Kári: „Ekki mikið úr því að fá“ að bólusetja þjóð þar sem svo fá tilfelli eru að greinast

„Þetta er eitt af þessum til­fellum sem maður getur ekki leyft sér að vona það sem maður þarfn­ast,“ segir Kári Stef­áns­son um þá nið­ur­stöðu að hverf­andi líkur séu á því að vís­inda­rann­sókn Pfizer verði gerð á Íslandi. Tilfelli af veirunni eru of fá.

Kári segir niðurstöðuna ekki endilega þá sem hann vildi en að hún sé rökrétt.
Kári segir nið­ur­stöð­una ekki endi­lega þá sem hann vildi en að hún sé rök­rétt. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta er ekki endi­lega það sem við vildum en þessi nið­ur­staða er mjög skilj­an­leg,“ segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, spurður hvort að það séu von­brigði að ekk­ert verði að vís­inda­rann­sókn lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer hér á landi. „Þetta er rök­rétt nið­ur­staða að athug­uðu máli.“

Eftir fund með for­svars­mönnum Pfizer í dag telur Kári „hverf­andi líkur“ á að af rann­sókn­inni, sem mikið hefur verið rætt um síð­ustu vikur, verði. „Þetta er eitt af þessum til­fellum sem maður getur ekki leyft sér að vona það sem maður þarfn­ast,“ segir hann en ástæðan fyrir því að Pfizer telur Ísland ekki henta fyrir rann­sókn­ina er sú að hér eru að grein­ast svo fá til­felli – „of fá“ til að rann­sóknin myndi sýna árangur. Af þessum fáu til­fellum eigum við Íslend­ingar hins vegar að vera stolt.

[adspot]

Kári segir einu rétt­læt­ing­una fyrir því að flytja 500 þús­und skammta af bólu­efni Íslands, á undan öðrum löndum, sé sú að þannig hefði verið hægt að sækja nýja þekk­ingu sem myndi gagn­ast öllum heim­inum.

En núna eru til­fellin af kór­ónu­veirunni svo fá á Íslandi að þau myndu ekki nægja til að sýna áhrif fjölda­bólu­setn­ingar á stuttum tíma. Þegar Kári fund­aði síð­ast með full­trúum Pfizer voru að grein­ast um 20 til­felli á dag inn­an­lands. Síðan fór Pfizer í það að „leita að bólu­efni“, eins og Kári orðar það, til að tryggja að þeir [links]ættu nóg bólu­efni til að bólu­setja stóran hluta íslensku þjóð­ar­innar. „Síðan hafa þeir verið svo­lítið þöglir í þrjár vikur,“ segir Kári. Hann seg­ist hafa gert sér grein fyrir því „fyrir lif­andis löngu“ að þetta væri tæpt. „Ég var að von­ast til þess að þeir sæju í þessu aðra mögu­leika. Mögu­leik­ann á að líta á árang­ur­inn af bólu­setn­ing­unni í tengslum við fullt af upp­lýs­ingum sem hér eru til staðar. Þeir gáfu það í skyn allan þennan tíma að þeir væru áhuga­samir en svo greini­lega sett­ust þeir niður sem hópur og þegar við röktum okkur saman í gegnum þetta [á fund­inum] var þetta rök­rétt nið­ur­staða að mörgu leyti.“

Kári segir engin samn­ings­drög hafa verið lögð fram á fundi hans og Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis með full­trúum Pfizer í dag. Hann seg­ist reyndar aldrei hafa heyrt af neinum samn­ings­drögum. Hins vegar hafi verið talað um að senda blað til stað­fest­ingar á sam­eig­in­legum áhuga á verk­efn­inu. Til þess kom þó ekki.

„Pfizer setti ekki fram nein skil­yrði,“ segir Kári spurður hvort að til umræðu hafi komið að bólu­setja í ríkum mæli á Íslandi og opna svo landa­mærin, líkt og flökku­saga sem Þórólfur var beð­inn að stað­festa eða neita á upp­lýs­inga­fundi gær­dags­ins, sagði. „Ekkert slíkt hefur verið rætt,“ segir Kári.

Hann segir málið í raun ein­falt. Pfizer hafi gert sína útreikn­inga og kom­ist að því að ekki væri mikið úr því að fá að bólu­setja þjóð þar sem svona fá til­felli væru að grein­ast dag frá degi, „sem við eigum að vera stolt af og ánægð með. Til þess að þú getir sýnt áhrif af bólu­efn­inu þá þarftu að hafa ákveð­inn fjölda af til­fellum“.

Kári seg­ist ekki hafa hug­mynd um hvort Pfizer sé að horfa til ein­hvers ann­ars lands núna til að fram­kvæma vís­inda­rann­sókn­ina. Enginn annar fundur hefur verið ákveð­inn milli Kára og Þórólfs og full­trúa Pfizer.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár