Starfsmenn fjármálafyrirtækja kvarta til ESA eftir hópuppsögn Arion banka

Samtök starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja telja að Arion banki hafi ekki farið eftir lögum um hóp­upp­sagnir þegar bank­inn sagði upp 102 starfs­mönnum í fyrra­haust. Slíku broti fylgi hins vegar engin við­ur­lög. Samtökin hafa sent kvörtun til ESA vegna þessa.

Arion banki sagði upp 102 manns í september.
Arion banki sagði upp 102 manns í sept­em­ber. Mynd: EPA

Samtök starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF) hafa sent kvörtun til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna brotalama á fram­kvæmd hóp­upp­sagna á Íslandi. Kvörtunin er send eftir að sam­tökin komust að þeirri nið­ur­stöðu að Arion banki hefði ekki farið að lögum um hóp­upp­sagnir þegar bank­inn sagði upp 102 starfs­mönnum í sept­em­ber 2019, meðal ann­ars með vísun í að ávöxtun eigin fjár bank­ans væri ekki nægi­lega góð.

[links]Í bréfi sem sam­tökin sendu Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barna­mála­ráð­herra, og til vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í dag segir að nið­ur­staða skoð­unar SFF hafi verið sú að Arion banki hefði ekki virt skyldu sína til sam­ráðs við trún­að­ar­menn starfs­manna með neinum raun­hæfum hætti í aðdrag­anda upp­sagn­anna og hafi þannig brotið gegn ákvæðum laga um hóp­upp­sagnir. „Þó sé jafn­framt ljóst að lögin hafi ekki að geyma nein raun­hæf rétt­ar­úr­ræði til að bregð­ast við brotum af þessum toga. Með bréfi þessu er ætlun SFF aog ASÍ að vekja athygli ráð­herra og þing­nefndar á þessum ann­mörkum sem virð­ast vera á lögum um hóp­upp­sagnir“.

SFF segir að gera þurfi braga­bót á lög­unum til að þau hafi eitt­hvað raun­veru­legt gildi, en séu ekki ein­ungis „orðin tóm“ þar sem brot á þeim séu „algjör­lega við­ur­laga­laus“.

Auk þess telja sam­tökin að íslenska ríkið kunni að hafa brotið gegn skyldum sínum til að inn­leiða ákveðna til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins um hóp­upp­sagnir og að hún hafi ekki verið rétt inn­leidd á sínum tíma. Vegna þess sé sam­ráð við stétt­ar­fé­lög við fram­kvæmd hóp­upp­sagna ófull­nægj­andi. Vegna þessa hefur SFF sent inn kvörtun til ESA.

[adspot]Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum vegna þessa segir að nið­ur­staðan geti „haft áhrif á allan íslenskan vinnu­markað og er því um gríð­ar­lega stórt hags­muna­mál að ræða.“

Spöruðu sér 1,3 milljarð á ársgrundvelli

Arion banki greindi frá því þann 26. sept­em­ber 2019 að bank­inn hefði sagt upp 102 manns. Upp­sagn­irnar höfðu legið í loft­inu í nokkurn tíma. Kjarninn greindi til að mynda frá því þremur dögum áður að búist væri við stóru hag­ræð­ing­ar­skrefi hjá bank­anum og að lækkun á rekstr­ar­kostn­aði yrði fyrst og síð­ast náð með fjölda­upp­sögnum.

Með upp­sögn­unum ætlar Arion banki að spara sér 1,3 millj­arð króna í rekstr­ar­kostnað á ári. Í tölvu­pósti sem Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, sendi til starfs­manna sama dag og til­kynnt var um upp­sagn­irnar, sagði meðal ann­ars að stjórn­endur bank­ans teldu „aðstæður í umhverfi bank­ans, eig­in­fjár­kröf­ur, skattar og harðn­andi sam­keppni, sem og háan rekstr­ar­kostn­að, vera þess eðlis að ekki sé lengur hjá því kom­ist að gera breyt­ingar sem miða að því að ein­falda starf­sem­ina. Við þurfum að aðlaga okkur að aðstæðum hverju sinn­i.“

Upp­sagn­irnar voru liður í veg­­­ferð bank­ans að ná settum mark­miðum um 50 pró­­­sent kostn­að­­­ar­hlut­­­fall og arð­­­semi eigin fjár umfram tíu pró­­­sent. Arðsemi Arion banka hefur verið langt frá því mark­miði und­an­farið og búist er við að hún hafi verið undir einu pró­senti í fyrra, en árs­reikn­ingur bank­ans verður birtur síðar í þess­ari viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár