Búið að móta úttekt FAO sem ríkisstjórnin ákvað að kosta í kjölfar Samherjamálsins

Atvinnu­vega­ráðu­neytið er enn að ganga frá samn­ingum við Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (FAO) um úttekt á við­skipta­háttum útgerða, sem rík­is­stjórnin boð­aði í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins í nóv­em­ber í fyrra.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í nóv­em­ber í fyrra, þegar íslenskt sam­fé­lag var að vinna úr þeim fréttum sem þá nýlega höfðu borist af starf­semi Samherja í Namibíu í umfjöll­unum Kveiks og Stund­ar­innar, sett­ist rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir niður og kom sér saman um aðgerða­lista til þess að auka traust á íslensku atvinnu­lífi.[links]

Aðgerð­irnar voru í sjö liðum, en ein þeirra var sú að Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra myndi hafa frum­kvæði að því að Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (FAO) myndi vinna úttekt á „við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir þ. á m. í þró­un­ar­löndum.“

Á grund­velli úttekt­ar­innar átti FAO svo að vinna „til­lögur til úrbóta í sam­vinnu við aðrar alþjóð­legar stofn­anir sem vinna að heil­brigðum við­skipta­háttum, gegn spill­ingu, mútum og pen­inga­þvætti,“ sam­kvæmt því sem sagði í aðgerða­lista rík­is­stjórn­ar­innar.

Verkið verður unnið í tengslum við annað verkefni

Lítið hefur heyrst af þess­ari boð­uðu úttekt síðan þá, en í svari atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöðu máls­ins segir að búið sé að „móta verk­efnið í sam­vinnu með FAO“ og að búið sé að „ná nið­ur­stöðu með FAO varð­andi ýmis forms­at­riði í þessu sam­bandi.“

Í svar­inu segir einnig að úttektin sem Ísland hefur frum­kvæði að verði unnin í tengslum við annað verk­efni sem er þegar í gangi hjá stofn­un­inni, sem muni ein­falda stjórn­un­ar­vinnu í kringum verk­efnið. Verið sé að „ganga frá samn­ingum við FAO um verkið og kostun Íslands á því.“

Í til­kynn­ingu stjórn­valda í fyrra sagði að verk­efnið sem Kristján Þór myndi eiga frum­kvæði að myndi falla vel að hlut­verki stofn­un­ar­innar, þar sem FAO væri stærsta alþjóð­lega stofn­unin sem sinnti reglu­bundnu starfi hvað varð­aði aðgerðir til að bæta stjórn fisk­veiða og þróun sjáv­ar­út­vegs á heims­vísu. Á vett­vangi stofn­un­ar­innar hefðu þannig verið gerðir alþjóða­samn­ingar m.a. til að takast á við ólög­legar veiðar og bæta stjórn og upp­lýs­inga­gjöf með fisk­veiðum.

Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra yfirmaður hjá stofnuninni

Ísland á full­trúa í æðstu lögum FAO, en Árni Mathiesen, fyrr­ver­andi fjár­mála- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er aðstoð­ar­fram­kvæmd­ar­stjóri á fisk­veiðisviði stofn­un­ar­innar.

Árni ræddi úttekt­ina sem rík­is­stjórnin sagð­ist ætla að leggja til í sam­tali við Vísi í fyrra og sagði þá „alltaf gott“ þegar aðild­ar­þjóð­irnar hefðu frum­kvæði að upp­byggi­legum aðgerðum og að spill­ing væri einn helsti þrösk­uldur þró­unar mjög víða í heim­inum.

Spurður hvað hann teldi að úttektin tæki langan tíma sagði Árni að um það væri úti­lokað að segja. „Ég geri ekki ráð fyrir að mál­inu verði lokið á einu ári en að hvað sé rétt og hægt að gera verði ljóst á þó nokkuð skemmri tíma,“ sagði Árni Mathiesen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár