Ekki benda á mig og hver sagði hvað við hvern

Yfirmenn lög­regl­unnar í Kaup­manna­höfn kann­ast lík­lega ekki við lag og texta Bubba Morthens (Lög og regla) þar sem varð­stjór­inn segir að ekki skuli bent á sig, hann hafi nefni­lega verið að æfa lög­reglukór­inn. Það eigi að spyrja þá sem voru á vakt, um mann­inn sem dó í fanga­klef­anum. Það sem yfir­menn Kaup­manna­hafn­ar­lög­regl­unnar eiga hins vegar sam­eig­in­legt með kór­stjórn­anda Bubba Morthens er það að þeir hafa, í til­teknu máli reynt að varpa sök­inni á und­ir­menn­ina til að fría sig ábyrgð. En í danska skrán­ing­ar­sam­fé­lag­inu, þar sem flest er fært til bókar, kemur sann­leik­ur­inn iðu­lega í ljós að lokum. Mál sem nú er til með­ferðar hjá sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd í Kaup­manna­höfn snýst ekki um manns­lát heldur mann­rétt­indi sem skýrt er kveðið á um í dönsku stjórn­ar­skránni.

Heimsókn kínverska forsetans

Um miðjan júní árið 2012 kom Hu Jintao, þáver­andi for­seti Kína í opin­bera heim­sókn til Dan­merkur. Heim­sóknin átti sér langan aðdrag­anda, eins og oft­ast þegar um er að ræða opin­berar heim­sóknir. Slíkar heim­sóknir þjóna marg­hátt­uðum til­gangi, ekki hvað síst að efla við­skipti milli land­anna og þjóð­höfð­ingj­unum fylgja gjarna fjöl­mennar sendi­nefndir. Á und­an­förnum árum hafa margar þjóðir haft áhuga á að ving­ast við „ris­ann í austri“, hjá þess­ari fjöl­mennu þjóð er eftir miklu að slægj­ast hvað við­skipti varðar, en margir Kín­verjar hafa auðg­ast mjög á skömmum tíma. Evrópsk hús­gögn og inn­an­stokks­munir, borð­bún­aður, ljós, fatn­aður, úr og list­munir margs­konar, öllu þessu og mörgu öðru sækj­ast efn­aðir Kín­verjar eftir. Kín­verskum ferða­mönnum hefur fjölgað mikið í Evrópu á síð­ustu tíu árum og þeir eyða miklum pen­ingum hvar sem þeir koma við.

Opin­berar heim­sóknir hátt­settra Kínverja til ann­arra landa vekja mikla athygli heima í Kína og eru þess vegna mikil land­kynn­ing. Danir hafa, eins og margar aðrar þjóðir, litið hýru auga til Kína og sem dæmi um það féllust dönsk stjórn­völd á að lána Litlu haf­meyj­una á heims­sýn­ing­una í Shanghai árið 2010. Fyrir slíku ferða­lagi Litlu haf­meyj­unnar voru engin for­dæmi, hún hafði aldrei (nema höf­uðið tvisvar sinnum og annar hand­legg­ur­inn einu sinni) hreyft sig af steini sínum við Löngu­línu í Kaup­manna­höfn þar sem henni var komið fyrir árið 1913. Litla haf­meyjan vakti mikla athygli á heims­sýn­ing­unni og í kjöl­far sýn­ing­ar­innar stór­fjölg­aði kín­verskum ferða­mönnum í Danmörku.

Mikill viðbúnaður í Kaupmannahöfn

Við und­ir­bún­ing heim­sóknar kín­verska for­set­ans lögðu dönsk stjórn­völd mikla áherslu á að ekk­ert færi úrskeiðis. Kín­verjar líta margt öðrum augum en Vest­ur­landa­búar. Þetta vissu dönsk stjórn­völd mæta­vel og lög­reglan fékk , eins og ætíð við slíkar heim­sóknir, skýr fyr­ir­mæli. Allt lög­reglu­lið Kaup­manna­hafnar var á vakt­inni og fjöldi lög­reglu­þjóna frá öðrum lands­hlutum var sömu­leiðis kall­aður til. Fyr­ir­fram var talið að mann­rétt­inda­sam­tök og ein­stak­lingar myndu reyna að vekja athygli kín­verska for­set­ans og fylgd­ar­liðs hans. Þeim sem hygð­ust efna til ein­hvers konar mótæla var gert að til­kynna það fyr­ir­fram. Í Danmörku ríkir tján­ing­ar­frelsi, í því felst meðal ann­ars að fólki er heim­ilt að klæð­ast hverju sem er og bera fána, spjöld og merki að vild. All­margir skráðu sig á mót­mæl­enda­list­ann, ein­stak­lingar og félaga­sam­tök.

Burt með þennan fána

Heimsókn kín­verska for­set­ans og sendi­nefnd­ar­innar tókst vel. Fjöldi fólks var sam­an­kom­inn við Krist­jáns­borg­ar­höll þegar kín­verski for­set­inn renndi þar í hlað. Í hópnum við höll­ina voru nokkrir sem báru tíbeska þjóð­fán­ann, sem er bann­aður í Kína. Sara Berthou, ungur háskóla­nemi, var á torg­inu með langt prik með fána Tíbets á end­anum. Þegar for­seta­bíll­inn nálg­að­ist rak hún prikið upp í loftið en þá gripu nær­staddir lög­reglu­þjónar til sinna ráða: „burt með þennan fána“. Sara Berthou svar­aði að það að bera fán­ann væri ekki ólög­legt en fékk það svar að „það væri ólög­legt í dag“ og rifu af henni prikið og fán­ann. Einn við­staddra festi þetta atvik á mynd­band, þar bæði sést og heyr­ist hvað fram fór. Fjöldi fólks sá hvað gerð­ist og fána­prik Söru Berthou var ekki það eina sem lög­reglan tók í sína vörslu.

Lygavefur lögreglunnar

Sara Berthou og nokkrir fleiri lögðu fram kæru á hendur lög­regl­unni eftir atvikið fyrir framan Krist­jáns­borg­ar­höll og fleiri slík atvik þennan dag. Málið var tekið fyrir í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar (lægsta dóm­stig af þremur). Þar full­yrtu tveir hátt­settir menn í lög­regl­unni að lög­reglu­þjón­arnir sem voru við Krist­jáns­borg, eða ann­ars­staðar í borg­inni, þennan umrædda dag hefðu ekki fengið nein fyr­ir­mæli um að fjar­lægja fána eða annað sem mót­mæl­endur hefðu með­ferðis. Einungis hefði átt að fylgja venju­legum vinnu­reglum. Þessar skýr­ingar tóku yfir­menn dóms­mála góðar og gildar, dóms­mála­ráð­herra lýsti ítrekað yfir að öllum reglum hefði verið fylgt.

Starfs­maður í dóms­mála­ráðu­neyt­inu hafði reyndar ákveðnar grun­semdir um að ekki væri allt með felldu með skýr­ingar lög­reglu og spurð­ist hvað eftir annað fyrir um ákveðin atriði. Eftir að yfir­stjórn lög­regl­unnar kvart­aði við dóms­mála­ráðu­neytið yfir afskiptum emb­ætt­is­manns­ins, Anne Berg Mansfeld-Giese, lauk þeim skyndi­lega. Danskir fjöl­miðlar full­yrða að þaggað hafi verið niður í henni

Hljóðupptökurnar

En hafi lög­reglan ímyndað sér að nú væri þessu mála­vaf­stri lokið átti annað eftir að koma í ljós. Í sept­em­ber í fyrra fyr­ir­skip­aði Eystri- lands­réttur lög­regl­unni að leggja fram hljóð­upp­tökur (sem lög­regla hafði þrá­fald­lega neitað að gera) þarsem heyra má fyr­ir­skip­anir „að ofan“ um að taka Tíbet­fán­ann af mót­mæl­endum. Lög­reglan hafði líka haldið því fram að mót­mæl­endur hefðu verið með upp­steit og að ekki væri hægt að segja til um hvaða lög­reglu­þjónar hefðu tekið fán­ana af þeim. Dómari við Eystri-lands­rétt gaf lítið fyrir þessar skýr­ingar enda liðu ein­ungis tveir dagar frá því að hljóð­upp­tök­urnar komu fram þangað til þrír lög­reglu­þjónar lýstu yfir að yfir­stjórn lög­regl­unnar vissi vel hverjir þeir væru en þeim hefði verið skipað að halda sér saman. „Skipunin um fán­ana kom ofan­frá og við báðum um að hún yrði end­ur­tekin því við vissum að þetta væri ekki í sam­ræmi við stjórn­ar­skrána.“

Dómsmálaráðherra skipar rannsóknarnefnd

Sak­sókn­ari lög­regl­unnar lagði fyrir nokkrum dögum fram kæru á hendur lög­reglu­mönn­unum tveimur sem nú er ljóst að lugu fyrir Bæj­ar­rétt­inum þegar málið kom þangað á sínum tíma.

Sören Pind dóms­mála­ráð­herra skip­aði, strax eftir að hljóð­upp­tök­urnar höfðu verið birtar, sér­staka rann­sókn­ar­nefnd. Hún hefur unnið sleitu­laust síðan og þegar hafa rúm­lega tvö hund­ruð manns verið yfir­heyrðir. Þar á meðal fimm núver­andi og fyrr­ver­andi ráð­herrar. Gert er ráð fyrir að rétt­ar­höld í mál­inu hefj­ist um mitt næsta ár.

Sak­sókn­ari lög­regl­unnar lagði fyrir nokkrum dögum fram kæru á hendur lög­reglu­mönn­unum tveimur sem nú er ljóst að lugu fyrir Bæj­ar­rétt­inum þegar málið kom þangað á sínum tíma.

Enginn vill sitja uppi með apann

Mál þetta hefur vakið mikla athygli í Danmörku og er að mati fjöl­miða álits­hnekkir fyrir lög­regl­una. Þar hafi verið reynt að klína óþverr­anum, eins og það er orðað, á óbreytta lög­reglu­þjóna sem hafi hins vegar ein­ungis hlýtt fyr­ir­skip­unum. Ráð­herrar og yfir­menn í lög­regl­unni benda hver á annan, þeir hafi ekki vitað neitt og ekki fengið réttar upp­lýs­ingar. Enginn vill sitja uppi með apann, eins og það er kallað í Danmörku, en rétt­ar­höldin leiða vænt­an­lega í ljós hver gaf fyr­ir­skip­an­irnar og bar ábyrgð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár