Fyrsti kvenkyns forseti Ferðafélagsins segir af sér vegna framferðis stjórnarkarla

Anna Dóra Sæþórs­dóttir, for­seti Ferða­fé­lags Íslands, hefur sagt af sér sem for­seti félags­ins sem og úr félag­inu, vegna van­getu stjórnar að taka á málum sem snúa að áreitni og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Eitt málið varðar fyrr­ver­andi stjórn­ar­mann í félag­inu.

Anna Dóra Sæþórsdóttir, fyrsta konan sem gegnir embætti Ferðafélags Íslands í 94 ára sögu þessu, hefur sagt af sér vegna stjórnarhátta og siðferðislegra gilda sem ganga gegn hennar eigin gildum
Anna Dóra Sæþórs­dóttir, fyrsta konan sem gegnir emb­ætti Ferða­fé­lags Íslands í 94 ára sögu þessu, hefur sagt af sér vegna stjórn­ar­hátta og sið­ferð­is­legra gilda sem ganga gegn hennar eigin gildum

Anna Dóra Sæþórs­dóttir, fyrsta konan í 94 ára sögu Ferða­fé­lags Íslands sem gegnir emb­ætti for­seta félags­ins, hefur sagt af sér emb­ætti. Hún var kjörin for­seti í júní í fyrra. Afsögn hennar byggir á því að hún getur ekki starfað í félagi þar sem stjórn­ar­hættir og sið­ferð­is­leg gildi, sem ganga þvert á hennar eigin gildi, ráða ríkjum. Anna Dóra greindi frá afsögn sinni í færslu á Facebook í morgun þar sem hún birtir afrit af til­kynn­ingu sem hún hefur sent Ferða­fé­lagi Íslands.

Í til­kynn­ing­unni segir hún að fljót­lega eftir að hún tók við sem for­seti félags­ins fóru henni að ber­ast upp­lýs­ingar um ýmis mál sem ekki hafði verið brugð­ist við af hendi félags­ins. „Heldur virt­ist upp­lýs­ingum ítrekað hafa verið stungið undir stól, hvort sem þær vörð­uðu ásak­anir um áreitni og gróft kyn­ferð­is­legt ofbeldi eða athuga­semdir um rekstur félags­ins. Þegar ég fór að beita mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum og öðrum fór að bera á brestum í sam­starfi mínu við stjórn og fram­kvæmda­stjóra,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.

Alvar­leg­ustu málin snertu ein­stak­linga sem höfðu gerst brot­legir á siða­reglum félags­ins eða verið ásak­aðir um áreitni eða gróft kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Anna Dóra segir að æðstu stjórn­endur félags­ins höfðu haft upp­lýs­ingar um þessi mál í lengri tíma, án þess að taka á þeim.

„Þvert á móti fengu þeir sem þessum sökum voru bornir að starfa áfram sem far­ar­stjórar á vegum félags­ins,“ segir Anna Dóra.

Eitt málanna snýr að fyrrverandi stjórnarmanni og yfirlögfræðingi hjá Landsvirkjun

Eitt mál­anna varð­aði stjórn­ar­mann í félag­inu, Helga Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ing hjá Lands­virkjun. Helgi hætti störfum hjá Lands­virkjun í byrjun nóv­em­ber í kjöl­far þess að hann fékk form­lega áminn­ingu í starfi fyrir hegðun gagn­vart sam­starfs­konu. Helgi sagði sig úr stjórn Ferða­fé­lags Íslands á sama tíma.

„Ég beitti mér fyrir því að tekið yrði á þessum málum af festu og setti af stað athugun á þeim, sem og end­ur­skoðun á stefnu og ferlum félags­ins þegar kemur að slíkum málum. Í kjöl­farið voru þessi mál til lykta leidd, og það síð­ast­nefnda með því að við­kom­andi stjórn­ar­maður sagði sig úr stjórn,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.

Ágrein­ingur vegna með­höndl­unar þess­ara mála komu upp í stjórn­inni, Önnu Dóru til mik­illar undr­unar, og segir hún að innan stjórn­ar­innar hafi verið ein­stak­lingar sem ekki vildu taka á þeim. Sam­starfsörð­ug­leikar hafa verið í stjórn­inni síðan.

Helgi átti að koma aftur inn í stjórn þar sem hann væri „vinur okkar“

[links]„Ég taldi hins vegar að það væri ætlun stjórnar að halda ótrauð áfram eftir afgreiðslu þeirra. Mér kom því á óvart þegar ákveðnir stjórn­ar­menn vildu fljót­lega taka aftur upp málið sem varð­aði stjórn­ar­mann­inn fyrr­ver­andi, fáum mán­uðum eftir að það var til lykta leitt með úrsögn hans úr stjórn félags­ins. Einn af þessum stjórn­ar­mönnum, sem er góð­vinur þessa fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns, hefur beitt sér af hörku fyrir því að stjórn­ar­mað­ur­inn fyrr­ver­andi fái aftur að starfa fyrir hönd félags­ins, þrátt fyrir að engin mál­efna­leg eða við­skipta­leg rök séu fyrir því. Sá sem sagði af sér hefur enga sér­hæfða þekk­ingu til starfa innan félags­ins, sem fjöldi ann­arra getur ekki innt jafn vel af hendi. Ávinn­ingur af slíkri ráð­stöfun væri því eng­inn fyrir Ferða­fé­lagið en myndi hins vegar valda félag­inu orð­spors­á­hættu og mögu­lega aftra fólki frá þátt­töku í ferðum félags­ins, auk hætt­unnar á því að fyrri hegðun myndi end­ur­taka sig og aðrar konur yrðu fyrir áreitni,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.

Helstu rökin sem notuð voru til að rétt­læta end­ur­komu Helga í stjórn­ina voru að hann væri „vinur okkar“ og að „við skuld­uðum honum“, að því er segir í færslu Önnur Dóru. „Það er að mínu mati óeðli­legt að stjórn­ar­fólk taki þátt í umræðu og ákvörð­unum um vini sína og beiti aðstöðu sinni til að veita þeim sér­staka fyr­ir­greiðslu.“

Nýtt mál snýr að öðrum stjórnarmanni

Önnu Dóru bár­ust nýlega upp­lýs­ingar um mál þar sem snertir annan stjórn­ar­mann í félag­inu sem varðar áreitni og ósæmi­lega hegðun í skipu­lagðri ferð á vegum félags­ins. Málið var ekki með­höndlað í sam­ræmi við stefnu félags­ins.

„Þegar ég fékk veður af mál­inu og óskaði eftir upp­lýs­ingum um það, voru við­brögðin þau að hafa uppi óbeinar hót­anir gagn­vart far­ar­stjóra ferð­ar­innar, auk þess sem haft var sam­band við vin­konu kon­unnar sem fyrir áreit­inu varð. Þeim var til­kynnt að það myndi hafa afleið­ingar ef þetta mál yrði rætt frekar,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.

Önnur mál hafa einnig valdið ágrein­ingi og sam­starfsörð­ug­leikum innan stjórnar, meðal ann­ars sem snúa að almennum rekstri félags­ins og stjórn­ar­háttum þess. Anna Dóra segir að ítrekað hafi verið kvartað undan spurn­ingum hennar um rekstur félags­ins og henni sagt þess í stað að ein­beita sér að þeim þáttum sem hún hafi sér­þekk­ingu á, „sem sé ferða­málum, nátt­úru­vernd og umhverf­is­málum.“ Þetta hafði þau áhrif að hún fór að veigra sér við því að spyrja spurn­inga til að halda frið­inn. „Í því sam­hengi er vert að nefna að ein af meg­in­skyldum stjórnar er að hafa eft­ir­lits­hlut­verk með stjórn­endum og starf­semi félags­ins og slíkt er ómögu­legt ef stjórn stuðlar að menn­ingu og and­rúms­lofti þar sem spurn­ingar eru illar séðar,“ segir Anna Dóra í færslu sinni.

Hún telur ljóst að innan stjórnar og meðal stjórn­enda sé fólk sem ber ekki hags­muni félags­ins og félags­manna fyrir brjósti. „Áherslan hjá þessu fólki virð­ist vera að við­halda ákveðnu valda­jafn­vægi þar sem emb­ættum og verk­efnum er úthlutað til stjórn­ar­fólks og vina og ekki er tekið á málum sem snerta þá sem tengj­ast þessum ein­stak­lingum. Þessi hópur bregst ókvæða við þeim sem reyna að breyta því hvernig félagið vinnur ef slíkt kynni að raska valda­jafn­væg­inu.“

Hún segir valda­jafn­vægið end­ur­spegl­ast hvað best í sam­setn­ingu stjórnar. „Í stjórn félags­ins og starfs­manna­hópi situr fólk sem teng­ist sterkum böndum, ýmist í gegnum það að hafa setið mjög lengi í stjórn­inni, sumir vel á annan ára­tug, eða með fjöl­skyldu- og vina­böndum. Til­raunum til að breyta þessu í aðdrag­anda síð­asta aðal­fundar var illa tekið. Formaður kjör­nefndar, vinur þess stjórn­ar­manns sem sagði sig úr stjórn­inni vegna metoo-mála, virti að vettugi óskir mínar um að inn í stjórn­ina kæmi ung kona og lagði þess í stað til að vinur fram­kvæmda­stjóra félags­ins yrði stjórn­ar­maður. Gekk það eftir.“

Anna Dóra segir að ákveðið stjórn­ar­fólk hafi í kjöl­farið sýnt henni óvild og dóna­skap og hefur reynt að úti­loka hana frá starfi félags­ins. Þetta komi hvað skýr­ast fram í bréfi sem hún fékk frá meiri­hluta stjórnar þann 1. júní síð­ast­lið­inn þar sem henni var bannað að vera í sam­skiptum við fram­kvæmda­stjóra, starfs­fólk skrif­stofu félags­ins og annað stjórn­ar­fólk næstu mán­uði. „Ég átti engu að síður að sitja áfram sem for­seti með þeirri ábyrgð sem í því felst.“ Segir hún bréfið vera birt­ing­ar­mynd þeirra stjórn­ar­hátta sem tíðkast innan félags­ins og fram­komu meiri­hluta stjórnar í minn garð.

Anna Dóra seg­ist ekki vilja starfa í félagi þar sem stjórn­ar­hættir og sið­ferð­is­leg gildi sem ganga þvert á hennar eigin gildi ráða ríkjum. „Ég hef enn fremur ekki áhuga á að starfa með hópi þar sem úti­lokun og dóna­skapur eru talin ásætt­an­leg hegðun. Það er von mín að starfs­hættir félags­ins breyt­ist því að sam­fé­lagið hefur breyst og mik­il­vægt er að stærsta úti­vi­star­fé­lag lands­ins taki mið af þeim sið­ferð­is­gildum sem ríkja í þjóð­fé­lag­inu. Þar sem ekki virð­ist vera vilji innan stjórnar félags­ins að breyta þessu segi ég hér með af mér sem for­seti Ferða­fé­lags Íslands.“

Anna Dóra seg­ist vona að félagar hennar í Ferða­fé­lagi Íslands muni á kom­andi miss­erum beita sér fyrir breyttum starfs­háttum og sið­bót innan félags­ins. „Þangað til að svo verður hef ég ekki áhuga á því að starfa frekar innan félags­ins og segi mig hér með einnig úr félag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár