Að leggja hönd á læri

Það getur reynst dýr­keypt að leggja hönd á læri mann­eskju sem ekki kærir sig um slíkt. Og reyna mörgum árum síðar að leyna því. Slíkt athæfi kost­aði danskan stjórn­mála­mann leið­toga­sætið í flokki sínum.

Morten Østergaard, fyrrverandi leiðtogi Radikale Venstre í Danmörku.
Morten Østergaard, fyrr­ver­andi leið­togi Radikale Venstre í Danmörku. Mynd: EPA

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag 7. októ­ber hélt þing­flokkur Radikale Venstre fund. Leiðtogi flokks­ins Morten Østergaard boð­aði til fund­ar­ins. Þing­flokks­fundir telj­ast sjaldn­ast til tíð­inda en þessi fundur var langt frá því að telj­ast venju­legur. Þing­flokks­fundir fara yfir­leitt fram í fund­ar­her­bergjum í Krist­jáns­borg­ar­höll en þannig var það ekki í þetta sinn. Fundur þing­flokks­ins fór fram í Kon­ung­lega bóka­safn­inu, skammt frá Krist­jáns­borg.

Það var ekki það eina sem var óvenju­legt við þennan fund, hann var mjög langur, stóð í rúma sex klukku­tíma. Þetta töldu frétta­menn merki um að eitt­hvað sér­stakt væri á seyði. Sem kom á dag­inn. Og átti sér aðdrag­anda.

Fjölmiðlakonan Sofie Linde

Sunnu­dags­kvöldið 6. sept­em­ber sendi danska sjón­varps­stöðin TV2 út skemmti­þátt­inn Zulu Comedy Galla, árlega upp­skeru­há­tíð danskra grín­ara. Kynnir og þátta­stjórn­andi var Sofie Linde. Sofie þessi Linde er þekkt leik­kona, og þátta­stjórn­andi í heima­land­inu, Danmörku. Hún greindi frá því í ávarpi sínu í þessum þætti að þegar hún var fyrir skömmu komin til starfa hjá danska útvarp­inu, DR, hefði þekktur sjón­varps­maður,sem hún nafn­greindi ekki, komið til hennar á jólafagn­aði starfs­manna og sagt orð­rétt: „Hvis du ikke går med ud og sutter min pik, så fucking ødelæg­ger jeg din karri­ere.“

[links]Þessi hót­un­ar­orð þarfn­ast ekki þýð­ingar. Sofie Linde sagð­ist strax hafa sagt nei, en hótun þessa þekkta sjó­varps­manns hafði hins­vegar engin áhrif á starfs­frama Sofie Linde. En frá­sögn hennar vakti mikla athygli. Daginn eftir útsend­ingu þátt­ar­ins skrif­uðu konur sem starfa á TV2 bréf til stuðn­ings Sofie Linde og á næstu dögum skrif­uðu rúm­lega 1600 konur, fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn á dönskum fjöl­miðlum, undir bréfið.

Flóðbylgja

Ekki er ofmælt að frá­sögn Sofie Linde og stuðn­ings­bréfið hafi hrundið af stað flóð­bylgju. Stjórn­endur fjöl­margra, fjöl­miðla, fjár­mála­fyr­ir­tækja, versl­ana­sam­steypa og mennta­stofn­ana, svo eitt­hvað sé nefnt, lýstu yfir að þeir myndu bregð­ast við, til að „upp­ræta þetta ill­gresi“ eins og einn for­stjóri komst að orði, áreitni gegn konum. Og stjórn­mála­menn­irnir tóku undir. Mest áber­andi í þeim hópi voru þing­menn Radikale Venstre. Þeir beindu einkum spjótum sínum að Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra. Ástæða þess er sú að árið 2008, þegar hann var 34 ára, og sat á þingi, sæng­aði hann hjá 15 ára gam­alli stúlku. Þetta gerð­ist í gleð­skap að lok­inni ráð­stefnu ungra jafn­að­ar­manna. Jeppe Kofod sagði að fram­koma sín hefði verið óaf­sak­an­leg, þarna hefði áfengi og dóm­greind­ar­leysi tekið völdin.

Samira Nawa, tals­maður Radikale Venstre í jafn­rétt­is­málum á danska þing­inu, Fol­ket­inget, sagði að maður sem hefði sýnt slíkt dóm­greind­ar­leysi og not­fært sér stöðu sína gagn­vart ungri stúlku, ætti ekki að vera utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur. Samira Nawa sagði að Radikale Venstre myndi beita sér fyrir rann­sókn á, og reyna að upp­ræta kynja­mis­rétti og úrelt við­horf í garð kvenna, á þing­inu. „Við viljum vera í for­ystu í þessum efnum.“

Þingkonan Lotte Rod

Þann 16. sept­em­ber greindi Lotte Rod, þing­maður Radikale Venstre opin­ber­lega frá því að áhrifa­menn (mænd med magt) í Radikale Venstre og í ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins hefðu káfað á sér (taget paa hende) og hún hefði þurft að ýta óvel­kominni hönd af lær­inu á sér. „Það gerð­ist árið 2010, ég var þá 25 ára. Og ég gæti nefnt fleiri til­vik.“

Sofie Carsten Nielsen leið­togi Radikale Venstre sagði frá því að áður­nefndan dag, þann 16. sept­em­ber, hefði Lotte Rod greint sér frá því hvaða maður það væri sem káf­aði á lær­inu á henni. Hún hefði hins­vegar lofað Lotte Rod að segja ekki frá því hver þessi maður væri.

Leiðtoginn lofar rannsókn

Á lands­fundi Radikale Venstre 19. sept­em­ber, þremur dögum eftir frá­sögn Lotte Rod af áreitn­inni, sagði Morten Østergaard að þing­flokk­ur­inn yrði að sýna ábyrgð og upp­ræta allt mis­rétti og kyn­ferð­is­lega áreitni í flokknum. Þetta þótti lands­fund­ar­full­trúum þunnur þrett­ándi og margir kröfð­ust þess að kom­ist yrði til botns í mál­inu. Ef ekki yrði gert opin­bert hver það væri sem hefði á sínum tíma strokið lærið á Lotte Rod lægju allir undir grun og slíkt væri óþol­andi. 5. októ­ber lýsti Morten Østergaard því yfir að utan­að­kom­andi aðili yrði feng­inn til að rann­saka umfang kynja­mis­réttis (sex­isme) innan Radikale Venstre.

Í grein sem birt­ist í Jót­land­s­póst­inum sama dag krafð­ist Martin Lidegaard, einn þing­manna flokks­ins, nán­ari skýr­inga. Daginn eftir, 6. októ­ber, sagði Morten Østergaard að sá sem strauk lærið á Lotte Rod hefði fengið áminn­ingu (påtale). Í við­tali við Ekstra Bladet þennan sama dag sagði Morten Østergaard að sá sem hefði fengið áminn­ing­una gæti vel orðið ráð­herra, ef svo bæri undir. Enn hafði ekki verið upp­lýst hver það var sem strauk lærið á Lotte Rod árið 2010. Þess var hins­vegar ekki langt að bíða að svo yrði.

Langi fundurinn

Mið­viku­dag­inn 7. októ­ber hitt­ist þing­flokkur Radikale Venstre á Kon­ung­lega bóka­safn­inu, eins og áður var getið. Á fund­inum sem stóð í sex klukku­stundir gengu þing­menn hart að leið­toga flokks­ins, Morten Østergaard, að greina frá því hver það væri sem hefði strokið lærið á Lotte Rod árið 2010 og fengið áminn­ingu. Og gæti, að mati hans, vel orðið ráð­herra. Nú átti Morten Østergaard engra kosta völ. Hann greindi þing­flokknum frá því að sá sem hefði káfað á læri Lotte Rod væri hann sjálfur. Jafn­framt sagði hann af sér sem leið­togi flokks­ins. Þegar við­staddir höfðu náð and­anum, eins og einn þing­mað­ur­inn komst að orði, fór fram leið­toga­kjör. Sofie Carsten Nielsen fékk 12 atkvæði en Martin Lidegaard, sem einnig bauð sig fram, fékk 4 atkvæði.

Allan tím­ann sem fund­ur­inn stóð biðu frétta­menn fyrir utan Kon­ung­lega bóka­safnið. Seint og um síðir birt­ist svo Morten Østergaard og greindi frá því að hann hefði sagt af sér sem leið­togi Radikale Venstre, það væri hann sem hefði strokið lærið á Lotte Rod árið 2010. Aðspurður sagð­ist Morten Østergaard ekki ætla að segja af sér þing­mennsku. Örfáum mín­útum síðar var fréttin um afsögn­ina á for­síðum flestra, ef ekki allra, danskra fjöl­miðla.

Ekki bara lærið á Lotte Rod

Að morgni föstu­dags­ins 9. októ­ber, innan við tveimur sól­ar­hringum eftir afsögn­ina, birti Morten Østergaard færslu á facebook síðu sinni. Þar greindi hann frá því að auk Lotte Rod hefðu þrjár konur, sem hann nafn­greindi ekki, sakað sig um áreitni. Hann tók það fram að hann hefði beðið Lotte Rod afsök­unar og hún hefði tekið afsök­un­ar­beiðni hans góða og gilda.

Skömmu síðar ræddi nýi leið­tog­inn Sofie Carsten Nielsen stutt­lega við frétta­menn. Hún sagð­ist í senn vera sorg­mædd og reið, hún hefði ekki haft hug­mynd um ásak­anir þess­ara þriggja kvenna fyrr en hún sá facebook færsl­una frá Morten Østergaard. Þegar einn frétta­mann­anna spurði hvort honum yrði vært í flokknum og á þingi fyrt­ist Sofie Carsten Nielsen við og sagði að þetta væri ekki brýn­asta við­fangs­efnið þessa stund­ina.

Viðbrögðin

Danskir fjöl­miðlar hafa síð­ustu daga fjallað ítar­lega um afsögn Morten Østergaard og ástæður hennar. Hvort hann hefði átt, og þurft, að segja af sér. Þótt margir telji að fram­koma Morten Østergaard í garð Lotte Rod hafi ekki verið í lagi séu það miklu fremur við­brögð hans eftir að málið komst í hámæli sem hafi orðið til þess að hann hafi ekki átt ann­ars úrkosti en segja af sér. Það er að segja að hann skyldi bein­línis ljúga að félögum sínum á þingi, og almenn­ingi í blaða­við­tali. Slíkt gangi ekki.

Um það hversu alvar­legt það sé að strjúka læri óvið­kom­andi eru skoð­anir skiptar. Sumum þykir slíkt alvar­legt en aðrir, ekki síður konur en karlar, segja það ótrú­lega við­kvæmni að kippa sér upp við slíkt. Þingmenn hafa, enn sem komið er, lítið viljað tjá sig en einn úr þeirra hópi sagði að það yrði erfitt fyrir Radikale Venstre að reyna að vera í far­ar­broddi í bar­átt­unni gegn áreitni og kynja­mis­rétti í þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár