Bókavörðurinn blés á Kínverjana

Þegar Norðmenn buðu 40 kín­verskum skíða­mönnum að æfa fyrir vetr­ar­ólymp­íu­leik­ana sem fara fram í Kína 2022, fékk norskur bóka­vörður kín­verska emb­ætt­is­menn í heim­sókn. Það var ekki kurt­eis­is­heim­sókn.

Þann 8. októ­ber árið 2010 til­kynnti norska nóbels­nefndin að kín­verska skáldið og and­ófs­mað­ur­inn Liu Xiaobo fengi frið­ar­verð­laun Nóbels það árið. Í til­kynn­ingu nóbels­nefnd­ar­innar sagði að Liu Xiaobo fengi verð­launin fyrir langa bar­áttu fyrir grund­vall­ar­mann­rétt­indum almenn­ings í Kína. Liu Xiaobo hefði árum saman verið í far­ar­broddi frið­sam­legrar bar­áttu og að mati nefnd­ar­innar væri eng­inn betur að þessum verð­launum kom­inn.

Liu Xiaobo, sem var fæddur 1955, stund­aði nám í bók­menntum og lauk meist­ara­prófi frá Beishida háskól­anum í Beijing árið 1984 og fékk í fram­hald­inu kenn­ara­stöðu við skól­ann. Hann var eft­ir­sóttur fyr­ir­les­ari og var gesta­pró­fessor, meðal ann­ars við Columbia háskól­ann í New York, Háskól­ann í Ósló og fleiri háskóla í Evrópu. Árið 1989 sneri Liu Xiaobo heim til Kína og tók þátt í mót­mæl­unum sem kennd eru við Tian­an­men torgið (Torg hins himneska friðar) í Beijing.

Kínversk stjórn­völd töldu Liu Xiaobo einn hug­mynda­fræð­ing­anna að baki mót­mæl­anna og hann var dæmdur til tveggja ára fang­els­is­vistar. Hann hlaut aftur dóm árið 1995, sat þá inni í sex mán­uði og ári síðar var hann dæmdur til þriggja ára betr­un­ar­vinnu (eins og það er nefnt) fyrir að trufla stöð­ug­leik­ann í sam­fé­lag­inu. Eftir að Liu Xiaobo hafði lokið afplánun fylgd­ust kín­versk yfir­völd grannt með honum en 8. des­em­ber árið 2008 var hann hand­tek­inn ásamt félaga sínum. Þeir voru sak­aðir um að safna und­ir­skriftum á skjal sem nefn­ist Kafli 08 og til stóð að birta tveimur dögum síðar. Liu Xiaobo var síðar sak­aður um að hafa að miklu leyti skrifað text­ann í Kafla 08.

Kafli 08

Þetta skjal, Kafli 08, er í stuttu máli ákall, krafa og áskorun til stjórn­valda um mann­rétt­indi og aukið frelsi almenn­ings. Liu Xiaobo var strax eftir hand­tök­una settur í ein­angrun. Þar var hann fram að rétt­ar­höldum ári síðar, 23. des­em­ber 2009. Ákæran hljóð­aði upp á ,,ógnun við öryggi rík­is­ins og brot á kín­verskum lögum.“

Sjálfur fékk Liu Xiaobo ekki leyfi til að tala við rétt­ar­höldin en fjölda erlendra sendi­ráðs­starfs­manna í Beijing var meinað að vera í rétt­ar­salnum. Liu Xiaobo var sekur fund­inn og á jóla­dag 2009 dæmdur í ell­efu ára fang­elsi og skyldi sviptur öllum borg­ara­legum rétt­indum í tvö ár. Víða um heim voru kín­versk stjórn­völd harð­lega gagn­rýnd vegna dóms­ins en Kín­verjar létu það sem vind um eyru þjóta og sögðu sem svo að Liu Xiaobo hefði gerst brot­legur við kín­versk lög og slíkt væri refsi­vert.

Nóbelsverðlaunin og andlát Liu Xiaobo

Þegar norska nóbels­nefndin til­kynnti að Liu Xiaobo myndi hljóta frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2010 brugð­ust kín­versk stjórn­völd ókvæða við. Sendi­herra Noregs í Beijing var kall­aður á fund í kín­verska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu þar sem honum voru afhent mót­mæli kín­verskra stjórn­valda. Nóbels­nefndin væri með ákvörðun sinni að skipta sér af kín­verskum inn­an­rík­is­málum, Liu Xiaobo hefði brotið gegn kín­verskum lögum með skrifum sínum og þátt­töku í ólög­legum mót­mælum. Norski sendi­herr­ann svar­aði því til að norsk stjórn­völd hefðu ekki boð­vald yfir nóbels­nefnd­inni.

Þann 9. októ­ber 2010, dag­inn eftir að nóbels­nefndin til­kynnti um val sitt flutti eig­in­konan, Liu Xia, honum tíð­indin í fang­elsið. Hún sagði að hann hefði tár­ast en sagt að verð­launin væru til allra sem berð­ust fyrir umbótum á sviði mann­rétt­inda í Kína.

Þann 9. des­em­ber 2010 voru frið­ar­verð­laun Nóbels afhent við hátíð­lega athöfn í Ósló. Verð­launa­þeg­inn sjálfur, Liu Xiaobo, var hins vegar víðs fjarri, sat í fang­els­inu heima í Kína. Eig­in­kona hans, Liu Xia, sem ekki fékk að fara til Noregs, og sat í raun í stofu­fang­elsi á heim­ili sínu, hafði komið ávarpi eig­in­manns­ins til nóbels­nefnd­ar­innar. Leik­konan Liv Ullmann las ávarpið við athöfn­ina, en auður stóll á svið­inu sýndi með tákn­rænum hætti fjar­veru Liu Xiaobo.

Nóbels­verð­launin breyttu engu varð­andi Liu Xiaobo, hann sat áfram í fang­els­inu í Jinzhou.

Í maí árið 2017 kom í ljós að Liu Xiaobo var illa hald­inn af krabba­meini í lifur. Í júní það ár var hann fluttur á sjúkra­hús þar sem hann lést 13. júlí. Hann hafði þá afplánað átta ár og sex mán­uði af ell­efu ára fang­els­is­dómi.

Af ekkj­unni Liu Xia (fædd 1961) er það að segja að hún sat í stofu­fang­elsi þangað til í júlí 2018. Þá fékk hún leyfi til að fara til Þýska­lands til að leita sér lækn­inga. Þjóð­verjar höfðu þrýst mjög á kín­versk stjórn­völd í þessu skyni og í lok júlí í hitteð­fyrra kom hún til Berlínar. Í apríl á síð­asta ári birt­ist langt við­tal við hana í banda­ríska viku­rit­inu The New Yorker. Í við­tal­inu sem var tekið í Berlín, þar sem Liu Xia býr nú, sagð­ist hún smám saman vera að átta sig á til­ver­unni, hún er ljóð­skáld en hefur einnig lagt stund á mál­ara­list og ljós­myndun.

Heimsóknin í bókabúðina

Allt frá því að Liu Xiaobo voru veitt frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2010 hefur ríkt kuldi í sam­skiptum Kínverja og Norð­manna. Norðmenn hafa reynt ýmis­legt til að bæta sam­skiptin. Það eru ekki síst við­skipti sem Norðmenn horfa til. Við­skipta­sam­bönd við þessa fjöl­mennu þjóð eru mik­il­væg fyrir Norðmenn, sem eins og margar aðrar þjóðir vilja gjarna fá „gott veður“ hjá kín­verskum ráða­mönnum. Í því skyni hefur nokkrum hátt­settum kín­verskum stjórn­mála­mönnum að und­an­förnu verið boðið til Noregs og Haraldur V Nor­egs­kon­ungur fór í opin­bera heim­sókn til Kína árið 2018.

Fyrir skömmu var 40 kín­verskum skíða­mönnum, ásamt 15 þjálf­urum boðið að koma til Noregs til æfinga. Hér er rétt að geta þess að Vetr­ar­ólymp­iu­leik­arnir fara fram í Kína árið 2022. Kín­verjarnir þáðu boðið en settu ýmis skil­yrði. Bóka­vörð­ur­inn á bæj­ar­bóka­safn­inu í Meráker í Þrænda­lögum, þar sem fyr­ir­hugað er að kín­versku skíða­menn­irnir æfi, rak upp stór augu þegar kín­verskir emb­ætt­is­menn birt­ust á bóka­safn­inu. Ekki var undrun bóka­varð­ar­ins minni þegar þeir báru upp erindið: Þeir kröfð­ust þess að allar bækur, sem ekki væru kín­verskum stjórn­völdum þókn­an­legar yrðu fjar­lægðar úr hillum safns­ins. Til dæmis bækur um Falun Gong-hreyf­ing­una. Bóka­vörð­ur­inn kikn­aði ekki í hnjálið­unum en sagði þessum sjald­séðu gestum á safn­inu að hér væri það hún (bóka­vörð­ur­inn er kona) sem réði og úr hillum safns­ins yrðu engar bækur fjar­lægðar þótt ein­hverjir skíða­menn kæmu til æfinga í bænum. „Hér í Noregi búum við nefni­lega við tján­ing­ar­frelsi.“ Engum sögum fer af við­brögðum kín­versku sendi­mann­anna.

Mörg dæmi um kröfur Kínverja

Þessi litla saga frá Noregi er bara eitt dæmi um fram­komu Kínverja og við­kvæmni þeirra gagn­vart öllu því sem ekki þókn­ast þar­lendum stjórn­völdum. Fyrir skömmu hélt borg­ar­stjór­inn í Prag í Tékk­landi mót­töku fyrir erlenda diplómata þar í borg. Meðal við­staddra var full­trúi Taívans. Þegar kín­verski sendi­herr­ann mætti í boðið krafð­ist hann þess þegar í stað að taí­vanski emb­ætt­is­mað­ur­inn yrði rek­inn á dyr. Því neit­aði borga­stjór­inn. Það svar vakti ekki kátínu í Beijing.

Í júní árið 2012 kom Hu Jintao, þáver­andi for­seti Kína í opin­bera heim­sókn til Kaup­manna­hafnar. Ritari þessa pistils var þá búsettur í borg­inni og getur borið um að til­standið í kringum þessa þriggja daga heim­sókn var engu líkt. Danska lög­reglan fór offari við að halda uppi því sem yfir­menn­irnir köll­uðu „lög og reglu.“ Mikil áhersla var lögð á að koma í veg fyrir að for­set­inn sæi nokk­urs staðar glitta í fána Tíbets.

Heim­sóknin hafði mikla eft­ir­mála, sem raunar sér ekki enn fyrir end­ann á. Tvær rann­sókn­ar­nefndir hafa farið í saumana á fram­gangi dönsku lög­regl­unnar og 90 manns hafa fengið greiddar skaða­bætur vegna ólög­mætrar hand­töku. Og búist er við að fleiri slíkar kröfur eigi enn eftir að koma fram.

Um Dan­merk­ur­heim­sókn for­seta Kína árið 2012 og eft­ir­mál hennar, ekki síst fram­gang dönsku lög­regl­unnar hefur áður verið fjallað um hér í Kjarn­anum, í tveimur pistlum: „Ekki benda á mig og hver sagði hvað við hvern“ árið 2016 og ári síðar „Enginn vill sitja uppi með apann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár