Trump stígur í vænginn við Færeyinga

Banda­ríkja­menn hafa mik­inn áhuga á auk­inni sam­vinnu við Fær­ey­inga. Þótt í orði kveðnu snú­ist sá áhugi ekki um hern­að­ar­sam­vinnu dylst engum hvað að baki býr.

Þegar banda­ríska dag­blaðið New York Times greindi frá því í ágúst í fyrra að Donald Trump hefði lýst yfir að Banda­ríkin vildu kaupa Grænland af Dönum héldu margir að for­set­inn hefði sagt þetta í gríni. Svo var hins vegar ekki og for­set­inn stað­festi það í sjón­varps­við­tali. Sagði slíka sölu ein­fald­lega fast­eigna­við­skipti og sala á Græn­landi myndi spara Dönum mikið fé. Eftir að Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra sló þessa hug­mynd Donald Trump útaf borð­inu hætti for­set­inn við Dan­merk­ur­heim­sókn sína. „Fór í fýlu,“ sögðu dönsk dag­blöð. 

Þótt Banda­ríkja­for­seta hafi ekki orðið að ósk sinni varð­andi „fast­eigna­við­skiptin“ er áhug­inn á Græn­landi enn til staðar. Í apríl á þessu ári var til­kynnt að Banda­ríkin hefðu ráð­stafað rúmum 12 millj­ónum doll­ara (1700 millj­ónum íslenskum) til ýmissa verk­efna á Græn­landi. Þetta var gert í tengslum við opnun banda­rískrar ræð­is­skrif­stofu í Nuuk, sem var opnuð 10. júní sl.

Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað ítar­lega um þessi mál og stjórn­mála­skýrendur þeirra eru allir sam­mála um að til­gangur Banda­ríkj­anna sé að „bæta and­rúms­loftið“ eins og það er orðað og reyna að hindra aukin sam­skipti Græn­lend­inga við Rússa og Kínverja.

Vilja nú vingast við Færeyinga

Í lið­inni viku var Carla Sands sendi­herra Banda­ríkj­anna í Danmörku í nokk­urra daga heim­sókn í Færeyjum. Fær­eyskir fjöl­miðlar greindu ítar­lega frá heim­sókn sendi­herr­ans sem, auk þess að skoða eyj­arnar, hitti fær­eyska ráða­menn. Vita­skuld er sendi­herr­anum heim­ilt að ræða við hvern sem er, en ekki um hvað sem er. Til dæmis ekki um varnar- og örygg­is­mál. Slíkt ber að fara eftir form­legum leiðum, í slíkum til­vikum eru það danska utan­rík­is­ráðu­neytið, og varn­ar­mála­ráðu­neytið, sem málið heyrir undir. Carla Sands sendi­herra kærði sig koll­ótta um slíkt og hafði ekki sam­ráð við dönsk stjórn­völd vegna þess­ara við­ræðna.

Um hvað var rætt

Banda­ríski sendi­herr­ann hefur lítt eða ekki tjáð sig um Fær­eyja­heim­sókn­ina umfram að segja að það sé fal­legt í Færeyjum og fólkið við­kunn­an­legt. Fær­eyskir stjórn­mála­menn, þeir sem ræddu við sendi­herr­ann, hafa ekki verið jafn fámálir.

Jenis av Rana, utan­rík­is­mála­stjóri fær­eysku lands­stjórn­ar­innar sagði í við­tölum, við fær­eyska og danska fjöl­miðla, að við­ræð­urnar hafi ekki bein­línis snú­ist um hern­að­ar­sam­vinnu Færeyja og Banda­ríkj­anna en hins vegar um aukna sam­vinnu, svona almennt, eins og utan­rík­is­mála­stjór­inn komst að orði. Hann nefndi í því sam­bandi fær­eyska sendi­skrif­stofu í Washington. Færeyski frétta­mið­ill­inn In.fo greinir frá því að Carla Sands hafi lagt áherslu á að Færeyjar séu vel stað­settar með til­liti til Norð­ur­skauts­svæð­is­ins. Þess vegna hafi Banda­ríkin lýst yfir áhuga á að nota fær­eyskt haf­svæði. „Þeir eru mjög áhuga­samir að gera Færeyjar að eins­konar mið­stöð fyrir banda­ríska flot­ann,“ sagði Jenis av Rana í við­tali við In.fo.

Carla Sands ræddi einnig við fær­eyska stjórn­mála­menn um sam­vinnu varð­andi 5G háhraða­teng­ing­una, mögu­leik­ana á banda­rískri ræð­is­skrif­stofu í Færeyjum og sam­vinnu á sviði mennt­unar og rann­sókna. Svipaðar áherslur og Banda­ríkja­menn hafa viðrað við Græn­lend­inga.

Umhugsunarefni

Danskir hern­að­ar­sér­fræð­ingar segja þá stað­reynd að Banda­ríkja­menn ræði varnar- og örygg­is­mál við Græn­lend­inga og Fær­ey­inga, án þess að Danir komi þar nærri, sé umhugs­un­ar­efni.

„Er ætlun Banda­ríkja­manna að etja okkur í ríkja­sam­band­inu (Græn­landi, Færeyjum og Danmörku) saman?“ Þessa spurn­ingu lagði blaða­maður dag­blaðs­ins Berl­ingske fyrir Steen Kjærgaard hern­að­ar­sér­fræð­ing og yfir­mann hjá danska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Hann svar­aði því til að Banda­ríkin hefðu engan hag af því að skapa slíkan klofn­ing. Banda­ríkja­mönnum stendur stuggur af hern­að­ar­brölti Rússa ekki síst auknum umsvifum þeirra á Norður-Atl­ants­hafi. Einkum auk­inni umferð kaf­báta á þessu svæði. Steen Kjærgaard seg­ist í áður­nefndu við­tali ekki telja að Banda­ríkin hafi áhuga á að koma upp flota- eða her­stöð í Færeyjum. „Þótt Banda­ríkin séu stór og sterk geta þau ekki verið alls staðar. Til­gangur þeirra með við­ræðum við Fær­ey­inga og Græn­lend­inga er að mínu mati sá að þrýsta á Dani um aukið eft­ir­lit á dönsku haf­svæði,“ sagði Steen Kjærgaard.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár