Helgi segir framkomu sína gagnvart konum hafa verið óásættanlega og iðrast

Helgi Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Lands­virkj­unar, biðst fyr­ir­gefn­ingar á fram­komu, orð­færi og hegðun sinni sem hafi látið sam­ferð­ar­fólki hans „líða illa í návist minni“.

Helgi Jóhann­es­son, sem nýverið sagði af sér sem yfir­lög­fræð­ingur Lands­virkj­unar og hefur verið sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni gagn­vart nokkrum konum, birti stöðu­upp­færslu á Facebook í kvöld þar sem hann biðst fyr­ir­gefn­ingar á fram­komu, orð­færi og hegðun sinni sem hafi látið sam­ferð­ar­fólki hans „líða illa í návist minni“.

Stundin greindi nýverið frá því að Helgi hefði látið af störfum hjá Lands­virkjun eft­ir að kona hafði kvart­að und­an hegð­un hans. Sú hegð­un sner­ist um óvið­eig­andi orð auk þess sem hann strauk henni í fram­an gegn vilja henn­ar. Í gær greindi fjöl­mið­ill­inn frá öðrum máli þar sem Helgi var meðal ann­ars ásak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni og er það mál til með­ferðar hjá Ferða­fé­lagi Íslands, þar sem Helgi hefur starfað sem leið­sögu­maður.

Í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld var svo rætt við konu, Telmu Hall­dórs­dóttur, sem sagði sögu lát­innar vin­konu sinnar, Krist­ínar Pét­urs­dóttur, sem sner­ist um kyn­ferð­is­lega áreitni af hálfu Helga um síð­ustu alda­mót. Hægt er að lesa frá­sögn Telmu sem hún birti nýverið á Facebook hér að neðan.

Helgi segir í stöðu­upp­færsl­unni að ásetn­ingur hans hafi aldrei verið sá að meiða eða særa. Honum hafi þó orðið það ljóst að hann hafi „oft og tíðum farið óvar­lega í sam­skiptum, nokkuð sem ég hugs­aði ekki út í þegar atvik áttu sér stað. Fyrir það iðr­ast ég inni­lega.“

[adspot]Hann segir það ekki af hroka eða af því að hann taki ekki umræð­una alvar­lega sem hann hafi ekki tjáð sig opin­ber­lega fyrr, því það geri hann sann­ar­lega. „Ég hef hrein­lega ekki treyst mér inn í umræð­una. Nefnd hafa verið ákveðin atvik og vafa­laust hef ég með orðum eða athöfnum gerst sekur um slíkt í fleiri til­vikum. Ég ætla ekki að fara efn­is­lega ofan í þær ásak­anir sem á mig hafa verið bornar. Það hjálpar engum að deila um þær atvika­lýs­ingar.“

Helgi seg­ist vita að ein­föld afsök­un­ar­beiðni og iðrun virð­ist létt­væg und­an­komu­leið úr þeim sár­indum sem hann hafi valdið. „ Ég hef þó ekki annað fram að færa og bið þess inni­lega að fyr­ir­gefn­ing­ar­beiðni mín verði tekin til greina. Ég er hvenær sem er til­bú­inn að hitta hvern þann sem ég hef mis­gert við með hegðun minni og ræða málið og ítreka afsök­un­ar­beiðni augliti til auglitis.“

Í lok stöðu­upp­færsl­unnar seg­ist Helgi hafa verið að vinna í sjálfum sér und­an­farna mán­uði með aðstoð fag­að­ila. „Það er ævi­langt verk­efni að verða að betri manni og ég er að taka það verk­efni alvar­lega.“

Helgi var ráð­inn til Lands­virkj­unnar í júní 2019. Áður hafði hann verið einn af eig­endum LEX lög­manns­stofu um ára­bil. Þegar Helgi til­kynnti sam­starfs­fólki sínu hjá Lands­virkjun um starfs­lok sín þann 25. októ­ber síð­ast­lið­inn, eftir rúm­lega tveggja ára starf, í tölvu­pósti þá minnt­ist hann ekk­ert á að kvartað hefði verið undan hegðun hans.

Tölvupósturinn sem Helgi sendi til samstarfsfólks

Ágætu sam­starfs­menn.

Ég vil upp­lýsa ykkur um að ég hef af per­sónu­legum ástæðum samið um starfs­lok hjá Lands­virkjun. Tíminn hér hefur verið mjög lær­dóms­ríkur og ánægju­legur, en á sama tíma hef ég lent í óbæri­legum áskor­unum í einka­líf­inu. Ég hef enn ekki ákveðið hvað ég tek mér fyrir hendur en er þess full­viss að ýmis tæki­færi eru fyrir hendi í þeim efnum. Ég vil þakka ykkur fyrir frá­bær við­kynni og sam­starf og óska ykkur öllum og fyr­ir­tæk­inu alls hins besta í fram­tíð­inni.

Kveðja, HJ

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár