Pfizer komst að því að „Þórólfur er búinn að eyðileggja faraldurinn á Íslandi“

Sótt­varna­læknir og for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar eru sam­mála um að ekki sé væn­legt að leita til ann­arra lyfja­fyr­ir­tækja með rann­sókna sam­bæri­lega þeirri sem Pfizer íhug­aði að fá leyfi til að gera hér. Smitin eru ein­fald­lega of fá.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: EPA

Sótt­varna­læknir og for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar telja nær úti­lokað að af vís­inda­rann­sókn Pfizer verði hér á landi. Þeir höfðu báðir von­ast til þess að hún yrði að veru­leika svo hægt væri að búa til nýja þekk­ingu, heims­byggð­inni allri til hags­bóta. Lyfja­fyr­ir­tækið hefði kom­ist að annarri nið­ur­stöðu og því beri að sýna skiln­ing. Hvorugur þeirra telur væn­legt að „leita á önnur mið“, þ.e. til ann­arra lyfja­fyr­ir­tækja með sam­bæri­lega rann­sókn.

[adspot]

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar voru gestir Kast­ljóss í RÚV í kvöld. Þeir áttu fund með full­trúum Pfizer í dag og var nið­ur­staða hans að hingað myndi ekki koma mikið magn bólu­efnis til að bólu­setja meiri­hluta þjóð­ar­innar í rann­sókn­ar­skyni. Skýr­ingin er sú að hér eru að grein­ast mjög fá til­felli af kór­ónu­veirunni í hverri viku.

[links]„Ef þessi rann­sókn, eins og hún var hugsuð, hefði orðið að veru­leika, hefðum við fylgt öllum ströng­ustu skil­yrðum um leyf­is­veit­ingar,“ sagði Þórólfur. Sú umræða hefur spunn­ist und­an­farið að reynt yrði að „stytta sér leið“ en Þórólfur segir ein­fald­lega ekki hafa verið tíma­bært að ræða útfærslu rann­sókn­ar­innar fyr­ir­fram. Um fjórða fasa klínískrar rann­sóknar hefði verið að ræða sem fólki hefði verið boðið að taka þátt í til að leita svara við ákveðnum rann­sókn­ar­spurn­ingum.

Kári segir að úr því sem komið var, vegna hina fáu smita, hefði mátt rann­saka hér aðra hluti, s.s. hvernig ný afbrigði veirunnar svari bólu­setn­ingu. Þekking til slíkrar rann­sóknar eru til staðar hér á landi.

Að opna landamærin hefðu engu skipt

Hvort að til greina hafi komið að bólu­setja þorra þjóð­ar­innar og opna svo landa­mærin sagði Kári að það hefði ekk­ert gagn gert í rann­sókn­ar­skyni ein­fald­lega vegna þess að fólkið í land­inu hefði verið bólu­sett og engin smit myndu koma upp. Hann sagði að þakka megi Þórólfi fyrir að það var ekki hægt að gera rann­sókn­ina hér á landi og vís­aði þar til hins góða árangur sem náðst hefur í bar­átt­unni við veiruna. „Við sitjum uppi núna með mjög lítil til­felli.“

Kári sagði jafn­framt að leiða mætti að því rök að okkar góði árangur þýði að við eigum „pínu­lítið minni rétt á að fá bólu­efni fljótt“ en aðrir.

Þórólfur seg­ist hafa verið undir þessa nið­ur­stöðu búinn þó að hann hefði vissu­lega viljað að rann­sóknin færi af stað. „En menn líta mis­jafn­lega á þetta og mér sýn­ist þetta vera endir­inn á því.“

Eina leiðin er áfram

Á fund­inum með Pfizer í dag byrj­uðu fund­ar­menn að ræða um átök um bólu­efni um allan heim. Sagði Kári að „log­andi stríð“ væru víða um efnin. Hann hafi heyrt að sumum hafi liðið hálf óþægi­lega að við Íslend­ingar værum á sama tíma að svindla okkur fram fyrir röð­ina. En, ef samn­ingar hefðu náðst við Pfizer, hefðum við ekki verið að „að svindla okkur fram fyrir heldur að taka þátt í til­raun sem von­andi nýt­ist til að finna nýja þekk­ingu, sem nýt­ist öllum heim­inum.“

En nú er nokkuð ljóst að ekk­ert verður af vís­inda­rann­sókn­inni. Kári sagði í gam­an­sömum tón að Pfizer-menn hefðu hægt og rólega kom­ist að því að „Þórólfur var búinn að eyði­leggja far­ald­ur­inn á Íslandi.“

Eina leiðin er áfram, sagði Þórólfur. Góður árangur hefði vissu­lega náðst en „við vildum gera meira, ná vís­inda­legri þekk­ingu með þess­ari aðferð. Það tókst ekki en við höldum áfram.“

Hann seg­ist bjart­sýnn á að meira magn bólu­efnis ber­ist frá fleiri fram­leið­endum næstu mán­uði. Kári seg­ist þó enn ekki telja raun­hæft að meiri­hluti lands­manna verði bólu­settur „fyrir nýtt ár“.

Megum ekki eyðileggja fyrir öðrum

Kári sagði í „ákefð okkar að ná í bólu­efni“ verðum við að setja okkur í alþjóð­legt sam­hengi og passa að við séum ekki að eyði­leggja fyrir öðrum.

Hvað tak­mark­anir á landa­mærum varðar er ljóst að þeim verður haldið áfram en Þórólfur benti á að þær væru rýmri hér á landi en víða ann­ars staðar í heim­inum í augna­blik­inu. „Ég veit að það eru allir að bíða eftir tíma­punkt­inum þar sem hægt er að segja að það sé hægt að opna hitt eða þetta. En fyr­ir­sjá­an­leik­inn er lít­ill.“ Undir það verðum við að búa okkur áfram.

Kári segir að ef samn­ingar hefðu náðst við Pfizer um rann­sókn hefði verið hægt að opna landa­mærin. „Því miður gekk það ekki eftir og við veðrum að halda landa­mær­unum lok­uðum að minnsta kosti í ein­hverja mán­uði í við­bót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár