Aukinn stuðningur Íslendinga við listamannalaun

Um 53 pró­sent lands­manna eru fylgj­andi því að ríkið greiði út lista­manna­laun, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. 77 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins eru and­vígir lista­manna­launum en 80 pró­sent kjós­enda VG og Sam­fylk­ingar eru fylgj­andi þeim.

Rúmlega helm­ingur Íslend­inga er fylgj­andi því að ríkið greiði út lista­manna­laun. Hlutfall þeirra sem eru fylgj­andi hefur auk­ist um yfir 7% síðan í febr­úar 2013 og um yfir 14% síðan í mars 2010.

Þau sem styðja Fram­sókn­ar­flokk og Sjálf­stæð­is­flokk eru lík­leg­ust til að vera and­vígir lista­manna­launum, en þau sem styðja Sam­fylk­ingu og Vinstri græn eru lík­leg­ust til að vera fylgj­andi því að ríkið greiði launin. Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar skoð­ana­könn­unar MMR.

47 pró­sent svar­enda eru and­vígir því að ríkið greini lista­mönnum lista­manna­laun. Hlufallið hefur lækkað úr 61 pró­senti frá árinu 2010 og 54 pró­sentum frá árinu 2013. 

Mjög skiptar skoð­anir eru varð­andi lista­manna­laun þegar litið er til stuðn­ings stjórn­mála­flokka. 77 pró­sent þeirra sem styðja Fram­sókn­ar­flokk eru and­víg þeim og 68 pró­sent þeirra sem styðja Sjálf­stæð­is­flokk. Hins vegar eru um 80 pró­sent þeirra sem styðja Sam­fylk­ingu og Vinstri græn fylgj­andi því að ríkið greiði lista­manna­laun.

Yngra fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er lík­legra til að lýsa yfir stuðn­ingi við lista­manna­laun heldur en aðrir og þar að auki eru heim­ili með milljón á mán­uði eða meira í tekjur meira fylgj­andi laun­unum heldur en tekju­lægri hópar.

Könnun MMR var gerð dag­ana 12. til 20 jan­úar 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár