Þegar kóngur fellur

Hann hefur verið kall­aður „kon­ungur Kaup­manna­hafnar“. Var yfir­borg­ar­stjóri frá árinu 2010 og ekki á þeim buxum að hætta. Nú er Frank Jensen fall­inn af stall­inum. Fyrir eigin hendi, ef svo má segja.

Frank Jensen, hélt blaðamannafund á Íslandsbryggju þar sem hann sagði af sér embætti yfirborgarstjóra Kaupmannahafnar.
Frank Jensen, hélt blaða­manna­fund á Íslands­bryggju þar sem hann sagði af sér emb­ætti yfir­borg­ar­stjóra Kaup­manna­hafnar. Mynd: EPA

Skáld­saga Johann­esar V. Jensen „Kongens Fald“ er eitt þekktasta bók­mennta­verk Dana og hefur margoft verið valin besta danska skáld­saga síð­ustu aldar, kom út 1901. Nokkrir danskir fjöl­miðlar stóð­ust ekki mátið þegar Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar, og oft kall­aður kon­ungur Kaup­manna­hafnar, til­kynnti afsögn sína síð­ast­lið­inn mánu­dag og slógu hinum þekkta bók­artitli „Kongens Fald“ upp, með „heims­styrj­ald­ar­letri“, á for­síð­unni.

Frank Jensen, sem er 59 ára, ólst upp á Jótlandi og er hag­fræð­ingur að mennt. Hann gekk ungur til liðs við flokk jafn­að­ar­manna, Socialdemokraterne, og gegndi frá upp­hafi for­ystu­hlut­verkum í ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins á Jótlandi. Hann var kjör­inn á þing, Fol­ket­inget, árið 1987, og var lítt áber­andi til að byrja með.

Í þing­kosn­ingum árið 1990 jókst fylgi jafn­að­ar­manna veru­lega en vegna per­sónu­legs ágrein­ings Svend Auken við for­ystu­menn ann­arra flokka á vinstri vængnum, einkum Radikale Venstre, tókst honum ekki að mynda stjórn. Þetta olli mik­illi ólgu innan flokks jafn­að­ar­manna og á flokks­þing­inu 1992 var Svend Auken, sem verið hafði for­maður frá 1987, velt úr for­manns­stólnum. Ræða Frank Jensen, sem studdi Svend Auken, vakti mikla athygli. Við for­mennsk­unni tók Poul Nyrup- Rasmus­sen. Ári síðar, 1993, baðst Poul Schluter, sem verið hafði for­sæt­is­ráð­herra frá 1982 lausnar fyrir sig og ráðu­neyti sitt, vegna Tamila-máls­ins svo­nefnda. Við tók, án þess að þing­kosn­ingar færu fram, stjórn jafn­að­ar­manna.

[adspot]

Krónprins

Eftir kosn­ing­arnar árið 1994 voru jafn­að­ar­menn áfram við stjórn­völ­inn og Frank Jensen varð ráð­herra vís­inda­rann­sókna (for­sknings­mini­ster). Á gaml­árs­dag 1996 var hann skip­aður dóms­mála­ráð­herra og gegndi þeirri stöðu fram að kosn­ingum árið 2001, en þá misstu jafn­að­ar­menn stjórn­ar­taumana. Þótt Frank Jensen sæti ekki lengur á ráð­herra­stóli gegndi hann mik­il­vægum emb­ættum innan þings­ins. Hann var þá löngu orð­inn einn af „þunga­vigt­ar­mönnum“ jafn­að­ar­manna­flokks­ins, og oft nefndur „krón­prins­inn“.

Formannsslagur við Helle Thorning- Schmidt

Mogens Lykketoft tók við for­mennsku í Jafn­að­ar­manna­flokknum árið 2002 en gegndi þeirri stöðu aðeins fram yfir kosn­ingar árið 2005. Og jafn­að­ar­menn þurftu að velja nýjan for­mann. Tvö buðu sig fram, Frank Jensen og Helle Thorning-Schmidt. Hún var ný á þingi, en hafði setið á Evr­ópu­þing­inu um fimm ára skeið, frá 1999. Úrslit for­manns­kjörs­ins urðu þau að Helle Thorning-Schmidt bar sigur úr býtum, fékk 53% atkvæða en Frank Jensen 47%. Hann hætti á þingi tveimur árum síðar. Löngu síðar sagði hann að það hafi verið gott fyrir flokk­inn að Helle Thorning- Schmidt skyldi sigra í for­manns­kjör­inu „ég var í margra augum full­trúi hins gamla í flokknum, hún hins nýja“.

Frank Jensen tók í kjöl­far þing­mennsk­unnar við starfi fram­kvæmda­stjóra fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Telecom og síðar hjá Lands­sam­tökum danskra lög­fræð­inga. Og undi, að sögn, glaður við sitt.

Svo hringdi síminn

Kvöld eitt árið 2009 hringdi sím­inn heima hjá Frank Jensen. Þegar hann svar­aði þekkti hann strax rödd­ina en sagði síðar að hann hefði orðið undr­andi á að Helle Thorning- Schmidt væri að hringja í sig. En þegar hún sagði honum erindið sagð­ist Frank Jensen hafa velt fyrir sér hvort röddin í sím­anum til­heyrði flokks­for­mann­inum eða ein­hverri eft­ir­hermu. Svo hissa var hann.

[links]Erindi Helle Thorning-Schmidt var að biðja Frank Jensen að gefa kost á sér í sæti yfir­borg­ar­stjóra Kaup­manna­hafnar (borg­ar­stjór­arnir eru sjö) í næstu bæjar- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Sú staða væri afar mik­il­væg, sagði Helle Thorning-Schmidt en frá árinu 1903 hafa jafn­að­ar­menn nær óslitið setið í þessu emb­ætti. „Ritt Bjer­regaard er að hætta og okkur vantar vanan mann. Þig,“ sagði Helle Thorning. „Ég sagði nei, ég væri hættur í póli­tík,“ sagði Frank Jensen.

En, Helle Thorning- Schmidt gafst ekki upp og svo fór að Frank Jensen ákvað að hella sér í póli­tík­ina á nýjan leik. Skemmst er frá því að segja að hann var kjör­inn yfir­borg­ar­stjóri árið 2010. Jafn­framt var hann annar tveggja vara­for­manna Jafn­að­ar­manna­flokks­ins frá árinu 2012. Þangað til síð­ast­lið­inn mánu­dag. Þá sagði hann af sér sem borg­ar­stjóri og vara­for­maður. „Ferli mínum í póli­tík er lokið,“ sagði Frank Jensen á frétta­manna­fundi á kaj­anum á Íslands­bryggju í Kaup­manna­höfn.

Ásakanir um áreitni

Frank Jensen hefur oft sagt að hann sé glað­sinna maður, sem njóti þess að skemmta sér og fá sér í glas á góðri stund. Enginn gerir athuga­semdir við glað­sinna fólk en stundum getur sú gleði orðið of mikil og inni­leg. Þannig er það með Frank Jensen og hefur nú komið honum í koll.

Árið 2004 sagði viku­ritið Se & Hør frá því að Frank Jensen hefði í jóla­kvöld­verði þing­manna gerst of inni­legur við starfs­nema á dans­gólf­inu. Þrýst stúlkunni full þétt að sér, eins og blaðið orð­aði það. Stúlkunni þótti þetta mjög óþægi­legt, og kvart­aði. Sagði að þarna hefði þing­mað­ur­inn farið yfir strikið. Frank Jensen baðst síðar afsök­unar á fram­ferði sínu.

Árið 2011, þegar Frank Jensen var orð­inn yfir­borg­ar­stjóri gerð­ist það að hann, á dans­gólf­inu, sleikti eyra sam­starfs­konu sinnar og enn­fremur háls­inn á annarri. Frá­sagnir um þetta röt­uðu í fjöl­miðla en þar við sat, um ára­bil.

Föstu­dag­inn 16. októ­ber síð­ast­lið­inn birti Jót­land­s­póst­ur­inn frá­sögn Marie Gudme, sem situr í svæð­is­ráði jafn­að­ar­manna og ann­arrar, ónafn­greindrar, konu um áreitni af hálfu Frank Jensen. Hann hefði gerst nær­göng­ull og þuklað á þeim (befam­let). Vegna þess­ara ásak­ana boð­aði Frank Jensen ráð­herra og for­menn kjör­dæm­is­ráða jafn­að­ar­manna á fund síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld. Áður en til þess fundar kom höfðu átta konur til við­bótar greint frá áreitni af hálfu yfir­borg­ar­stjór­ans. Á þessum fundi lýstu fund­ar­menn yfir stuðn­ingi við Frank Jensen, athygli vakti að atkvæði voru greidd með handa­upp­rétt­ingu. Eftir fund­inn sagð­ist Frank Jensen ánægður með trausts­yf­ir­lýs­ing­una. Hálfum sól­ar­hring síðar, hafði hann skipt um skoðun, eins og áður var nefnt.

Dönsku frásagnaflóðgáttirnar opnast

Danskir fjöl­miðlar hafa kallað sunnu­dag­inn 6. sept­em­ber síð­ast­lið­inn upp­hafs­dag MeToo2-bylgj­unnar í Danmörku. Í sjón­varps­út­send­ingu að kvöldi þessa sunnu­dags lýsti leik­konan og skemmti­kraft­ur­inn Sofie Linde fram­komu þekkts sjón­varps­manns við sig, þegar hún var nýkomin til starfa hjá danska útvarp­inu, DR. Frásögn hennar vakti mikla athygli og segja má að flóð­gáttir hafi opn­ast.

16. sept­em­ber greindi Lotte Rod, þing­maður Radikale Venstre, frá því að hún hefði þurft að ýta óvel­kominni þing­manns­hönd, eins og hún komst að orði, af lær­inu á sér. „Höndin til­heyrði sam­flokks­manni mínum,“ sagði Lotte Rod. Þetta gerð­ist árið 2010. 7.októ­ber sagði Morten Østergaard af sér for­mennsku í Radikale Venstre, það var hann sem hafði lagt hönd á læri Lotte Rod, en reynt að leyna því að hann ætti í hlut, þegar farið var að fjalla um málið.

Ekki öll kurl komin til grafar

Í við­tali við frétta­menn eftir afsögn Frank Jensen sagð­ist Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra viss um að fleiri mál af svip­uðu tagi ættu eftir að koma fram, bæði í sínum flokki og öðrum flokkum. „Því miður.“ Það reynd­ust orð að sönnu, því tveimur dögum eftir þessi ummæli for­sæt­is­ráð­herr­ans sendi Íhalds­flokk­ur­inn frá sér frétta­til­kynn­ingu. Þar var greint frá því að einn þing­manna flokks­ins, Orla Østerby, hefði verið sviptur ýmsum emb­ættum innan þing­flokks­ins vegna ásak­ana um áreitni gegn sam­flokks­konu sinni á þingi. Orla Østerby kvaðst í við­tali ekki muna til­tekið atvik, en efað­ist ekki um frá­sögn kon­unnar. Hann hefði beðist afsök­unar, sem við­kom­andi hefði tekið góða og gilda. „En ég virði ákvörðun þing­flokks­ins og flokks­for­yst­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár