AGS segir að það þurfi kerfisbreytingar til að koma íslensku „vaxtarvélinni“ í gang

Íslensk stjórn­völd og vinnu­mark­aður brugð­ust hratt og rétt við þeim áföllum sem urðu í efna­hags­líf­inu í ár. Til lengri tíma þarf hins vegar að búa til nýjar atvinnu­stoðir undir íslenska efna­hags­lífið til að draga úr áhættu og tryggja hag­vöxt.

Þrátt fyrir að íslenskt efna­hags­kerfi muni taka aftur við sér á næsta ári, og að búist sé við hag­vexti þá í kjöl­far sam­dráttar í ár með til­heyr­andi minni einka­neyslu og auknu atvinnu­leysi, er íslenskur efna­hagur við­kvæmur. Viðbrögð stjórn­valda við nið­ur­sveifl­unni sem varð í ár, sér­stak­lega í ferða­þjón­ustu vegna gjald­þrots WOW air og þess að Icelandair getur ekki notað Boeing MAX 737 vél­arnar sínar, hafa mildað höggið sem hefði getað skollið á Íslandi. Þar er um að ræða aukin slaka í rík­is­fjár­málum, sem mun skila því að rík­is­sjóður verður rek­inn í halla í ár, og aðgerðir Seðla­banka Íslands til að reyna að örva kerfið, með því að lækka vexti um 1,5 pró­sentu­stig frá því í maí.

[links]Lífs­kjara­samn­ing­arnir sem und­ir­rit­aðir voru nokkrum dögum eftir að WOW air varð gjald­þrota, þar sem samið var um hóf­legar launa­hækk­anir á næstu þremur árum og teng­ingu launa­þró­unar við þjóð­ar­tekjur, voru líka lyk­il­breyta í því að takast á við breyttar aðstæður í íslensku efna­hags­lífi.

Ýmsar ytri aðstæður gætu haft nei­kvæð áhrif á Ísland án þess að landið hafi neitt með ákvarð­anir þeim tengdum að gera, til dæmis Brexit, aukin and­staða við alþjóða­sam­vinnu og við­skipta­stríð stór­velda.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) vegna úttektar á íslensku efna­hags­lífi sem birt var í dag. Sendi­nefnd frá sjóðnum, undir for­ystu Ivu Petrovu hefur verið hér­lendis und­an­farnar tvær vikur að vinna úttekt­ina og fundað með íslenskum stjórn­völdum og öðrum hag­að­ilum.

[adspot]AGS hrósar auk þess yfir­vof­andi sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, en sjóð­ur­inn hefur lengi mælt með því að Íslend­ingar fari þá leið til að tryggja betra sam­ræmi í eft­ir­liti með og betri yfir­sýn yfir íslenskt fjár­mála­kerfi.

Þarf að koma íslensku „vaxtarvélinni“ í gang

Töluvert púður fer í að benda á leiðir til að upp­færa „vaxt­ar­vél“ íslenska efna­hags­lífs­ins. AGS segir að Íslandi þurfi á fleiri sér­fræð­ingum að halda til að auka fjöl­breytni í efna­hags­líf­inu og fjölga vaxta­sprotum. Í yfir­lýs­ingu sjóðs­ins segir að þar sem Ísland sé lítið efna­hags­kerfi þá sé nauð­syn­legt fyrir landið að geta treyst á fleiri stoðir en þær fáu sem nú haldi kerf­inu uppi. Þar er vit­an­lega átt við ferða­þjón­ustu, sjáv­ar­út­veg og orku­sölu, allt geirar sem nýta nátt­úru­auð­lindir að uppi­stöðu, en byggj­ast ekki fyrst og síð­ast á hug­viti. Þessi staða geri Ísland við­kvæm­ari fyrir áföllum, líkt og sást í ár þegar loðnu­brestur og vand­ræði flug­fé­laga skil­uðu öllu kerf­inu í sam­drátt­arfasa. Þá sé erf­ið­ara að meta áhættu í litla íslenska kerf­inu þar sem gagn­sæi í rekstri óskráðra fyr­ir­tækja, sem geti haft mikið áhrif á allt efna­hags­kerfið fari rekstur þeirra illa, sé allt of lítið. Þar er aug­ljós­lega verið að vísa til WOW air, en bág fjár­hags­staða þess fyr­ir­tækis varð ekki opin­ber fyrr en á seinni hluta síð­asta árs, þegar rekst­ur­inn var þegar kom­inn í mikið óefni.

AGS leggur líka áherslu á að íslenskar nátt­úru­auð­lindir verði varð­veittar í þeim til­gangi að styðja við hefð­bundn­ari atvinnu­vegi.

Á meðal þeirra leiða sem AGS bendir á að þurfi að fara, til að kveikja aftur í vaxt­ar­mögu­leikum Íslands, eru vel skipu­lagðar kerf­is­breyt­ingar í mennta­kerf­inu, aukin áhersla á menntun kenn­ara og aukin áhersla á að hjálpa börnum inn­flytj­enda að aðlag­ast og þar með gefa þeim betra tæki­færi á að nýta hæfi­leika sína til fulls. Inn­flytj­endum til Íslands hefur fjölgað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og nú eru um 46 þús­und erlendir rík­is­borg­arar sem búa í land­inu. Fyrir örfáum árum síðan voru þeir um 20 þús­und. Þrátt fyrir sam­drátt í efna­hags­líf­inu í ár hefur þeim haldið áfram að fjölga og því fátt sem bendir til þess að um tíma­bundna aukn­ingu sé að ræða.

Áhyggjur af orðspori Íslands vegna peningaþvættis

Þá þarf Ísland að taka það alvar­lega að kom­ast sem fyrst af gráum lista Financial Action Task Force (FATF) og draga þar með úr orð­spors­á­hætt­unni sem sú vera skapar fyrir Ísland. AGS bendir á að íslensk stjórn­völd hafi tekið stór skref í að upp­færa varnir sínar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka frá því að landið fékk fall­ein­kunn hjá FATF í apríl 2018. Þær upp­færslur hafa fyrst og síð­ast verið á lagaum­hverfi og reglu­verki en enn vantar að sýna hversu vel varn­irnar virki þegar á reyni.

Þrátt fyrir að Ísland hafi verið sett á gráa list­ann í októ­ber þá hefur það ekki haft mikil áhrif á þátt­töku Íslands á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum né á greiðslur til íslenskra fyr­ir­tækja, en ljóst sé að áfram­hald­andi árvekni sé nauð­syn­leg til að tryggja að það ger­ist ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár