Of fá tilfelli og dvínandi líkur á Pfizer-rannsókn

Dvínandi líkur eru á því að af rann­sókn­ar­verk­efni Pfizer og íslenskra stjórn­valda verði. Þetta er nið­ur­staða fundar milli for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins, sótt­varna­yf­ir­valda og Kára Stef­áns­sonar sem lauk kl. 17.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sátu fundinn með Pfizer.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sátu fund­inn með Pfizer. Mynd: EPA

„Við erum fórn­ar­lömb eigin vel­gengni,“ segir Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar erfða­grein­ingar, um nið­ur­stöðu fundar full­trúa lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer með Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni og Kára Stef­áns­syni for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar. Á fund­inum var rætt um fyr­ir­hugað rann­sókn­ar­verk­efni eða vís­inda­til­raun lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins hér á landi sem hefði falið í sér bólu­setn­ingu stórs hluta þjóð­ar­innar. Að því er Þóra Kristín segir er Pfizer hins vegar ekki reiðu­búið að taka ákvörðun á þess­ari stundu og ástæðan er sú að of fá til­felli af COVID-19 eru að grein­ast hér á landi um þessar mundir svo að rann­sóknin myndi koma að gagni.

Eitt eða jafn­vel ekki neitt til­felli af kór­ón­veirunni hefur verið að grein­ast inn­an­lands síð­ustu daga og vikur. Á sama tíma hefur far­ald­ur­inn verið í mik­illi upp­sveiflu víða erlendis.

Í tengslum við vís­inda­til­raun­ina hefur verið talað um að um 60 pró­sent þjóð­ar­innar yrði bólu­sett á skömmum tíma með bólu­efni Pfizer og BioNtech.

Í dag hefur komið fram í fréttum að á fund­inum með Pfizer yrðu kynnt drög að samn­ingi um verk­efnið. Sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að farið yrði svo yfir þau til að kanna hvort að skil­yrði þeirra væru ásætt­an­leg fyrir íslensku þjóð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár