Til skoðunar að stærri óskráð fyrirtæki skili inn rekstrarupplýsingum

For­sæt­is­ráð­herra segir að til skoð­unar sé að gera kröfu til fyr­ir­tækja, sem fara yfir vissa stærð en eru ekki skráð á hluta­bréfa­markað, að þau skili einnig inn upp­lýs­ingum árs­fjórð­ungs­lega.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að það sé til skoð­unar innan rík­is­stjórn­ar­innar að gera þá kröfu til óskráðra fyr­ir­tæki, sem fari yfir vissa stærð, að þau skili einnig inn upp­lýs­ingum árs­fjórð­ungs­lega líkt og skráðum fyr­ir­tækjum er skylt. Þetta kom fram í svari ráð­herra við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn á Alþingi í dag.

Aukið gagnsæi íslenskra stórfyrirtækja

Í svari ráð­herra kemur jafn­framt fram að Katrín telur að Sam­herj­a­málið geti svo sann­ar­lega haft áhrif á íslenskt atvinnu­líf og allar íslenskar útflutn­ings­greinar en ekki aðeins þetta eina fyr­ir­tæki og orð­spor þess. Að mati Katrínar er því vert að spyrja að því hvernig hægt sé að gera betur þegar kemur að gagn­sæi atvinnu­lífs­ins og fyr­ir­tækja.

Hún segir að eitt af því sem sé til skoð­unar um þessar mundir hjá rík­is­stjórn­inni sé aukin upp­lýs­inga­skylda stórra fyr­ir­tæki. Samkvæmt Katrínu er til skoð­unar hvort ekki sé eðli­legt að gera rík­ari kröfu til fyr­ir­tækja af til­tek­inni stærð, sem ekki eru skráð á markað, um að skila inn upp­lýs­ingum árs­fjórð­ungs­lega líkt og skráð fyr­ir­tæki á hluta­bréfa­mark­aði.

Katrín segir að Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sé einmitt með mál á sinni þing­mála­skrá þar sem breyt­ingar eru boð­aðar á þessu.

„Þetta eru hags­munir íslensk atvinnu­lífs. Það á að líta á það sem sókn­ar­færi fyrir sig að hér sé mikið gagn­sæi og skýrt reglu­verk. Líta á það sem sókn­ar­færi fremur en íþyngj­andi,“ segir Katrín.

Erfiðara að meta áhættu vegna óskráðra fyrirtækja

[links]Í nýlegri úttekt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) á íslensku efna­hags­lífi, sem birt var þann 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, kemur fram að erf­ið­ara sé að meta áhættu í íslenska efna­hag­skref­inu vegna ógang­sæi í rekstri óskráðra fyr­ir­tækja. Sér­stak­lega óskráðra fyr­ir­tæki sem geta haft mikið áhrif á allt efna­hags­kerfi Íslands fari rekstur þeirra illa. AGS vísar þar vænt­an­lega til WOW air en bág fjár­hags­staða þess fyr­ir­tækis varð ekki opin­ber fyrr en á seinni hluta síð­asta árs, þegar rekst­ur­inn var þegar kom­inn í mikið óefn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár