Fjölmiðlakonurnar og karlaáreitið

Frásögn Sofie Linde í skemmti­þætti á TV2 í Danmörku af fram­komu karla gagn­vart henni, hefur vakið mikla athygli. Rúmlega 1.600 núver­andi og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­konur hafa í kjöl­farið lýst stuðn­ingi við Sofie Linde og hælt henni fyrir að segja frá.

Sunnu­dags­kvöldið 6. sept­em­ber síð­ast­liðið sendi danska sjón­varps­stöðin TV2 Zulu út skemmti­þátt­inn Zulu Comedy Galla. Þátt­ur­inn, sem er eins konar árleg upp­skeru­há­tíð danskra grín­ara, hefur verið á dag­skrá Zulu rás­ar­innar um margra ára skeið og dregur alltaf til sín marga áhorf­endur. Stjórn­andi þátt­ar­ins er jafnan ein­hver þjóð­þekktur Dani, oft­ast leik­ari eða skemmti­kraftur. Stjórn­and­inn í ár var Sofie Linde. Hún er leik­ari en í heima­land­inu þekkt­ari sem stjórn­andi sjón­varps­þátta meðal ann­ars söng­keppn­inni X Factor sem um ára­bil var í danska sjón­varp­inu, DR, en er nú á sjón­varps­stöð­inni TV2.

X Factor er einn vin­sæl­asti dag­skrár­liður í dönsku sjón­varpi, og er eins og áður sagði söng­keppni, með útslátt­ar­fyr­ir­komu­lagi, og í lokin stendur einn kepp­andi, sig­ur­veg­ar­inn, eftir. Þátt­tak­endur hafa mis­mikla reynslu, en eru allir áhuga­menn á söngsvið­inu. Stundum hefur sigur í X Factor opnað þátt­tak­endum dyr, komið þeim á kortið eins og það er kallað, en það er þó langt í frá algilt. Þegar X Factor keppnin flutt­ist frá DR yfir á TV2 fylgdi kynn­ir­inn Sofie Linde með og það gerði einnig Thomas Blachman, einn þriggja dóm­ara keppn­innar. Thomas þessi er tón­list­ar­maður og þekktur fyrir að skafa ekki utan af hlut­unum þegar hann dæmir kepp­endur.

Zulu Comedy Galla 2020

Eins og áður var nefnt var Zulu Comedy Galla 2020 sýnt á Zulu rás TV2 fyrir viku síðan. Þátt­ur­inn var tek­inn upp í Óperunni í Kaup­manna­höfn 26. ágúst. Þegar kynn­ir­inn, Sofie Linde, birt­ist á svið­inu sáu við­staddir, sem vegna kór­ónu­veirunnar voru nú mun færri en venju­lega, að Sofie Linde var kona ekki ein­sömul. Hún til­kynnti strax í byrjun að þetta væri ekki mis­sýn, í bumbunni væri barn. Nánar til­tekið stúlka.

Þótt Zulu Comedy Galla sé alla jafna skemmti­þáttur þar sem grín­ar­arnir, og þátta­stjórn­and­inn, láta vaða á súðum var það ekki spaugið og sprellið sem vakti mesta athygli að þessu sinni. Hefð er fyrir því að stjórn­andi skemmt­un­ar­innar flytji eins konar ávarp, oft­ast í gam­an­sömum tóni. Þannig var það ekki í þetta skipti. Sofie Linde tal­aði um tvennt, sem til þessa hefur verið hálf­gert feimn­is­mál meðal dansks fjöl­miðla­fólks. Launamál og áreitni í garð kvenna.

Launin

Thomas Blachman, sem minnst var á hér að framan er óum­deild stjarna X Factor þátt­anna og oft kall­aður seg­ull­inn sem dregur fólk að skjánum. Það segir sig sjálft að slíkur seg­ull selur sig dýrt, en launa­mál þessa fólks eru sjaldan til umræðu. Vitað er að Thomas Blachman fær vel greitt fyrir vinnu sína og greint var frá því í fréttum þegar annar dóm­ari í X Factor meðan þátt­ur­inn var á DR, Remee Jackman sem er þekktur tón­list­ar­maður, vildi fá sömu laun og Thomas Blachman. Hvernig það mál end­aði hefur ekki verið upp­lýst, en Remee fylgdi ekki með þegar þátt­ur­inn flutt­ist yfir á TV2.

Þeir sem fylgd­ust með útsend­ingu á Zulu Comedy Galla sl. sunnu­dags­kvöld áttu lík­lega ekki von á að þar yrðu launa­mál til umræðu. En Sofie Linde „lét vaða“ eins og dönsku miðl­arnir orð­uðu það. Hún sagði frá því að laun hennar sem kynnis og þátta­stjórn­anda væru aðeins brot af því sem „stjörnu­dóm­ar­inn“ í X Factor fengi. Hún hefði farið fram á að fá sem svar­aði helm­ingi þeirrar greiðslu sem „stjörnu­dóm­ar­inn“ fær fyrir sína vinnu. Þótt Sofie Linde segði það ekki berum orðum fór ekki á milli mála að ástæð­una fyrir þessum mikla launa­mun mætti rekja til þeirrar stað­reyndar að hún er kona.

Þessi ummæli vöktu mikla athygli. En Sofie Linde lét ekki þar með staðar numið.

Áreitni og hótanir

Sofie Linde, sem er þrí­tug, sagði frá því að þegar hún var átján ára og nýbyrjuð að vinna hjá DR, danska sjón­varp­inu, mætti hún í mat­ar­veislu starfs­manna (julefro­kost) í byrjun des­em­ber. Þar hefði þekktur sjón­varps­maður, sem hún nafn­greindi ekki, komið til hennar og sagt orð­rétt: „Hvis du ikke går med ud og sutter min pik, så fucking ødelæg­ger jeg din karri­ere.“ Þessi hót­un­ar­orð þarfn­ast ekki þýð­ingar. Sofie Linden sagði að hún hefði strax sagt nei, og ekki einu sinni hugsað út í að þessi þekkti sjón­varps­maður gæti hugs­an­lega haft áhrif á störf hennar og fram­tíð­ar­mögu­leika.

Viðbrögðin og stuðningsbréfið

Þessi frá­sögn vakti gríð­ar­lega athygli og Sofie Linde og ummæli hennar voru á for­síðum allra danskra fjöl­miðla dag­inn eftir útsend­ingu Zulu Comedy Galla. Blaða­maður Politi­ken lýsti því þannig að „flóð­gáttir hafi opn­ast“, sú lýs­ing á vel við og þessi mál hafa verið áber­andi í miðl­unum alla síð­ast­liðna viku.

Daginn eftir útsend­ingu þátt­ar­ins skrif­uðu konur sem starfa á TV2 opið bréf til Sofie Linde. Þar sem þær lýsa stuðn­ingi við ummæli hennar, og segja að þau við­horf sem hún lýsti í þætt­inum séu enn til staðar. Í bréf­inu segir að Sofie Linde hafi verið gagn­rýnd fyrir að nefna ekki nafn manns­ins sem hót­aði henni, en bréf­rit­arar segja það rétta ákvörðun, þetta mál snú­ist nefni­lega ekki um til­tek­inn ein­stak­ling, og ekki eigi að tala um hvað eigi, og þurfi, að gera ef konur verða fyrir áreitni af þessu tagi. Umræðan eigi að snú­ast um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir áreitn­ina. Ábyrgðin er þeirra sem ekki þekkja hvar mörkin liggja og sömu­leiðis vinnu­veit­enda sem þurfa að setja skýrar reglur og tryggja að konur geti sagt frá, án þess að þurfa að ótt­ast að missa vinn­una.

Eins og áður sagði voru það konur á TV2 sjón­varps­stöð­inni sem skrif­uðu stuðn­ings­bréfið. Næstu daga skrif­uðu rúm­lega 700 konur sem starfa á dönskum fjöl­miðlum og tengdum fyr­ir­tækjum undir bréfið. Þegar lokað var fyrir und­ir­skriftir á hádegi í gær, 12. sept­em­ber, höfðu sam­tals 1618 konur, sem allar hafa starfað við fjöl­miðla, skrifað undir bréfið. Tugir kvenna sem starfa, eða hafa starfað, við danska fjöl­miðla hafa jafn­framt greint frá hlið­stæðum atvikum og Sofie Linde greindi frá á sviði Óper­unnar.

Yfirmenn stóru dönsku fjöl­miðl­anna hafa allir lýst yfir að þeir muni taka málið upp við starfs­fólk sitt. Og ekki láta sitja við orðin tóm.

Ráðherra bregst við

Ummæli Sofie Linde og við­brögð vegna þeirra hafa ekki farið fram­hjá stjórn­mála­mönn­unum.

Í gær, 12. sept­em­ber, greindi Mogens Jensen, ráð­herra jafn­rétt­is­mála frá því, í við­tali við Ritzau frétta­stof­una, að hann hyggð­ist á næst­unni ræða við Sofie Linde og fleiri fjöl­miðla­konur. Jafn­framt ætl­aði að hann að hitta for­svars­menn atvinnu­rek­enda og sam­taka kvenna í dönsku atvinnu­lífi. Jafn­framt hyggð­ist ráð­herr­ann taka málið upp í þing­inu, Fol­ket­inget. Ráð­herr­ann sagði að þótt lög og leið­bein­ingar væru góð og gild skipti það sem hann kall­aði „vinnu­staða­kúltúr“ mestu máli. Það væri jafn­framt það sem erf­ið­ast yrði að breyta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár