Löndin sem tekið hafa forystu með bólusetningarvottorð

Samhliða upp­hafi bólu­setn­inga gegn COVID-19 í löndum Evrópu vex þrýst­ingur á að bólu­settir geti ferð­ast innan álf­unnar án hind­r­ana. Margir horfa til bólu­setn­ing­ar­vott­orða, sem stundum eru kölluð bólu­setn­ing­ar­vega­bréf, í því sam­bandi.

Vottorðin myndu tryggja forréttindi bólusettra til ferðalaga innan Evrópu.
Vott­orðin myndu tryggja for­rétt­indi bólu­settra til ferða­laga innan Evrópu. Mynd: EPA

Svokölluð „bólu­setn­ing­ar­vega­bréf“ eru mikið til umræðu þessa dag­ana og hefur nokkur fjöldi Evr­ópu­landa þegar ákveðið að gefa slík vott­orð út til bólu­settra. Þrýst­ingur á að opna landa­mæri fyrir ferða­lögum bólu­settra hefur auk­ist sam­hliða bólu­setn­inga­her­ferðum sem þegar eru hafnar í álf­unni.

Evr­ópu­þingið styður hug­myndir um útgáfu bólu­setn­ing­ar­vott­orða og ákvað á fundi í jan­úar að hefja vinnu við sam­ræm­ingu þeirra en telur að of snemmt að ákveða hvernig þau verði notuð til að losa um ferða­hömlur. Fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, Ursula von der Leyen, hefur einnig lýst yfir stuðn­ingi við hug­mynd­ina um að stöðluð vott­orð verði gefin út.

Hér að neðan er að finna lista yfir þau Evr­ópu­ríki innan ESB og Schengen-svæð­is­ins, sem hafa til­kynnt að þau íhugi eða ætli að gefa út bólu­setn­ing­ar­vott­orð og hvaða for­rétt­indi þau munu veita bólu­settum.

Kýpur

Kýp­verjar voru fyrstir Evr­ópu­sam­bands­ríkja til að til­kynna áætl­anir sínar um að aflétta ferða­hömlum á þeim sem fengið hafa bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Stjórn­völd á Kýpur ætla þannig að opna landa­mæri sín fyrir bólu­settum, að minnsta kosti þeim sem búa innan ESB, geti þeir fært sönnur á því að þeir hafi verið bólu­settir að fullu.

Tékkland

Stjórn­völd í Tékk­landi eru einnig a skoða mögu­leik­ana á því að heim­ila bólu­settum að koma til lands­ins án þess að þurfa að fara í ein­angrun við kom­una. Heil­brigð­is­ráð­herr­ann hefur í þessu sam­bandi vísað til umræðu leið­toga innan ESB um útgáfu sam­ræmdra „bólu­setn­ing­ar­vega­bréfa“. Engar áætl­anir um útgáfu slíkra vott­orða til borg­ara lands­ins hafa þó enn verið til­kynntar.

Danmörk

Danir hafa þegar til­kynnt að þeir ætli bráð­lega að hefja útgáfu raf­rænna bólu­setn­ing­ar­vott­orða. Verða vott­orðin gefin þeim sem fengið hafa bólu­setn­ingu svo þeir geti, þegar þar að kemur, ferð­ast án hamla til ríkja sem munu taka þau gild. Fjár­mála­ráð­herra Dan­merkur sagði nýverið að innan fárra mán­aða yrðu þau líka aðgengi­leg þeim sem hyggj­ast ferð­ast til Dan­merkur, m.a. í við­skipta­er­indum.

„Þetta verður auka vega­bréf sem þú getur haft í sím­anum þínum og stað­festir að þú hafir verið bólu­settur,“ sagði ráð­herr­ann.

Eistland

For­sæt­is­ráð­herra Eist­lands skrif­aði þegar í októ­ber undir samn­ing við Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina um að þar í landi yrðu þróuð tækni­lausn á útgáfu bólu­setn­ing­ar­vott­orða. For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur sagt að verk­efnið veiti Eistum ein­stakt tæki­færi til að leggja sitt af mörkum í bar­átt­unni gegn COVID-19 með því að hanna raf­ræna þjón­ustu útgáfu vott­orða á alþjóða­vísu.

Grikkland

Kyriakos Mitsotakis, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, var fyrsti leið­togi ESB-ríkis til að kalla form­lega eftir útgáfu bólu­setn­ing­ar­vott­orða innan sam­bands­ins. Hann hefur sagt að annað sumar án ferða­manna myndi hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir land sitt og hefur því mælst til útgáfu sam­ræmdra vott­orða svo opna megi landa­mærin fyrir bólu­settum.

Grikkir hafa þegar losað um ákveðnar hömlur á landa­mærum gegn fram­vísun bólu­setn­ing­ar­skír­teina eftir að sam­komu­lag náð­ist við stjórn­völd í Serbíu um ferða­lög land­anna á milli.

Ungverjaland

Í Ung­verja­landi geta þeir sem fengið hafa bólu­setn­ingu sem og þeir sem fengið hafa COVID-19 ferð­ast milli svæða inn­an­lands þar sem strangar aðgerðir eru í gildi vegna far­ald­urs­ins. Þeir þurfa þá að fram­vísa skír­teini sem yfir­völd gefa út. Einnig geta þeir ferð­ast yfir landa­mærin án tak­mark­ana. Bólu­settir Ung­verjar munu svo bráð­lega geta verið úti eftir klukkan 20 á kvöldin þegar útgöngu­bann tekur gildi dag hvern.

Ísland

Yfirvöld hér á landi hófu útgáfu raf­rænna bólu­setn­ing­ar­vott­orða 21. jan­úar. Hægt er að sækja um vott­orð í gegnum Heilsu­veru. Tæplega 5.000 manns hafa nú fengið báða skammta bólu­efnis hér á landi og geta þar með sótt um vott­orð því til stað­fest­ingar.

Ítalía

Samtök ferða­þjón­ust­unnar á Ítalíu hafa hvatt stjórn­völd til að hraða bólu­setn­ingu eins og frekast er unnt og gefa út vott­orð til bólu­settra í þeim til­gangi að ýta undir ferða­lög fólks. Stjórn­völd hafa enn sem komið er ekki svarað ákall­inu. Mjög brýnt er að sögn sam­tak­anna að opna mögu­leika fyrir ferða­lög fólks að nýju og þyrfti það að ein­hverju leyti að vera orðið ger­legt í vor.

Pólland

Stjórn­völd í Póllandi eru í hópi þeirra landa sem þegar eru farin að stefna að því að gefa út bólu­setn­ing­ar­vott­orð og taka við þeim sem myndi auka ferða­frelsi bólu­settra umfram aðra.

Til stendur að vott­orðið verði gefið út raf­rænt og líkt og á Íslandi tengt raf­rænni heil­brigð­is­gátt. Stjórn­völd hafa þó farið var­lega í að segja hvort að vott­orðin muni gagn­ast til að ferð­ast óhindrað yfir landa­mæri en þar sem þau hafa notað orðið „bólu­setn­ing­ar­vega­bréf“ er talið lík­legt að það sé planið.

Portúgal

Portú­gölsk stjórn­völd styðja ein­dregið útgáfu sam­ræmdra bólu­setn­ing­ar­vott­orða í Evrópu svo að bólu­settir geti ferð­ast án hafta. Inn­an­rík­is­ráð­herra lands­ins telur að bólu­setn­ing gegn COVID-19 sé nægi­lega örugg svo aflétta megi ákveðnum hömlum á landa­mærum ESB-ríkja.

Slóvakía

Slóvakar hafa einnig stutt útgáfu sam­ræmdra vott­orða til bólu­settra innan ESB. Stjórn­völd vilja einnig að slík vott­orð verði gefin út til þeirra sem hafa þegar fengið COVID-19.

Spánn

Ferða­mála­ráð­herra Spánar til­kynnti nýverið að unnið væri að því að gera útgáfu bólu­setn­ing­ar­vott­orða mögu­lega. Sagði hann að spænsku vott­orðin myndu hafa sama gagn og sam­bæri­leg vott­orð sem önnur ríki ætla að gefa út.

Svíþjóð

Stjórn­völd í Svíþjóð stefna að útgáfu bólu­setn­ing­ar­vott­orða fyrir sum­arið. Þau hafa líkt og fleiri bent á að slík vott­orð séu gagns­lítil ef önnur ríki taki þau ekki gild. Verið er að vinna að útgáfu­kerfi vott­orð­anna sem gæti gagn­ast á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár