Eftir Trump – Endurreisn Bidens

Við hverju má búast í utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna þegar Joe Biden verður for­seti?

Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna
Joe Biden, verð­andi for­seti Banda­ríkj­anna Mynd: EPA

Nú þegar Joe Biden tekur við for­seta­emb­ætti í Banda­ríkj­unum er ljóst að ein­hver umskipti munu verða á utan­rík­is­stefn­unni. Donald Trump hefur gengið lengra en nokkur for­seti við að koll­varpa hefð­bund­inni stefnu banda­rískra stjórn­valda, með slæmum afleið­ingum myndu margir segja. COVID-19-far­ald­ur­inn mun þó verða fyr­ir­ferð­ar­mik­ill og Biden því ekki lík­legur til að gera nein strand­högg þegar kemur að utan­rík­is­málum fyrst um sinn. Þar er þó af nógu af taka og ljóst að hann mun vilja snúa frá þeirri stefnu sem for­veri hans mark­aði og fram­kvæmdi.

Minnihluti í öldungadeildinni

Joe Biden er eng­inn nýgræð­ingur í utan­rík­is­málum því hann hefur hátt í hálfrar aldar reynslu, fyrst sem öld­unga­deild­ar­þing­maður og síðar sem vara­for­seti. Þar sem þekk­ingu hans sleppir er hann óhræddur við að hlusta á sér­fræð­inga, ólíkt fyr­ir­renn­ara hans. Hann hefur sett saman gríð­ar­lega umfangs­mikið ráð­gjafa­ráð, um eitt­þús­und sér­fræð­inga, sem var honum til halds og trausts í kosn­inga­bar­átt­unni, og mun að ein­hverju leyti fylgja honum inn í emb­ættið.

Biden stendur frammi fyrir meiri­hluta repúblíkana­flokks­ins í öld­unga­deild­inni, í það minnsta fram til 2022 og mun það binda hendur hans í mik­il­vægum laga­setn­ingum sem varða inn­an­rík­is­mál. Það þarf þó ekki að koma að sök í utan­rík­is­málum því sem for­seti getur Biden farið fram hjá þing­inu og beitt sér­stökum til­skip­unum.

Donald Trump hafði gjarnan þann hátt á til að fá málum fram­gengt, án þess að þurfa að fá sam­þykki full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings þar sem demókratar höfðu meiri­hluta. Barack Obama gerði þetta einnig og kom þannig fjölda mála í fram­kvæmd, eins og Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, kjarn­orku­samn­ingi við Íran, og hern­að­ar­að­gerðum í Írak, Líbíu, Sýrlandi og víðar, jafn­vel þar sem þingið neit­aði að veita sér­staka heim­ild. Slíkar aðferðir og stefnu­breyt­ingar hafa þó þann ókost að þær end­ast ekki mikið lengur en sá for­seti sem kom þeim í kring, því jafn auð­velt er að aft­ur­kalla þær og koma þeim á.

Mistök Trumpstjórnarinnar – verkefnalistinn er langur

Það er langur listi verk­efna sem bíður Bidens eins og búast má við og hefur hann þegar tekið til við að und­ir­búa breyt­ingar. Áður en kemur að utan­rík­is­málum er hins vegar ljóst að bar­áttan við COVID-19-far­ald­ur­inn mun taka athygl­ina fyrst um sinn, auk þeirra efna­hags­þreng­inga sem hann hefur valdið. Þar er Biden á heima­velli en hann leiddi end­ur­reisn­ar­starf Obama-stjórn­ar­innar í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2009.

Umhverf­is­mál eru Joe Biden hug­leikin og hann hefur lýst því yfir að eitt af hans fyrstu verkum verði að end­ur­nýja aðild Banda­ríkj­anna að Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem Donald Trump dró þau út úr, en þar með urðu Banda­ríkin eina ríkið í heim­inum sem stóð utan þess. Það sama má segja um Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina en Banda­ríkin hættu aðild að henni á þeim for­sendum að Kín­verjum hefði ekki verið sýnd nógu mikil harka vegna fram­komu þeirra þegar COVID-19-far­ald­ur­inn braust út.

Donald Trump ein­setti sér að rétta stöðu Banda­ríkj­anna í alþjóða­kerf­inu sem hann sagði markast af mis­notkun, að Banda­ríkja­menn væru látnir borga brús­ann í alþjóða­sam­starfi sem gangi í mörgum til­fellum gegn hags­munum þeirra. Þunga­miðja utan­rík­is­stefnu hans hefur því verið ein­angr­un­ar­hyggja; að draga Banda­ríkin út úr hverskyns samn­ingum, sátt­málum, og ábyrgð gagn­vart öðrum ríkjum sam­kvæmt stefnu sem kall­ast „America First“ – ein­blína á efna­hags­mál og hags­muni banda­rískra fyr­ir­tækja og vinnu­mark­aðar.

Þetta tókst að ein­hverju leyti því efna­hag­ur­inn hélt áfram að blómstra og atvinnu­leysi var í lág­marki. En þar með var ekki öll sagan sögð því jafn­vel þó COVID-19 hefði ekki komið til var ljóst að óveð­urs­skýin voru tekin að hrann­ast upp. Við­skipta­hall­inn hafði farið hratt vax­andi og fram­kvæmd stefnu­mála var oft handa­hófs­kennd, ómark­viss, illa skil­greind og háð duttl­ungum for­set­ans. Sama átti við um mót­væg­is­að­gerðir inn­an­lands til að mæta þeim skakka­föllum sem óhjá­kvæmi­lega leiddu af fram­kvæmd hennar.

Þó til­gang­ur­inn hafi verið að styrkja stöðu Banda­ríkj­anna, sér í lagi inn á við, má segja að vopnin hafi snú­ist í hönd­unum á honum og þetta hafi valdið miklum skaða og ógni hrein­lega öryggi lands­ins. America First-stefnan hefur haft það í för með sér að Banda­ríkin geta átt það á hættu að missa það for­ystu­hlut­verk sem þau hafa haft á ýmsum sviðum; í örygg­is­málum, við­skiptum og tækni. Til að mynda hefur þetta skapað tóma­rúm sem ríki eins og Kína sjá sér nú leik á borði að fylla upp í. Sumir segja að þetta hafi þegar gerst og erfitt gæti verið fyrir Biden að leið­rétta mis­tökin.

Rísandi Kína – misráðinn einleikur Trumps

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum, sem og ann­ars staðar, hafa haft miklar áhyggjur af hinu rísandi Kína; efna­hags­legum vexti, sífellt meiri tækni­legri getu Kínverja til eft­ir­lits og netnjósna og hætt­unni sem þetta hefur í för með sér fyrir sam­keppni, frið­helgi og frjáls­lynt lýð­ræði. Ein stærstu mis­tök Donalds Trumps voru að fara einn í stríð gegn þess­ari vá því Evr­ópu­búar deila þessum áhyggjum. Trump hefði verið í lófa lagið að fá Evr­ópu­ríki með í banda­lag sem hefði þrýst á Kínverja til að skapa nýjan alþjóð­legan ramma um staf­ræn við­skipti. Þessi í stað nú takast á þrír ásar, Banda­ríkin, Evrópa og Kína.

Við­skipta­stríð við Kína hefur heldur ekki skilað því sem til var ætl­ast því tollar sem banda­rískir neyt­endur greiða fyrir kín­verskar vörur hafa hækkað vöru­verð. Bændur hafa einnig komið illa út úr aðgerð­unum en Trump­stjórnin hefur lagt fram millj­arða doll­ara í nið­ur­greiðslur til reyna að bæta skað­ann. Að sama skapi koma tollar á inn­flutn­ing frá Kína sér illa fyrir fram­leiðslu­greinar í Banda­ríkj­unum sem reiða sig á hrá­efni þaðan, því þeir skekkja sam­keppn­is­stöðu þeirra.

Þarna er verk að vinna og má búast við því að Biden beiti reynslu sinni sem maður sátta og reyni að end­ur­nýja það traust sem glat­ast hefur milli Evrópu og Banda­ríkj­anna. Hann er lík­legur til að nýta kosti sam­vinnu fremur en að beita þeirri ein­angr­un­ar­hyggju sem fyr­ir­renn­ari hans lagði upp með. Í stað þess að líta á alþjóða­sam­starf sem ógn við banda­ríska hags­muni eins og inn­lenda atvinnu­starf­semi væri ráð­legra að Banda­ríkja­menn myndu styrkja fjöl­þjóð­legt sam­starf, m.a. við Evr­ópu­ríki.

Þetta á við um sam­eig­in­legar reglur um við­skipti, vinnu­afl og umhverf­is­staðla, skatt­lagn­ingu og staf­ræna hag­kerfið. Slíkt væri raun­veru­lega til hags­bóta fyrir almenn­ing. Og vilji Biden fara í við­skipta­stríð við Kína er ráð­legra að safna liði meðal ann­arra Asíu­ríkja sem einnig eiga mikla hags­muni að verja gagn­vart Kína, en eitt af fyrstu verkum Trumps var að úti­loka mögu­leika á slíku sam­starfi sem þó var í burð­ar­liðnum með samn­ingnum um Trans-Pacific Partners­hip.

Öryggis- og varnarmál

Biden er lík­legur til þess að marka hóf­sama hefð­bundna stefnu í öryggis- og varn­ar­málum og í raun fylgja þeirri línu sem Barack Obama reyndi að leggja með því að lág­marka íhlutun á erlendri grund. Stefna banda­rískra stjórn­valda í inn­an­rík­is­málum hefur einnig mikil áhrif á utan­ríkis-, öryggis- og varn­ar­mál, því allur heim­ur­inn fylgist með þegar Banda­ríkin eru ann­ars vegar.

Framkoma og gjörðir Trumps sem ýta undir ras­isma og móðg­anir hans við ríki rómönsku Ameríku, upp­hefja þannig ras­ista í öðrum löndum og grafa undan mögu­leikum Banda­ríkja­manna til vera fyr­ir­mynd og stuðla að lýð­ræð­isum­bótum, friði og öryggi ann­ars staðar í heim­inum. Biden mun án efa snúa við blað­inu hvað þetta varðar.

Einnig má gera ráð fyrir því að hann breyti stefn­unni gagn­vart Rússum sem hefur verið í ein­kenni­legum far­vegi og muni fylgja hefð­bundn­ari stefnu í þeim sam­skiptum. Einnig bíður Bidens að leysa úr þeim hnút sem Trump hefur komið málum í er varða Íran, N-Kóreu og Venes­ú­ela. Trump hefur lagt áherslu á að ná fram póli­tískum mark­miðum með því að sýna hámarks styrk, meðal ann­ars með harka­legum efna­hags­legum refsi­að­gerðum. Þær hafa þó fyrst og fremst bitnað á almenn­ingi í þeim ríkjum sem þeim er beint að og vanda­málin eru í verri far­vegi en áður; N-Kórea hefur haldið áfram með kjarn­orku­vopna­á­ætlun sína, Íranir sömu­leiðis og staða harð­stjór­ans Maduros hefur styrkst í Venes­ú­ela.

Það er lít­ill áhugi fyrir nýjum styrj­öldum og verk­efna­list­inn heima fyrir er ansi umfangs­mik­ill; COVID-19, aðgerðir til að efla og hraða efna­hags­bata, klofn­ingur vegna átaka milli kyn­þátta og almennt að sætta þjóð­ina. Biden mun því hafa fangið fullt og vinstri vængur hans eigin flokks mun standa í veg­inum fyrir hvers­konar til­hneig­ingu í átt að íhlut­unum í öðrum heims­hlutum í nafni frelsis og lýð­ræðis, eins og tíðk­að­ist fyrrum. Og ekki mun minni­hluti í öld­unga­deild­inni hjálpa til því repúblík­anar munu lík­lega halda sig að mestu ofan í skot­gröf­unum hvað sem hæfi­leikum og vilja Bidens til sátta líður.

Þó er ljóst að taka þarf ákveðin skref til að laga þá stöðu sem komin er upp. Öryggis- og varn­ar­mál tutt­ug­ustu og fyrstu ald­ar­innar snú­ast um fjöl­þáttaógnir og sam­fé­lags­legt öryggi. Hættan er sú að þetta ástand geti gert Biden og þar með Banda­ríkja­mönnum erfitt eða ómögu­legt að ná árang­urs­ríkum og mjög nauð­syn­legum samn­ingum á alþjóða­vett­vangi; um lofts­lags­mál, staf­ræna stjórn­ar­hætti, heil­brigð­is­mál og umbætur í við­skiptum.

Hvað var Trump að reyna?

Banda­ríkin eru stór og innan þeirra eru hópar sem hafa mjög mis­mun­andi heims­sýn, allt frá því að alríkið eigi að hafa sig sem minnst í frammi, með lág­marks umfangi, skatt­heimtu, þaðan af síður að vasast í málum ann­arra þjóða – til þess að Banda­ríkin eigi að vera í for­ystu á alþjóða­vett­vangi og ganga hratt og ákveðið fram í að tryggja lýð­ræði og frelsi í heim­inum. Báðir hóp­arnir rúm­ast að ein­hverju leyti innan hvors flokks, repúblik­ana og demókrata, svo erfitt er að alhæfa og setja fólk í hólf.

Verkefni for­set­ans er að sam­eina og sætta þessi sjón­ar­mið, sem hugs­an­lega gekk betur áður fyrr þegar Banda­ríkja­menn áttu sér skýr­ari, skil­greinda óvini sem berj­ast þurfti við. Þegar ekki var lengur hægt að sam­eina þjóð­ina vegna hættu af komm­ún­isma eða Íslam var hnatt­væð­ing nær­tæk, sem hefur aug­ljós­lega sínar slæmu hliðar. Donald Trump hefur nýtt sér það óspart og magnað hana upp sem ógn við banda­ríska þjóð, þrátt fyrir að hafa sjálfur óneit­an­lega notið kost­anna við alþjóða­væð­ing­una. Þetta hefur enn aukið á úlfúð og átök í banda­rísku sam­fé­lagi sem er lík­lega klofn­ara en nokkru sinni fyrr.

Mál­flutn­ingur Trumps gegn alþjóða­væð­ing­unni á sér aug­ljós­lega mik­inn hljóm­grunn í ákveðnum hópum og þrátt fyrir ósigur í kosn­ing­unum hlaut hann met­fjölda atkvæða. Hann fór þá leið að reyna ekki að höfða til breið­ari hóps, miklu frekar að skerpa á klofn­ingnum til að styrkja stöðu sína meðal stuðn­ings­manna. Sá hópur hefur engan áhuga á að bæta ímynd Banda­ríkj­anna til þess að geta beitt sér á erlendum vett­vangi, hann tor­tryggir útlend­inga en veit jafn­framt að Banda­ríkin eru vold­ug­asta ríki heims með öfl­ug­asta vopna­búrið og flest kjarn­orku­vopnin.

Það má jafn­framt reikna Donald Trump til tekna að hann vildi hemja óhóf­leg umsvif Banda­ríkja­hers um víða ver­öld, um leið og hann jók útgjöld til her­mála. Hann hafði uppi stór orð um tvö erfið mál þegar hann tók við emb­ætti; Stríðið í Afganistan, sem stendur enn þrátt fyrir að mikið hafi verið reynt að ljúka því, bæði með góðu og illu, og Íslamska ríkið, sem hefur verið að ná vopnum sínum og byggir nú upp af miklum móð í Sýrlandi. Trump gekk þó jafn illa með þessi erf­iðu mál og for­verum hans og ekk­ert bendir til þess að Joe Biden muni vegna neitt betur.

Bidens bíður sameiningarstarf

Bidens bíður erfitt verk­efni við að sam­eina ólík sjón­ar­mið, bæði sinna manna sem og repúblík­ana. Á heima­velli er ann­ars vegar hóp­ur­inn sem lítur á efl­ingu hers­ins og hern­að­ar­að­gerðir horn­auga, því það muni draga úr fjár­veit­ingum til félags­legra úrlausn­ar­efna sem er ærið nóg af í banda­rísku sam­fé­lagi, hópur sem inni­heldur fólk eins og Bernie Sanders og Alex­andriu Ocasio-Cortez. Hinn hóp­ur­inn er íhalds­sam­ari demókratar sem vilja, í anda Bills Clintons og ára eft­ir­stríðs­ár­anna, mynda sterk tengsl við fjöl­þjóða­stofn­anir eins og NATO og að Banda­ríkin haldi uppi merkjum frelsis og lýð­ræðis í heim­inum.

Repúblík­ana­megin stendur svo eftir hóp­ur­inn sem fylgdi Trump að málum í ein­angr­un­ar­hyggj­unni, þeir sem vilja öfl­ugan her, m.a. með kjarn­orku­vopnum, til að verja Banda­rískt land­svæði en ekki til þess að standa í kostn­að­ar­sömum aðgerðum á erlendri grund. Og svo hinn sem vill að Banda­ríkja­her sé sá öfl­ug­asti og geti látið að sér kveða til að styðja við banda­rísk gildi og hags­muni hvar sem er í heim­inum.

Hér er auð­vitað um að ræða grófar línur um afmörkuð mál en þær segja ákveðna sögu um klofn­ing­inn þegar kemur að stefnu­mótun í utan­rík­is­málum. Þetta beinir jafn­framt sjónum að því hversu erfitt verk Biden gæti átt fyrir höndum, því ef reynt er að sigla á milli skers og báru og gera sem flestum til hæfis getur nið­ur­staðan orðið hálf bragð­dauf og litlu verið komið í verk.

Hvað með Ísland?

Í þessu sam­hengi er jafn­framt eðli­legt að velta fyrir sér hver staða Íslands verður í sam­skiptum við þennan mik­il­væg­asta banda­mann okkar og öfl­ug­asta nágranna. Þrátt fyrir allt hefur Ísland ekki liðið fyrir skort á athygli frá banda­rískum stjórn­völdum á tíma Trump-stjórn­ar­innar. Vara­for­seta­heim­sókn, utan­rík­is­ráð­herra­heim­sóknir og önnur inn­lit hátt­settra emb­ætt­is­manna eru fáheyrð af þeirri tíðni sem verið hefur síð­ast­liðin fjögur ár. End­ur­fjár­fest­ing Banda­ríkj­anna í varn­ar­sam­starfi ríkj­anna er veru­leg og jafn­framt hefur virst ein­lægur áhugi á því að efla við­skipta­sam­band ríkj­anna.

Á það ber að líta að þessi athygli sem Ísland fær kemur ekki til af góð­mennsku því þar ráða banda­rískir hags­munir. Banda­ríkja­menn hafa verið að beina sjónum sínum að N-Atl­ants­hafi síðan aftur tók að kólna í sam­skiptum við Rússa og Ísland er á ytri mörkum varn­ar­svæðis þeirra, sem skýrir áhug­ann. Líklegt er að þessi áhugi muni hald­ast með nýrri stjórn, en miklu mun skipta hverjir ráða yfir utan­ríkis- og varn­ar­mála­ráðu­neytum Banda­ríkj­anna eftir að Biden sver form­lega emb­ætt­is­eið þann 20. jan­úar næst­kom­andi.

Íslensk stjórn­völd skyldu hafa í huga að mikil munur er á afstöðu Bidens og Trumps þegar kemur að alþjóða­stofn­unum, hlutum sem varða nátt­úru­vernd og nýt­ingu auð­linda eins og fisk­stofna og hvala. Lobbí­istar nátt­úru­vernd­ar­sam­taka munu eiga mun greið­ari leið að Biden en Trump og má nefna að beit­ing Pelly-ákvæð­is­ins svo­kall­aða, sem Obama virkj­aði í sinni tíð, var virt að vettugi af Trump-stjórn­inni. Ekki er ólík­legt að ein­hver þrýst­ingur verði settur á íslensk stjórn­völd verði t.d. tekið til við hval­veiðar eða farið illi­lega út af spor­inu að mati nátt­úru­vernd­ar­sam­taka vest­an­hafs.

Þarna fel­ast þó tæki­færi því hagur smá­ríkja í sam­skiptum við ríki eins og Banda­ríkin er best tryggður með öfl­ugu alþjóða­sam­starfi, að samn­ingar séu virtir og að lög og reglur séu í hávegum hafðar. Íslend­ingar hafa að ein­hverju leyti byggt ímynd sína á hrein­leika óspilltrar nátt­úru, hvort sem það er á sviði mat­væla­fram­leiðslu eða ferða­mennsku. Með breyttum áherslum í Washington er því tæki­færi fyrir Íslend­inga að standa stoltir í stafni og kvika ei frá ströngum við­miðum þegar kemur að nátt­úru­vernd, m.a. í mál­efnum Norð­ur­slóða. Slík stefna er vís til að vekja eft­ir­tekt og myndi vafa­laust styrkja tengslin við Banda­ríkin undir hinni nýju stjórn Bidens.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár