Rjómaterturáðherrann

Umdeild ákvörðun sem Inger Støjberg fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Danmörku tók árið 2016 er nú til sér­stakrar rann­sóknar. Hún er vara­for­maður Venstre og kjör hennar í það emb­ætti gæti reynst flokknum dýr­keypt í næstu kosn­ingum.

Í mars 2017 fagnaði Inger Støjberg því sérstaklega að þá hefði hún, síðan hún varð ráðherra eftir kosningarnar 2015, samtals 50 sinnum hert reglur um málefni hælisleitenda og flóttafólks.
Í mars 2017 fagn­aði Inger Støjberg því sér­stak­lega að þá hefði hún, síðan hún varð ráð­herra eftir kosn­ing­arnar 2015, sam­tals 50 sinnum hert reglur um mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­fólks.

Meðal fyrstu ákvarð­ana rík­is­stjórnar Mette Frederik­sen, eftir að hún tók við völdum 27. júní á síð­asta ári, var að fram skyldi fara rann­sókn á einni til­tek­inni, og mjög umdeildri, ákvörðun sem Inger Støjberg hafði tekið árið 2016. Þá var hún ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke Rasmus­sen. Ákvörðun um slíka rann­sókn þarf að fara fyrir þingið, Fol­ket­inget, þar sem hún var sam­þykkt.

20. jan­úar síð­ast­lið­inn var gengið frá skipan þriggja manna rann­sókn­ar­nefndar undir for­ystu Peter Mørk Thomsen dóm­ara við Eystri-Lands­rétt. Nefnd­inni, sem á að ljúka störfum innan 18 mán­aða frá skip­un­ar­degi, er ætlað að kom­ast að því hver sagði hvað við hvern og hvort ákvörðun, sem ráð­herr­ann bar ábyrgð á, hafi farið á svig við lög. Þessa dag­ana sitja emb­ætt­is­menn í ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála og ráð­herr­ann fyrr­ver­andi fyrir svörum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

[adspot]

Umdeild

Inger Støjberg er einn umdeild­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur. Hún var kjörin á þing fyrir Venstre árið 2001 og varð strax tals­vert áber­andi innan flokks­ins. Anders Fogh Rasmus­sen, sem verið hafði for­sæt­is­ráð­herra frá árinu 2001, sagði af sér þing­mennsku árið 2009 og gerð­ist fram­kvæmda­stjóri NATO.

Lars Løkkie Rasmus­sen sem þá tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fól Inger Støjberg ráðu­neyti atvinnu­mála og jafn­réttis. Eftir hróker­ingar í stjórn­inni árið 2010 var hún ráð­herra atvinnu­mála fram að kosn­ingum 2011, en þá féll rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen. Á kjör­tíma­bil­inu þegar Venstre var í stjórn­ar­and­stöðu 2011 – 2015 var Inger Støjberg einn helsti tals­maður flokks­ins sér­ílagi varð­andi mál­efni inn­flytj­enda og flótta­fólks.

Á þessum árum var mik­ill straumur flótta­fólks til Evrópu, sem dæmi má nefna að árið 2014 ósk­uðu rúm­lega 600 þús­und manns eftir land­vist­ar­leyfi í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Í þeim hópi voru Sýr­lend­ingar fjöl­menn­astir, næst flestir frá Eritreu, en flótta­fólkið kom víða að.

Innan Evr­ópu­sam­bands­ins voru skiptar skoð­anir á hvernig brugð­ist skyldi við. Sumir vildu hrein­lega loka öllum landa­mærum og snúa fóki til baka, öðrum þótti það ófær leið. Enginn gat hins­vegar bent á hald­bærar lausnir. Innan ein­stakra ríkja voru skoð­anir stjórn­mála­manna mjög skiptar. Það lýsir kannski ástand­inu best að það fékk nafnið „Flótta­manna­krísa“ eða „Flótta­manna­vanda­mál“.

Vildi fylgja harðri stefnu

Eftir kosn­ing­arnar 2015 varð Inger Støjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála í rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen. Það kom ekki á óvart og þótt hún væri umdeild í eigin flokki naut hún mik­ils stuðn­ings Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra.

Inger Støjberg hafði marg­sinnis lýst yfir, meðan flokkur hennar var í stjórn­ar­and­stöðu, að Danmörk gæti ekki „opnað flótta­manna­gátt­irnar“ eins og hún komst að orði. Hún taldi stjórn Helle Thorning-Schmidt, sem var við völd 2011 -2015 fylgja stefnu sem hefði í för með sér svo mikla fjölgun flótta­fólks að ekki yrði við neitt ráðið. Þessu vildi Inger Støjberg breyta og lét ekki sitja við orðin tóm.

Rjómatertan

Í mars 2017 fagn­aði Inger Støjberg því sér­stak­lega að þá hefði hún, síðan hún varð ráð­herra eftir kosn­ing­arnar 2015, sam­tals 50 sinnum hert reglur um mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­fólks. Hún lét, af þessu til­efni, taka mynd af sér með stórri rjóma­tertu. Þetta vakti mikla athygli og ekki voru allir jafn hrifnir, það gilti líka um hennar eigin flokks­fé­laga. Einn þing­maður Venstre svar­aði stutt og laggott þegar hann var spurður hvort hann hygð­ist fá sér sneið „ég er í megrun“.

Dönsku fjöl­miðl­arnir köll­uðu Inger Støjberg „rjóma­tertu­ráð­herr­ann“ en hún tók það ekki nærri sér. Sagðist vera stolt af ákvörð­unum sínum, sem allar væru teknar með hag dönsku þjóð­ar­innar að leið­ar­ljósi. Ráð­herr­anum var mjög í mun að fylgja eftir hug­myndum sínum og var nán­ast dag­lega í fjöl­miðlum þar sem ekki voru spöruð stóru orðin. Sumar þeirra ákvarð­ana sem Inger Støjberg tók voru alveg á mörkum hins leyfi­lega, innan lag­ara­mmans og vitað er að hún lenti iðu­lega í deilum við emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins vegna þess. Ein af ákvörð­unum ráð­herr­ans er nú til sér­stakrar rann­sóknar.

[adspot]

Tilkynningin frá 10. febrúar 2016

Eins og áður var nefnt sam­þykkti danska þingið, Fol­ket­inget, sl. haust (2019) að fram skyldi fara sér­stök rann­sókn á einni til­tek­inni ákvörðun Inger Støjberg varð­andi mál­efni flótta­fólks í Danmörku. Um er að ræða til­kynn­ingu sem send var út 10. febr­úar 2016. Þar til­kynnti ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála að hjón þar sem annað eða bæði væru undir 18 ára aldri, og byggju í búðum hæl­is­leit­enda skyldu ekki búa þar saman, heldur sitt í hvoru lagi, jafn­vel þótt þau ættu börn. Án und­an­tekn­inga. Hjón sem búið höfðu saman í búðum hæl­is­leit­enda skyldu þannig aðskilin. Emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins sögðu ráð­herr­anum að þessi ákvörðun stæð­ist ekki lög, og væri þar að auki brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ráðherra stóð fast á sínu. Lögum sam­kvæmt ber að vega og meta hvert ein­stakt til­felli en sam­kvæmt ákvörðun ráð­herr­ans skyldi eitt yfir alla ganga. Án und­an­gengis mats.

Til­kynn­ingin 10. febr­úar 2016 vakti mikla athygli og mörgum þótti ráð­herr­ann þarna hafa farið fram úr sér, eins og stundum er kom­ist að orði. Ráð­herr­ann sagð­ist hins­vegar gera þetta í góðum til­gangi sem væri sá að forða barn­ungum stúlkum úr þving­uðum hjóna­böndum.

Setið fyrir svörum

Eins og nefnt var hér að framan sitja emb­ætt­is­menn og ráð­herr­ann fyrir svörum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar þessa dag­ana. Nefnd­ar­menn ganga hart fram í spurn­ingum sínum, sem helst líkj­ast yfir­heyrslum, og sætta sig ekki við svör eins og „ég man þetta nú ekki“ og „mig minnir“. Danskir fjöl­miðlar fylgj­ast grannt með því sem fram fer og mat þeirra er að vilji Inger Støjberg varð­andi aðskiln­að­ar­til­skip­un­ina hafi verið svo ein­dreg­inn að henni hafi nán­ast þótt emb­ætt­is­menn­irnir þvæl­ast fyrir ákvörð­unum hennar.

Sjálf á Inger Støjberg að mæta á fund rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar í dag, sunnu­dag­inn 24. Maí, og aftur dag­inn eftir, 25. maí.

Hvað ef?

Ef nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar yrði sú að Inger Støjberg hafi brotið lög gæti svo farið að málið kæmi til kasta sér­staks dóm­stóls, lands­dóms, (rigs­ret). Í Danmörku dæmir slíkur dóm­stóll ein­göngu í málum sem varða starf­andi, eða fyrr­ver­andi ráð­herra. Ef svo færi að málið færi fyrir lands­dóm og nið­ur­staðan hans yrði að Inger Støjberg hafi gerst brot­leg verður að telj­ast lík­legt að þarmeð yrði póli­tískur fer­ill hennar á enda.

Hvað með Venstre?

Ljóst er að Inger Støjberg málið, eins og það er kallað veldur for­ystu Venstre flokks­ins nokkrum vanda. Frétta­menn hafa gengið hart að Jakob Ellemann- Jensen for­manni flokks­ins varð­andi afstöðu hans til vara­for­manns­ins. Hann hefur verið fremur var­fær­inn í svörum en þó sagt að hann beri fullt traust til vara­for­manns flokks­ins, Inger Støjberg.

Á hverjum pen­ingi eru tvær hliðar. Ef svo færi að Inger Støjberg hlyti dóm myndi það valda þeim sem fylgja hennar ein­örðu stefnu, varð­andi útlend­inga, von­brigðum. Þeir gætu þá kosið að yfir­gefa flokk­inn í næstu kosn­ingum. Færi svo að nið­ur­staða lands­dóms yrði að hún hefði ekki farið á svig við lög gæti það sömu­leiðis haft áhrif í næstu kosn­ingum. Þeir sem hafa fylgt Venstre að málum en eru ekki hlynntir afstöðu hennar, og voru ósáttir við kjör hennar í vara­for­manns­emb­ættið, myndu þá ef til vill hugsa sér til hreyf­ings og setja kross­inn á kjör­seðl­inum ann­ars staðar næst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár