Búist við stóru hagræðingarskrefi hjá Arion banka

Arion banki stefnir opin­ber­lega að því að minnka rekstr­ar­kostnað sinn þannig að kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans fari undir 50 pró­sent og að arð­semi geti nálg­ast mark­mið sitt um arð­semi. Búist er við því að stórt skref í þess átt verði stigið fljót­lega.

Miklar breytingar hafa orðið hjá Arion banka á undanförnum árum. Útibúaþjónustu bankans hefur meðal annars verið breytt mikið og hlutur stafrænnar þjónustu aukinn.
Miklar breyt­ingar hafa orðið hjá Arion banka á und­an­förnum árum. Úti­búa­þjón­ustu bank­ans hefur meðal ann­ars verið breytt mikið og hlutur staf­rænnar þjón­ustu auk­inn. Mynd: Arion banki

Þrálátur orðrómur er um það að umfangs­miklar upp­sagnir séu í far­vatn­inu hjá Arion banka sem kynntar verða sam­hliða miklum breyt­ingum á skipu­lagi bank­ans. Vefurinn Mannlíf.is greindi frá því í gær að allt að 80 manns yrði sagt upp í dag mánu­dag, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá bank­anum er það ekki rétt. Þegar spurt var hvort upp­sagnir væru vænt­an­legar síðar í vik­unni feng­ust þau svör að stefnu­mót­un­ar­vinna væri í gangi innan bank­ans.

[links]Það á ekki að koma neinum á óvart að til standi að fækka starfs­fólki hjá Arion banka.

Raunar hefur það legið fyrir opin­ber­lega í meira en ár að það sé stefna bank­ans að draga veru­lega úr rekstr­ar­kostn­aði, og það verður fyrst og síð­ast gert með því að fækka starfs­fólki.

Alls störf­uðu 880 manns hjá Arion banka um mitt þetta ár. Starfs­mönnum hafði þá fækkað um 50 á einu ári.

Yfirlýst markmið að auka arðsemi umtalsvert

Í aðdrag­anda þess að Arion banki var skráður á markað um mitt síð­asta ár var send út til­kynn­ing þar sem kom fram að mark­mið bank­ans yrði að vera með arð­semi eigin fjár sem væri yfir tíu pró­sent, en hún hafði verið 3,6 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018.

Uppgjör bank­ans vegna síð­asta árs olli miklum von­brigðum. Arðsemin var ein­ungis 3,7 pró­sent og hagn­aður árs­ins 7,8 millj­arðar króna. Það var 6,6 millj­örðum krónum minna en árið áður.

Stór ástæða þessa var sú að þrír stórir við­skipta­vinir bank­ans lentu í veru­legum vand­ræðum, eða fóru bein­línis á haus­inn með til­heyr­andi útlána­töpum og afskriftum á kröfum.

Þar var um að ræða United Silicon, Primera Air og loks WOW air.

Arðsemin áfram slök

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 nam hagn­aður bank­ans alls 3,1 millj­­arði króna en var fimm millj­­arðar króna á sama tíma­bili í fyrra.

[adspot]Arð­semi eigin fjár Arion banka hefur haldið áfram að vera slök. Hún var var 4,3 pró­­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2019 og ein­ungis 2,1 pró­­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Helsta ástæðan fyrir slakri arð­­semi er Valitor, dótt­­ur­­fé­lag bank­ans sem er til sölu. Tap Valitor á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var 2,8 millj­arðar króna.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem haldin var vegna þessa upp­gjörs sagði að lækk­andi rekstr­ar­kostn­aður myndi áfram verða eitt helsta áherslu­at­riði í að ná betri rekstr­ar­ár­angri. Það yrði gert með nið­ur­skurð­ar­að­gerðum og áfram­hald­andi áherslu á inn­leið­ingu staf­rænna lausna.

Ýmislegt gert en hefur ekki dugað til

Í takti við þær yfir­lýs­ingar sem gefnar voru í aðdrag­anda skrán­ingar þá hefur verið ráð­ist í ýmsar breyt­ingar hjá Arion banka.

Til að ná því mark­miði að vera með arð­semi eigin fjár sem er tíu pró­sent hefur bank­inn verið að breyta fjár­mögnun sinni með umfangs­mik­illi útgáfu víkj­andi skulda­bréfa, lækkun hluta­fjár með end­ur­kaupum á bréfum hlut­hafa, útgreiðslu arðs og auk­inni áherslu á staf­ræna þjón­ustu.

Þá vill bank­inn selja ýmsar eign­ir. Á meðal þeirra eru Valitor, Stakks­berg, sem heldur á kís­il­verk­smiðju United Silicon í Helgu­vík, og áður­nefnt TravelCo.

Allt þetta hefur þó ekki dugað til. Sú lækkun sem orðið hefur á rekstr­ar­kostn­aði hefur ein­ungis skilað kostn­að­ar­hlut­falli hans niður í 54,2 pró­sent. Yfirlýst mark­mið bank­ans er að vera með það undir 50 pró­sent í nán­ustu fram­tíð.

Það mark­mið mun ein­ungis nást með fækkun starfs­fólks.

Miklar breytingar í efsta laginu

Hingað til hafa hrær­ing­arnar að mestu verið í yfir­stjórn Arion banka. Frá byrjun mars­mán­aðar og fram í apr­íl­mánuð var ákveðið að skipta um fram­kvæmda­stjóra sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Arion banka, stjórn­ar­for­mann bank­ans og banka­stjóra hans.

Benedikt Gíslason var ráð­inn nýr banka­stjóri og hóf störf í byrjun júlí. Kjarninn hafði greint frá því rúmum tveimur mán­uðum áður en að til­kynnt var um ráðn­ingu Bene­dikts, að hann væri efstur á blaði stjórnar í starfið. Hann sagði í yfir­lýs­ingu eftir að fyrsta upp­gjörið undir hans stjórn var birt að afkoma bank­ans væri ein­fald­lega ekki nógu góð.

[adspot]Í við­tali við Mark­að­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, fyrir tæpum tveimur vikum sagði Benedikt: „Það er erfitt að horfa framan í hlut­hafa þegar arð­semin er undir áhættu­lausum vöxtum í land­inu. Á hverjum degi höfum við þá ekki verið að búa til verð­mæti fyrir hlut­hafa heldur að rýra þau. Þessu þurfum við að breyta og laga.“ Markmið hans væri ekki að Arion banki yrði stærsti bank­inn bank­inn á Íslandi heldur að hann skap­aði arð­semi fyrir hlut­hafa.

Á allra síð­ustu vikum hafa tveir fram­kvæmda­stjórar, þær Jónína S. Lár­us­dóttir sem stýrði lög­fræðisviði bank­ans og Rakel Ótt­ars­dóttir sem stýrði upp­lýs­inga­tækni­sviði hans, hætt störfum hjá Arion banka.

Almennu starfs­fólki hefur einnig verið sagt upp. Í lok maí fengu níu starfs­menn, flestir sem störf­uðu í höf­uð­stöðvum bank­ans, reisupass­ann. Þegar tekið var til­lit til þess hvernig starfs­manna­velta hafði verið nýtt til að fækka störfum þá fækk­aði störfum á öðrum árs­fjórð­ungi um 20.

Nú er búist við því að stærri skref verði stígin og að mögu­lega séu fjölda­upp­sagnir fyr­ir­hug­aðar hjá bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár