Frestunarhugmynd forsetans snarlega afskrifuð af samflokksmönnum

Donald Trump viðr­aði í gær hug­mynd um að fresta for­seta­kosn­ing­unum sem fram fara 3. nóv­em­ber. Til­lög­unni var fálega tekið, enda frá­leit, þrátt fyrir að sumir hafi búist við henni. Áhrifa­miklir sam­flokks­menn for­set­ans lýstu sig ósam­mála.

Hugmynd Trumps um að fresta kosningunum hefur ekki fengið mikinn hljómgrunn.
Hugmynd Trumps um að fresta kosn­ing­unum hefur ekki fengið mik­inn hljóm­grunn. Mynd: EPA

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti fór mik­inn á sam­fé­lags­miðlum í gær, eins og svo oft áður. Hann sagði allt benda til þess að for­seta­kosn­ing­arnar sem eru á dag­skrá vest­an­hafs 3. nóv­em­ber myndu verða algjör­lega marklausar vegna svindls í tengslum við póst­kosn­ingar og rit­aði svo: „Þetta verður Banda­ríkj­unum til mik­illar skammar. Frestum kosn­ing­unum þar til fólk getur kosið á réttan hátt, tryggi­lega og örugg­lega???“

Þetta var í fyrsta sinn sem Trump viðr­aði það opin­ber­lega að mögu­lega ætti að fresta kosn­ing­unum, sem er raunar nokkuð sem hann hefur ekki minnsta vald til þess að gera, eins og rakið er í frétta­skýr­ingu frá New York Times.

Banda­ríkja­þing fer með vald til þess að ákveða hvenær kosn­ingar fara fram og frá árinu 1845 hafa lög verið í gildi sem kveða á um að for­seta­kosn­ingar á að halda þriðju­dag­inn eftir fyrsta mánu­dag­inn í nóv­em­ber­mán­uði.

Til þess að kjör­degi breytt myndi for­set­inn þurfa að fá sam­þykki bæði öld­unga­deildar og full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings fyrir laga­setn­ingu. Það er ekki mögu­leiki að demókrat­arnir sem stýra full­trúa­deild­inni myndu nokkru sinni sætta sig við frestun kosn­inga og það varð svo strax ljóst í gær að hug­mynd Trumps sló hreint ekki í gegn hjá sam­flokks­fólki hans í Repúblikana­flokknum.

„Mér finnst það ekki sér­lega góð hug­mynd,“ sagði Lindsey Graham, banda­maður for­set­ans sem veitir dóms­mála­nefnd öld­unga­deild­ar­innar for­mennsku, við CNN. John Thune, sem er í for­ystu­sveit repúblik­ana í öld­unga­deild­inni, sagði sama miðli að til­laga Trump væri lík­leg til þess að ná athygli fjöl­miðla, en að hann reikn­aði ekki með að hún yrði lengi til umræðu.

Mitch McConnell, leið­togi flokks­ins í öld­unga­deild­inni var afdrátt­ar­laus, í við­tali við sjón­varps­stöð­ina WNKY í Kentucky-ríki, um að honum hugn­að­ist ekki hug­mynd Trumps. „Aldrei í sögu þessa lands, í gegnum stríð, kreppur og Þræla­stríðið, höfum við ekki náð að halda alrík­is­kosn­ingar á réttum tíma, og við munum finna leið til þess að gera það 3. nóv­em­ber næst­kom­andi,“ sagði McConnell.

Í sama streng tók Kevin McCarthy sem leiðir minni­hluta repúblik­ana í full­trúa­deild­inni, sem og repúblikanar á borð við Ted Cruz og Marco Rubio. Óþarfi er að fara mörgum orðum um hvað leið­togar demókrata sögðu um hug­mynd­ina, þeir sögðu hana frá­leita og hreint út sagt hættu­lega.

Biden hafði spáð því að þessi hugmynd kæmi fram

Í umfjöllun Politico um hug­mynd for­set­ans er rifjað upp að Joe Biden, and­stæð­ingur Trumps í for­seta­kosn­ing­unum í haust, sagði í apríl að hann teldi að Trump myndi reyna að finna ein­hverja ástæðu til þess að stinga upp á því að kosn­ing­unum yrði frestað. Biden hefur reynst sann­spár, en á þeim tíma sagði Trump að hann hefði aldrei látið sér detta til hugar að fresta kosn­ing­unum.

Þetta útspil Trumps hefur verið túlkað sem veik­leika­merki af ýmsum. Frétta­hauk­ur­inn fyrr­ver­andi Dan Rather sagði á Twitter að hann teldi að Trump væri dauð­hræddur og sagði jafn­framt að hann liti á hug­mynd for­set­ans sem til­raun til þess að fá fjöl­miðla til þess að fjalla um eitt­hvað annað en stöðu efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum í skugga kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Í gær, á svip­uðum tíma og Trump setti tíst sitt í loftið, var greint frá því að lands­fram­leiðsla Banda­ríkj­anna á öðrum árs­fjórð­ungi hefði dreg­ist meira saman en nokkru sinni frá því að byrjað var að taka saman árs­fjórð­ungs­legar hag­tölur í Banda­ríkj­unum árið 1947, eða um 9,5 pró­sent, sem myndi sam­svara 32,9 pró­sentum á árs­grund­velli.

Á sama tíma benda skoð­ana­kann­anir ein­dregið til þess að Joe Biden muni fara með sigur af hólmi í kosn­ing­unum 3. nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár