Heimilin enn viðkvæm fyrir óvæntri verðbólgu og vaxtahækkunum

Þrátt fyrir að verð­tryggðum lánum hafi fækkað á und­an­förnum árum hafa óvænt verð­bólgu­skot enn tölu­verð áhrif á skulda­stöðu heim­ila, sér­stak­lega ef þeim fylgja vaxta­hækk­anir.

Óvænt aukn­ing verð­bólgu um eina pró­sentu gæti haft meiri áhrif á lána­greiðslur heim­ila núna en fyrir níu árum síðan ef verð­bólgu­skotið leiðir til jafn­mik­illa vaxta­hækk­ana, þar sem skuld­setn­ing heim­ila hefur auk­ist. Þetta kemur fram þegar tölur um hús­næð­is­lán heim­ila eru bornar saman við verð­hækk­anir á fast­eigna­mark­aðnum og launa­þróun.

Minna af verðtryggðum lánum

Samkvæmt nýj­ustu tölum úr efna­hags­reikn­ingum banka­kerf­is­ins og líf­eyr­is­sjóða nam heild­ar­virði verð­tryggðra hús­næð­is­lána um 906 millj­örðum króna í nóv­em­ber. Á sama tíma nam heild­ar­virði óverð­tryggðra lána 1.278 millj­örðum króna.

Hlut­falls­legt vægi verð­tryggðra lána heim­il­anna hefur minnkað tölu­vert á síð­ustu árum, eða úr 60 pró­sentum allra útistand­andi lána í lok árs 2018 niður í 30 pró­sent. Hins vegar er þessi lækkun aðal­lega til­komin vegna auk­innar lán­töku með óverð­tryggðum lánum, en heild­ar­virði verð­tryggðra lána dróst ein­ungis saman um tíu pró­sent á tíma­bil­inu. [adspot]

Samhliða sam­drætt­inum í verð­tryggðum lánum hefur kostn­að­ur­inn sem óvænt verð­bólgu­skot veldur heim­ilum minnkað á síð­ustu árum. Slíkum verð­bólgu­skotum fylgja þó venju­lega stýri­vaxta­hækk­anir hjá Seðla­bank­anum, sem gætu leitt til hærri vaxta á þeim hús­næð­is­lánum sem eru á breyti­legum vöxtum. Þar sem lán­taka heim­ila hefur auk­ist á síð­ustu miss­erum eru heim­ilin nú við­kvæm­ari fyrir skörpum stýri­vaxta­hækk­unum en þau voru áður.

Heimilin næm fyrir vaxtahækkunum

Verð­tryggð lán gefur lán­tak­endum tæki­færi á að takast á við verð­bólgu með meiri fram­tíð­ar­greiðslum, án þess að hún hafi mikil áhrif á núver­andi greiðslu­byrði. Upp­safn­aðar greiðslur aukast hins vegar á slíkum lánum þegar verð­lag hækkar óvænt.

Myndin hér að neðan sýnir vísi­tölu heild­ar­greiðslna heim­ila á hús­næð­is­lánum ef verð­bólgan verður eitt pró­sent umfram spár. Hún byggir á virði útistand­andi lána banka, spari­sjóða og líf­eyr­is­sjóða til heim­ila og tekur einnig til­lit til hækk­unar launa­vísi­tölu Hagstofu á sama tíma. Gert er ráð fyrir að rúmur helm­ingur allra lána árið 2013 hafi verið á föstum vöxtum og að heim­ili taki að með­al­tali lán fyrir 25 millj­ónir króna..

Eins og sést hefði óvænt aukn­ing verð­bólgu nú 20 pró­sent minni áhrif á heild­ar­greiðslur heim­il­anna en það gerði í árs­byrjun 2013, leiði verð­bólgan ekki til vaxta­hækk­ana. Sú er hins vegar venju­lega ekki raunin, þar sem Seðla­bank­inn notar vaxta­hækk­anir til að halda verð­bólg­unni innan lög­bund­inna marka.

Ef vextir á hús­næð­is­lánum hækka ein­ungis um hálft pró­sentu­stig í kjöl­far verð­bólgu­skots­ins yrðu áhrif þess á heild­ar­greiðslur heim­il­anna jafn­mikil í ár og þau hefðu verið fyrir níu árum síðan. Hins vegar, ef vext­irnir hækka um eitt pró­sent bæru heim­ilin nú fjórð­ungi þyngri byrðar en þau hefðu áður gert.

Athuga­semd rit­stjórnar kl: 15:54: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var ekki tekið nægi­lega skýrt fram að um heild­ar­greiðslur lána væri að ræða. Fréttin hefur verið upp­færð í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár