Vandræðabarnið í Venstre

Í nýrri skýrslu kemur fram að Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Danmörku, braut lög með fyr­ir­skip­unum sínum varð­andi mál­efni hæl­is­leit­enda og laug að þing­inu. Margir þing­menn vilja að lands­dómur fjalli um málið.

Inger Støjberg, þáverandi ráðherra innflytjendamála, fylgist með umræðum um innflytjendamál í danska þinginu, Folketinget, í janúar 2016.
Inger Støjberg, þáver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála, fylgist með umræðum um inn­flytj­enda­mál í danska þing­inu, Fol­ket­inget, í jan­úar 2016. Mynd: EPA

Skömmu eftir að rík­is­stjórn Mette Frederik­sen tók við völdum, í júní á síð­asta ári, ákvað danska þingið, Fol­ket­inget, að fram skyldi fara rann­sókn á emb­ætt­is­færslum Inger Støjberg fyrr­ver­andi ráð­herra og núver­andi vara­for­manns Venstre flokks­ins. Nánar til­tekið á einni ákvörðun frá árinu 2016 en þá var hún ráð­herra inn­flytj­enda­mála í rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen.

25. jan­úar 2016 greindu danskir fjöl­miðlar frá því að meðal þeirra sem byggju í búðum hæl­is­leit­enda í Danmörku væru að minnsta kosti nokkur pör, þar sem annar aðil­inn væri undir lög­aldri, sem í Danmörku er 18 ár. Þegar Inger Støjberg sá þessa frétt á net­inu var hún í bíl sem sat fastur í umferð­ar­teppu í Brussel. Hún varð hopp­andi ill og skrif­aði á Facebook að þessu yrði strax að breyta og hún myndi skipa Útlend­inga­stofnun að bregð­ast við, þegar í stað. Með ráð­herr­anum í bílnum var Lykke Sørensen, þáver­andi yfir­lög­fræð­ingur ráðu­neyt­is­ins og helsti ráð­gjafi ráð­herr­ans, ásamt fleirum.

10. febr­úar 2016 sendi ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála í Danmörku frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna hæl­is­leit­enda og flótta­fólks. Í til­kynn­ing­unni sagði að sam­býl­is­fólk, eða hjón, þar sem annar aðil­inn væri yngri en 18 ára mættu ekki búa saman. Engu skipti þótt parið ætti barn. Án und­an­tekn­inga. Emb­ætt­is­menn í ráðu­neyt­inu sögðu ráð­herr­anum að þessi ákvörðun stæð­ist ekki lög því sam­kvæmt þeim bæri að meta hvert til­felli sjálf­stætt. Þar að auki væri þetta brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Með þessu ert þú að taka ákveðna áhættu,“ sagði áður­nefndur yfir­lög­fræð­ingur, Lykke Sørensen. „Þá áhættu er ég til­búin að taka,“ svar­aði Inger Støjberg. Vitni voru að þessum orða­skiptum.

Þegar málið var rætt í þing­inu, sem gerð­ist margoft, tal­aði ráð­herr­ann ætíð um frétta­til­kynn­ing­una sem til­skipun. 24. febr­úar 2016, hálfum mán­uði eftir að til­kynn­ingin (til­skip­unin) birt­ist sagð­ist ráð­herr­ann, á þing­fundi, hafa fyr­ir­skipað Útlend­inga­stofn­un­inni (Udlænd­ingestyrel­sen) að breyta vinnu­lagi þannig að eng­inn hæl­is­leit­andi, undir lög­aldri (18 ára) gæti búið með maka eða sam­býl­ingi. Þetta gilti um alla. Þetta svar ráð­herr­ans við spurn­ingu þing­manns liggur fyrir í þing­skjölum.

Rannsóknarnefndin

Peter Mørk Thomsen, dóm­ari við Eystri-Lands­rétt var for­maður þriggja manna rann­sókn­ar­nefndar, sem skipuð var 20. jan­úar sl. Nefnd­inni var ætlað að athuga hvort ákvörðun ráð­herr­ans hafi farið á svig við lög. Í skip­un­ar­bréf­inu stóð að nefndin skyldi ljúka störfum innan 18 mán­aða frá skip­un­ar­degi. Umboðs­maður þings­ins hafði safnað saman öllum gögnum varð­andi málið og þau voru mikil að vöxtum.

Inger Støjberg hefur margoft setið fyrir svörum, bæði í þing­sal og hjá nefndum þings­ins. Ótal minn­is­blöð og álits­gerðir vegna áður­nefndrar ákvörð­unar ráð­herr­ans fékk nefndin í hendur ásamt öðrum gögnum. Peter Mørk Thomsen dóm­ari er ekki þekktur fyrir að liggja á melt­unni og hann og sam­starfs­menn hans í nefnd­inni hófust þegar handa. Rúmlega hund­rað manns voru boð­aðir í skýrslu­töku.

Inger Støjberg og kanínan úr hattinum

Rann­sókn­ar­nefndin hafði heim­ild til að kalla hvern sem henni þókn­að­ist til skýrslu­töku. Yfir­heyrslur nefnd­ar­innar hófust 14. maí og stóðu, með hléum fram á haust. Fremstir í yfir­heyrslu­röð­inni voru emb­ætt­is­menn úr ráðu­neytum og stofn­unum. Yfir­heyrslur yfir Inger Støjberg stóðu í tvo daga og fyrri dag­inn dró hún upp skjal, sem eng­inn hafði áður séð, né heyrt minnst á. „Eins og kan­ínu úr hatti sjón­hverf­inga­manns“ var lýs­ing blaða­manns Berl­ingske á atvik­inu.

„Kanínan“, eins og blaða­mað­ur­inn orð­aði það, var minn­is­blað (notat) sem Inger Støjberg sagð­ist hafa sam­þykkt að kvöldi 9. febr­úar 2016, dag­inn áður en frétta­til­kynn­ingin var send út. Á minn­is­blað­inu stóð að hægt væri að skoða sér­stak­lega ein­stök mál (at der kunne ske en indi­vi­duel sags­behand­ling). Þetta skjal hafði hvorki Inger Støjberg, né nokkur annar nefnt. Því hafði heldur ekki verið skilað til umboðs­manns sem hafði farið fram á að fá afhent öll skjöl varð­andi málið. ,,Af hverju fékk umboðs­maður ekki þetta skjal?“ var spurt.

Inger Støjberg svar­aði að sam­skiptin við hann hefðu verið í höndum emb­ætt­is­manna. Formaður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar benti Inger Støjberg strax á að inni­hald skjals­ins væri í algjörri mót­sögn við það sem hún hefði áður sagt. Inger Støjberg end­ur­tók að þetta nýfram­komna skjal, sem hún kall­aði grund­vall­ar­skjal, sýndi og sann­aði að hún hefði farið að lögum.

Minnisblað á skúffubotni

Lykke Sørensen, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur í ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála, var nú aftur kölluð fyrir rann­sókn­ar­nefnd­ina. Hún sagð­ist ekk­ert muna eftir skjal­inu enda skipti minn­is­blað af þessu tagi ekki máli, með til­liti til laga. „Enda hefði Inger Støjberg marglýst yfir að frétta­til­kynn­ingin, sem hún sjálf hefði und­ir­ritað væri til­skipun.“

„Minn­is­blað á skúffu­botni getur ekki talist grund­vall­ar­skjal,“ bætti Lykke Sørensen við.

Útlendingastofnun fór að fyrirmælum ráðherrans

Við yfir­heyrslur rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kom fram að Útlend­inga­stofn­unin fékk aldrei nein fyr­ir­mæli eða leið­bein­ingar frá ráðu­neyt­inu, aðrar en áður­nefnda frétta­til­kynn­ingu, frá 10. febr­úar, en hófst þegar handa við að fram­fylgja því sem þar stóð. Frá 10. febr­úar 2016 til 25. apríl sama ár voru sam­tals 32 pör neydd til að flytja sundur. Á lista Útlend­inga­stofn­unar má lesa að mesti ald­urs­munur var 13 ár, mað­ur­inn 30 ára en stúlkan 17 ára, minnsti ald­urs­munur 1 ár. Yngstu stúlk­urnar á list­anum (6 tals­ins) voru 15 ára, yngstu pilt­arnir (3 tals­ins) 17 ára.

Kvartað til Umboðsmanns þingsins

25. apríl 2016 barst Útlend­inga­stofnun bréf frá Umboðs­manni þings­ins. Þar var spurt um fram­kvæmd „aðskiln­að­ar­fyr­ir­mæl­anna“. Þá hafði par, sem hafði verið neytt til að flytja í sundur, án þess að mál þess væri skoðað og metið sér­stak­lega, kvartað til Umboðs­manns og vísað í lög. Útlend­inga­stofnun til­kynnti að fram­kvæmd­inni yrði sam­stundis breytt. Kvörtunin var kveikjan að þeirri rann­sókn sem nú er lokið.

Ráðherrann ábyrgur fyrir lagabrotum og laug að þinginu

Rann­sókn­ar­nefndin skil­aði skýrslu sinni sl. mánu­dag. Skýrslan er mikil að vöxtum, sam­tals um 3500 síður, auk fylgi­skjala upp á 1800 síður.

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar eru afdrátt­ar­laus og gefur lítið fyrir skýr­ingar Inger Støjberg og segir þær hreint og klárt yfir­klór. Í vitn­is­burði hennar standi ekki steinn yfir steini og sama gildi um skýr­ingar þeirra emb­ætt­is­manna sem studdu skýr­ingar ráð­herr­ans fyrr­ver­andi. Leita þarf ára­tugi aftur í tím­ann til að finna jafn afdrátt­ar­lausan áfell­is­dóm yfir störfum dansks ráð­herra.

Skipta má nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar niður í þrjá meg­in­þætti:

Í fyrsta lagi vildi Inger Støjberg að fylgt yrði reglum hennar, sem stöng­uð­ust á við lög, og lét sig í engu varða aðvar­anir emb­ætt­is­manna. „Minn­is­blaðið á skúffu­botn­inum“ skipti þar engu þrátt fyrir yfir­lýs­ingar ráð­herr­ans fyrr­ver­andi.

Í öðru lagi segir í skýrsl­unni að Lene Skytte Mørk Hansen, deild­ar­stjóri í inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu, hafi hringt til Útlend­inga­stofn­un­ar­innar og upp­álagt starfs­fólki að fylgja til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins um aðskilnað para. Við yfir­heyrslur hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni sagð­ist Lene Skytte Mørk Hansen aftur á móti hafa hringt til að segja að ekki ætti að fylgja til­mæl­unum í til­kynn­ing­unni til hins ýtrasta, heldur gera und­an­tekn­ingar. Þessar skýr­ingar taldi rann­sókn­ar­nefndin í meira lagi ótrú­verð­ugar enda gengu þær þvert á yfir­lýs­ingar þriggja starfs­manna Útlend­inga­stofn­unar, sem höfðu heyrt áður­nefnt sím­tal. Starfs­fólk Útlend­inga­stofn­un­ar­innar sagði að Lene Skytte Mørk Hansen hefði sagt að ráð­herr­ann teldi mjög mik­il­vægt að til­mæl­unum yrði fylgt,í öllum málum. Þar með eru til­mælin orðin til­skipun segir í skýrsl­unni.

Í þriðja lagi hefði Inger Støjberg, að minnsta kosti sex sinnum, bein­línis sagt ósatt við yfir­heyrslur þing­nefndar (sam­råd). Það að ljúga í þing­inu væri mjög alvar­legt. Enn­fremur hefðu svör og útskýr­ingar emb­ætt­is­manna í inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu við spurn­ingum umboðs­manns verið „út og suður“ og fyrir þeim væri ráð­herr­ann ábyrgur.

Rétt er að geta þess að eftir að skýrslan var birt til­kynnti Mattias Tesfaye, að Lene Skytte Mørk Hansen hefði verið leyst frá störfum, ótíma­bundið, en ráðu­neyt­is­stjór­inn sem sat á þeim tíma sem um ræðir er kom­inn á eft­ir­laun.

[links]

Hvert verður framhaldið?

Rann­sókn­ar­nefndin sem vann skýrsl­una er ekki dóm­stóll. Hlutverk hennar var ein­ungis að skera úr um hvort ákvarð­anir og emb­ætt­is­færsla Inger Støjberg hafi brotið í bága við lög. Sú nið­ur­staða liggur nú fyrir, ráð­herr­ann braut lög. Nú er það þing­manna að ákveða fram­haldið. Full­trúar þriggja flokka vilja að málið fari fyrir lands­dóm (rigs­ret). Lands­dómur er dóm­stóll sem dæmir ein­göngu í málum sem varða starf­andi, eða fyrr­ver­andi, ráð­herra. Lands­dóm­stóll í Danmörku hefur aldrei komið saman á þess­ari öld. Á öld­inni sem leið gerð­ist það fjórum sinnum, sein­ast árið 1993 í svo­nefndu Tamíla­máli.

Um það hvort mál Inger Støjberg fari fyrir lands­dóm eru skoð­anir skiptar. Þingmenn í flokki Inger Støjberg, Venstre (sem er þrátt fyrir nafnið hægri miðju­flokkur) skipt­ast í tvær fylk­ingar: hluti þing­manna vilja gjarna sjá hana fá á bauk­inn og helst losna við hana úr flokknum, aðrir ótt­ast að þá myndu kjós­endur sem eru sam­mála Inger Støjberg yfir­gefa flokk­inn og færa sig annað.


Kratar í vanda

Nú kann ein­hver að spyrja: styðja ekki Sós­í­alde­mókratar, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans kröf­una um lands­dóm, varla hafa þeir hag af því að hlífa Inger Støjberg? Svarið við því er að þótt kratar myndu gjarna vilja losna við Inger Støjberg hangir fleira á spýt­unni. Nefni­lega minka­málið svo­nefnda. Sumir þing­menn hafa nefnt að það klúður og ákvarð­anir, sem kannski voru teknar í trássi við lög, eigi að fara fyrir lands­dóm.

Það yrði býsna erfitt fyrir Mette Frederik­sen og flokk hennar að sam­þykkja að mál Inger Støjberg fari fyrir lands­dóm en leggj­ast svo gegn því að sama gildi um minka­málið. Á sama hátt yrði það erfitt fyrir Jakob Ellemann- Jensen og Venstre að styðja að minka­málið fari fyrir lands­dóm en leggj­ast gegn því að mál Inger Støjberg fari þangað.

Nefnd skoði skýrslu nefndarinnar

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, (17.12.) urðu Sós­í­alde­mókratar og stuðn­ings­flokkar þeirra (rauða blokkin svo­nefnda) sam­mála um hug­mynd. Hug­myndin var að fá utan­að­kom­andi ráð­gjaf­ar­nefnd til að meta hvort leggja skuli mál Inger Støjberg fyrir lands­dóm. Þessi hug­mynd var eins og himna­send­ing fyrir Venstre enda lýsti for­mað­ur­inn því strax yfir að flokkur sinn styddi þessa hug­mynd.

Stjórn­mála­skýrendur dönsku blað­anna voru á einu máli um að þarna hefðu verið slegnar tvær flugur í sama högg­inu og Mette Frederik­sen og Jakob Ellemann- Jensen hefðu bæði haldið á flugna­spað­anum (orða­lag blaða­manns Politi­ken). Á meðan ráð­gjaf­ar­nefndin skoðar mál Inger Støjberg minn­ist eng­inn á lands­dóm í minka­mál­inu. Hvort það er rétt mat danskra blaða­manna er svo annað mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár