FAO vinni úttekt á viðskiptaháttum útgerða í þróunarlöndum

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra mun hafa frum­kvæði að því Alþjóða­mat­væla­stofn­unin vinni úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir í þró­un­ar­löndum.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra mun hafa frum­kvæði að því að Alþjóða­mat­væla­stofn­unin (FAO) vinni úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir, þar á meðal í þró­un­ar­löndum. Á grund­velli þeirrar úttektar mun FAO síðan vinna til­lögur til úrbóta gegn spill­ingu, mútum og pen­inga­þvætti.

Þetta er á meðal aðgerða sem rík­is­stjórnin hefur ákveðið að ráð­ast í með það fyrir augum auka traust á íslensku atvinnu­lífi.

Aukið fjármagn til skattrannsókna

Rík­is­stjórnin ætlar jafn­framt að tryggja við­bót­ar­fjár­veit­ingar til skatt­rann­sókna vegna Sam­herj­a­máls­ins. Þannig geti Skatt­rann­sókn­ar­stjóra og Rík­is­skatt­stjóra aukið við mann­afla tíma­bundið til að geta sinnt þessum verk­efnum á sem „skjótastan og far­sælastan hátt“. Þá verður einnig hugað sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á mál­inu.

[links]Jafn­framt er und­ir­bún­ingur hafin innan rík­is­stjórn­ar­innar að laga­frum­varpi um rík­ari upp­lýs­inga­skyldu hlut­falls­lega stórra fyr­ir­tækja í öllum atvinnu­rekstri sem geti haft kerf­is­læg áhrif í íslensku efna­hags­lífi. Meðal ann­ars verður höfð hlið­sjón af kröfum um upp­lýs­ingar sem gerðar eru til fyr­ir­tækja sem skráð eru í kaup­höll.

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur enn fremur óskað eftir því að við þessa vinnu verði tekið til sér­stakrar skoð­unar hvort gera þurfi enn rík­ari kröfur um gagn­sæi til stærri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja.[adspot]

Hafa undirbúið viðbrögð vegna umfjöllunar erlendis

Önnur aðgerð sem rík­is­stjórnin ætlar grípa til er að óska eftir því að nefnd sem vinnur nú að því að koma með til­lögur um bætt eft­ir­lit með fiski­veiði­auð­lind­inni skili þeim til­lögum fyrir næstu ára­mót. Þar á meðal er end­ur­skoðun á skil­grein­ingu á tengdum aðilum í sjáv­ar­út­vegi.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um eft­ir­lit Fiski­stofu frá því í jan­úar síð­ast­liðnum kemur fram að ekki verði séð að Fiski­stofa kanni hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum sé í sam­ræmi við það hámark sem er skil­greint í lögum um stjórn fisk­veiða.

Að lokum kom fram á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag að utan­rík­is­ráðu­neytið fylgist með umfjöllun um Sam­herj­a­málið erlendis og hefur und­ir­búið við­brögð vegna hugs­an­legs orð­spor­hnekkis. Hvorki utan­rík­is­ráðu­neytið, sendi­skrif­stofur né við­skipta­full­trúar hafa þó fengið margar fyr­ir­spurnir eða athuga­semdir frá stjórn­völdum ann­arra ríkja eða alþjóð­legum og svæð­is­bundnum sam­tökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár