Þórólfur: Ekki neitt meiriháttar áfall

Sótt­varna­læknir seg­ist „vissu­lega hafa vonað“ að sam­komu­lag myndi nást við Pfizer um vís­inda­rann­sókn á bólu­efnum hér á landi. Hins vegar sé nið­ur­staðan um að svo verði ekki, að minnsta kosti í bili, ekki meiri­háttar áfall í hans huga.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að þó að nið­ur­staða fundar með for­svars­mönnum lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer í dag hafi verið sú að hér verði ekki gerð vís­inda­rann­sókn á bólu­efni þess sé ekki alveg búið að slá hug­mynd­ina út af borð­inu.

„Ég var vissu­lega að vona að þetta myndi ganga,“ sagði Þórólfur í kvöld­fréttum RÚV. Hann hafði talið að hægt væri að afla mik­illa gagna með rann­sókn hér en að það væru „ekki allir sem sjá það með sömu augum“.

[adspot]

Spurður hvað þyrfti að ger­ast svo að af rann­sókn­inni yrði sagð­ist Þórólfur ekki vitað það en að best væri nú að horfa fram á veg­inn og því góða starfi sem hefur skilað okkur þeim árangri að mjög fá smit eru að greinst hér í hverri viku.

[links]„Við höfum náð frá­bærum árangri,“ sagði Þórólfur. „Við þurfum að standa okkur áfram í því, halda áfram [skimun] á landa­mær­unum og halda áfram að bólu­setja.“

Það hafi frá upp­hafi verið grund­vallar plan yfir­valda en að mögu­legur samn­ingur við Pfizer hafi verið hlið­ar­verk­efni. „En þetta er ekki neitt meiri­háttar áfall,“ sagði hann um nið­ur­stöður fund­ar­ins í dag.

„Við bindum miklar vonir við það að við munum fá meira af bólu­efni á öðrum og þriðja árs­fjórð­ungi heldur við höfum verið að fá und­an­farið. Það eru ný fyr­ir­tæki að koma inn [með bólu­efni].“ Talað hefur verið um að meiri­hluti lands­manna verði ekki bólu­settur fyrr en í haust en Þórólfur er ekki svo viss. „Ég held að við munum ná því fyrr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár