Að tala tungum tveim og draga kanínu úr hatti

Danskir stjórn­mála­skýrendur sem fylgj­ast með rann­sókn á emb­ætt­is­færslum Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra, segja hana hafa talað tungum tveim í yfir­heyrslum vegna rann­sókn­ar­innar. Minn­is­blað sem eng­inn hafði áður heyrt minnst á dúkk­aði skyndi­lega upp.

Inger Støjberg, þáverandi ráðherra innflytjendamála í dönsku stjórninni, sést hér á fundi í Brussel 25. janúar árið 2016. Þann sama dag sá hún fréttir sem gerðu hana hoppandi illa og urðu kveikjan að þeim embættisfærslum sem nú eru til rannsóknar.
Inger Støjberg, þáver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála í dönsku stjórn­inni, sést hér á fundi í Brussel 25. jan­úar árið 2016. Þann sama dag sá hún fréttir sem gerðu hana hopp­andi illa og urðu kveikjan að þeim emb­ætt­is­færslum sem nú eru til rann­sóknar. Mynd: EPA

Í pistli sem birt­ist hér í Kjarn­anum sl. sunnu­dag, 24. maí, var fjallað um yfir­stand­andi rann­sókn á emb­ætt­is­færslu Inger Støjberg í tíð hennar sem ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Venstre stjórn Lars Løkke Rasmus­sen. Rann­sóknin er gerð sam­kvæmt ákvörðun rík­is­stjórnar Mette Frederik­sen, og sam­þykkt af danska þing­inu, Fol­ket­inget. Henni er ætlað að kom­ast að því hvort til­tekin fyr­ir­skipun, sem ráð­herr­ann fyrr­ver­andi gaf árið 2016, hafi verið í and­stöðu við lög.[links]

Rann­sókn­ar­nefndin hóf störf í jan­úar á þessu ári og fékk þá í hendur öll gögn (utan eitt sem síðar verður getið) sem Umboðs­maður þings­ins hafði óskað eftir og varða málið. Gögnin eru mikil að vöxtum. Málið hefur marg­sinnis verið rætt í þing­inu, á nefnda­fundum og í ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála. Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi, Inger Støjberg, hefur margoft setið fyrir svörum, bæði í þing­sal og hjá þing­nefndum og þar að auki hafa verið skrifuð ótal minn­is­blöð og álits­gerðir vegna þeirrar ákvörð­unar ráð­herr­ans sem nú er til rann­sóknar.

Yfir­heyrslur rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hófust 14. maí sl. og standa, með hléum, fram eftir sumri eða fram á haust. Fjöl­margir hafa verið boð­aðir í skýrslu­töku hjá nefnd­inni og fremstir í yfir­heyrslu­röð­inni voru emb­ætt­is­menn úr ráðu­neyti og stofn­unum. Síð­ast­lið­inn sunnu­dag, 24. maí, var komið að Inger Støjberg, yfir­heyrslur yfir henni stóðu í tvo daga. Í öllum þeim gagna­haug sem rann­sókn­ar­nefndin hefur undir höndum er ekki að finna, skjal sem Inger Støjberg dró fram í dags­ljósið á sunnu­dag­inn „eins og kan­ínu úr hatti sjón­hverf­inga­manns“ sagði blaða­maður Berl­ingske þegar hann lýsti því sem fram fór. En áður en lengra er haldið er rétt að rifja upp um hvað málið snýst.

Tilkynning eða tilskipun

25. jan­úar 2016 greindu danskir fjöl­miðlar frá því að meðal þeirra sem byggju í búðum hæl­is­leit­enda í Danmörku væru að minnsta kosti nokkur pör, þar sem annar aðil­inn væri undir lög­aldri, sem í Danmörku er 18 ár. Þegar Inger Støjberg sá þessa frétt var hún í bíl sem sat fastur í umferð­ar­teppu í Brussel. Hún varð hopp­andi ill og skrif­aði á Facebook að þessu yrði strax að breyta og hún myndi skipa Útlend­inga­stofnun að bregð­ast við, þegar í stað. Með ráð­herr­anum í bílnum var Lykke Sørensen, þáver­andi yfir­lög­fræð­ingur ráðu­neyt­is­ins og helsti ráð­gjafi ráð­herr­ans, ásamt fleirum.

10. febr­úar 2016 sendi ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála í Danmörku frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna hæl­is­leit­enda og flótta­fólks. Í til­kynn­ing­unni sagði að sam­býl­is­fólk, eða hjón, þar sem annar aðil­inn væri yngri en 18 ára mættu ekki búa saman. Engu skipti þótt parið ætti barn. Án und­an­tekn­inga. Emb­ætt­is­menn í ráðu­neyt­inu sögðu ráð­herr­anum að þessi ákvörðun stæð­ist ekki lög því sam­kvæmt þeim bæri að meta hvert til­felli sjálf­stætt. Þar að auki væri þetta brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Með þessu ert þú að taka ákveðna áhættu“ sagði áður­nefndur yfir­lög­fræð­ingur, Lykke Sørensen. „Þá áhættu er ég til­búin að taka“ svar­aði Inger Støjberg. Vitni voru að þessum orða­skiptum.

Þegar málið var rætt í þing­inu, sem gerð­ist margoft, tal­aði ráð­herr­ann ætíð um frétta­til­kynn­ing­una sem til­skipun. 24. febr­úar 2016, hálfum mán­uði eftir að til­kynn­ingin (til­skip­unin) birt­ist sagð­ist ráð­herr­ann, á þing­fundi, hafa fyr­ir­skipað Útlend­inga­stofn­un­inni (Udlænd­ingestyrel­sen) að breyta vinnu­lagi þannig að eng­inn hæl­is­leit­andi, undir lög­aldri (18 ára) gæti búið með maka eða sam­býl­ingi. Þetta gilti um alla. Þetta svar ráð­herr­ans við spurn­ingu þing­manns liggur fyrir í þing­skjölum.

Útlendingastofnun fór að fyrirmælum ráðherrans

Við yfir­heyrslur rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hefur komið fram að Útlend­inga­stofn­unin fékk aldrei nein fyr­ir­mæli eða leið­bein­ingar frá ráðu­neyt­inu, aðrar en áður­nefnda frétta­til­kynn­ingu en hófst þegar handa við að fram­fylgja því sem þar stóð. Frá 10. febr­úar 2016 til 25. apríl sama ár voru sam­tals 32 pör neydd til að flytja sundur. Á lista Útlend­inga­stofn­unar má lesa að mesti ald­urs­munur var 13 ár, mað­ur­inn 30 ára en stúlkan 17 ára, minnsti ald­urs­munur 1 ár. Yngstu stúlk­urnar á list­anum (6 tals­ins) voru 15 ára, yngstu pilt­arnir (3 tals­ins) 17 ára.

Kvartað til Umboðsmanns þingsins

25.apríl 2016 barst Útlend­inga­stofnun bréf frá Umboðs­manni þings­ins. Þar var spurt um fram­kvæmd „aðskiln­að­ar­fyr­ir­mæl­anna“. Þá hafði par, sem hafði verið neytt til að flytja í sundur, án þess að mál þess væri skoðað og metið sér­stak­lega, kvartað til Umboðs­manns og vísað í lög. Útlend­inga­stofnun til­kynnti að fram­kvæmd­inni yrði sam­stundis breytt. Þetta var upp­haf þess máls sem nú er til rann­sóknar.

Kanínan úr hattinum

Við yfir­heyrslur rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar yfir Inger Støjberg sl. sunnu­dag (24. maí) gerð­ist það að ráð­herr­ann fyrr­ver­andi dró fram minn­is­blað (notat) sem hún sagð­ist hafa sam­þykkt (god­kendt) 9. febr­úar 2016, dag­inn áður en frétta­til­kynn­ingin var send út. Á minn­is­blað­inu stóð, að hægt væri að skoða mál ein­stakra para (at der kunne ske en indi­vi­duel sags­behand­ling). Þetta skjal, minn­is­blaðið, hafði hvorki Inger Støjberg, né nokkur annar, áður nefnt. Og því hafði ekki verið skilað til umboðs­manns, sem þó hafði farið fram á að fá öll skjöl varð­andi málið afhent. Augna­blik­inu þegar Inger Støjberg dró fram skjalið líkti blaða­maður Berl­ingske við það þegar kan­ína birt­ist í hatti töfra­manns. Þegar spurt var hvers vegna þetta skjal hefði ekki verið sent umboðs­manni sagði Inger Støjberg að sam­skiptin við hann hefðu verið í höndum emb­ætt­is­manna og á þeirra ábyrgð.

Frétta­menn sem voru við­staddir yfir­heyrsl­urnar sögðu að rann­sókn­ar­nefndin hefði strax bent Inger Støjberg á að þetta sem á skjal­inu stæði væri í algjörri mót­sögn við allt sem hún hefði áður sagt. Því svar­aði hún ekki beint, en end­ur­tók margoft að þetta nýfram­komna skjal sýndi og sann­aði að hún hefði farið að lögum.

Yfirlögfræðingurinn aftur kallaður fyrir

Eftir að Inger Støjberg hafði dregið fram hið áður óþekkta minn­is­blað kvaddi rann­sókn­ar­nefndin Lykke Sørensen, yfir­lög­fræð­ing­inn fyrr­ver­andi, aftur á sinn fund og spurði út í skjalið. Þar sagð­ist hún eig­in­lega ekk­ert muna eftir þessu skjali. Þótt það hafi verið skrifað og stað­fest af ráð­herra skipti minn­is­blað af þessu tagi ekki máli, með til­liti til laga. Einkum og sér­ílagi þegar ráð­herr­ann hefði marglýst yfir að frétta­til­kynn­ingin, sem und­ir­rituð var af ráð­herr­anum sjálfum, væri til­skipun. „Minn­is­blað á skúffu­botni getur ekki verið grund­vall­ar­skjal“.

Fáorð flokkssystkini

Danskir stjórn­mála­skýrendur, og frétta­menn, hafa fylgst náið með rann­sókn­inni á emb­ætt­is­færslum Inger Støjberg. Blaða­menn Politi­ken og Berl­ingske hafa ítrekað leitað við­bragða flokks­systk­ina hennar á þingi, vegna rann­sókn­ar­innar, en lítt orðið ágengt. Einungis örfáir þing­menn hafa viljað tjá sig um málið og þeir sem á annað borð hafa feng­ist til að ræða við blaða­menn leggja áherslu á að þeir séu sam­mála þeim skoð­unum Inger Støjberg að vilja koma í veg fyrir að ungar stúlkur séu þving­aðar í hjóna­bönd, eða sam­búð. Blaða­menn segja aug­ljóst að Inger Støjberg vilji beina umræð­unni í sam­fé­lag­inu í þessa átt. Rann­sóknin snýst hins vegar um það hvort ráð­herr­ann hafi brotið lög.

Safnað fyrir auglýsingum

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag (26. maí) hófst söfnun sem ætlað er að kosta aug­lýs­ingar til styrktar Inger Støjberg. For­svars­maður þess­arar söfn­unar er Pernille Vermund for­maður stjórn­mála­flokks­ins Nýju borg­ara­legu. Flokk­ur­inn, sem var stofn­aður 2015 og hefur fjóra þing­menn, fylgir harðri hægri­stefnu og telur stefnu ann­arra flokka á danska þing­inu gagn­vart útlend­ingum, sem aðhyll­ast múslim­skar skoð­anir og trú­ar­við­horf, og vilja flytja til Dan­merkur, alltof linku­lega. Slagorð söfn­unn­ar­innar er „Danskerne støtter Støjberg”. Pernille Vermund seg­ist þess full­viss að margir Danir styðji sjón­ar­mið Inger Støjberg, og Nýju borg­ara­legu, varð­andi útlend­inga og barna­hjóna­bönd.

Rannsóknarnefndin er ekki dómstóll

Búast má við að rann­sóknin á emb­ætt­is­færslum Inger Støjberg standi fram á haust. Fjöl­margir emb­ætt­is­menn og ein­hverjir fyrr­ver­andi ráð­herrar eiga eftir að koma á fund rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Að lokum er rétt að geta þess að rann­sókn­ar­nefndin er ekki dóm­stóll. Hennar hlut­verk er ein­ungis að skera úr um hvort ákvarð­anir og emb­ætt­is­færsla Inger Støjberg hafi brotið í bága við lög.

Verði nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sú að Inger Støjberg hafi brotið lög er það þings­ins að ákveða hvort málið fari fyrir lands­dóm (rigs­ret). Slíkur dóm­stóll dæmir ein­göngu í málum sem varða starf­andi, eða fyrr­ver­andi, ráð­herra. Lands­dóm­stóll í Danmörku hefur aldrei komið saman á þess­ari öld og á öld­inni sem leið gerð­ist það fjórum sinnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár