðin vísi­tölu neyslu­verðs (CPI) sem Hagstofa Íslands notar til að mæla verð­bólgu hér­lendis. Því er verð­bólgan sam­kvæmt Eurostat nokkuð lægri en sam­bæri­legar mæl­ingar Hagstofu.

Samkvæmt Hagstofu náði verð­bólgan 4,3 pró­sentum í jan­úar en lækk­aði niður í 4,1 pró­sent í febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár