Íslensku bankarnir fá erlenda samkeppni

Fjár­tækni­fyr­ir­tækið Revolut, sem hefur 18 milljón við­skipta­vini um allan heim, hóf banka­starf­semi í tíu nýjum löndum í dag. Ísland var eitt þeirra.

Bankastarfsemi Revolut fer fram í gegnum snjallsímaforrit.
Banka­starf­semi Revolut fer fram í gegnum snjall­símafor­rit. Mynd: Revolut

Breska fjár­tækni­fyr­ir­tækið Revolut hóf banka­starf­semi á Íslandi í dag í gegnum inn­láns­stofnun á vegum þess í Litháen. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu sem send var á fjöl­miðla.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hafa inn­láns­stofn­anir á vegum fyr­ir­tæk­is­ins öðl­ast sér­hæft banka­leyfi sem gerir þeim kleift að stunda starf­semi sína á öllu Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES). Því hófst banka­starf­semi þess í tíu Evr­ópu­löndum – þar með talið Íslandi – í dag.

Revolut var stofnað í Bret­landi árið 2015 og bauð upp á milli­færslur og gjald­miðla­við­skipti í gegnum smá­forrit án þókn­ana. Árið 2020 stofn­aði bank­inn svo inn­láns­stofn­anir í Póllandi og Litháen, auk ann­arra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins. Alls eru við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins 18 millj­ónir, en þar af eru sex þús­und þeirra á Íslandi.

Fyr­ir­tækið segir að við­skipta­vinir þess hér­lendis muni nú njóta inni­stæðu­trygg­ingar upp að 100 þús­und evrum, eða um 14,7 millj­ónum króna, á ábyrgð lit­háiska rík­is­ins.

Enn er ekk­ert fyr­ir­tæki sem stundar banka­starf­semi með aðsetur hér á landi, sam­kvæmt lista Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans um starf­semi erlendra aðila. Hins vegar hefur fjöldi erlendra fyr­ir­tækja leyfi til að stunda banka­starf­semi og/eða verð­bréfa­við­skipti hér­lendis.

Seðla­bank­inn sendi ábend­ingu til Kjarnans um banka­leyfi Revolut og áréttar að ekki sé um að ræða sér­stakt banka­leyfi sem sé útgefið á Íslandi. Félagið, sem er með starfs­leyfi sem lána­stofnun í Litháen hefur hins vegar fengið heim­ild til að veita þjón­ustu sína á Íslandi.

Enn fremur sagði bank­inn að það væri rangt eða a.m.k. vill­andi að tala um Revolut sem fjár­tækni­fyr­ir­tæki, þar sem ein­ungis inn­lána­stofn­anir geta tekið á móti inn­lánum frá við­skipta­vinum hér­lendis. Þá vekur hann athygli á því að fyr­ir­tækjum utan evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins, m.a. frá Bret­landi sé ekki heim­ilt að veita þjón­ustu hér á landi nema að und­an­gengnu sam­þykki Seðla­bank­ans.

Aths rit­stjórnar kl. 14:54: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar stóð að Revolut væri eina erlenda fyr­ir­tækið sem stund­aði banka­starf­semi hér á landi. Fréttin hefur verið upp­færð í sam­ræmi við það.

Aths rit­stjórnar kl: 17:18: Fréttin hefur verið upp­færð með áben­ingu Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár