Tveir lífeyrissjóðir leggjast gegn hækkun á stjórnarlaunum í Arion banka

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi mót­mæla báðir til­lögum um að hækka laun stjórn­ar­manna í Arion banka. Verði til­lagan sam­þykkt verða grunn­laun stjórn­ar­for­manns 1,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Fækkað verður í stjórn Arion banka á aðalfundinum á morgun, úr sjö í fimm. Í staðinn stendur til að hækka laun þeirra sem eftir verða.
Fækkað verður í stjórn Arion banka á aðal­fund­inum á morgun, úr sjö í fimm. Í stað­inn stendur til að hækka laun þeirra sem eftir verða. Mynd: Arion banki

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, sem er þriðji stærsti eig­andi Arion banka, leggst gegn því að laun stjórn­ar­manna í bank­anum verði hækkuð með ákvörðun á aðal­fundi hans, sem fram fer á morgun. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, stærsti ein­staki eig­andi bank­ans, hafði áður til­kynnt að hann myndi greiða atkvæði gegn til­lög­unni.

Stjórn Arion banka hefur lagt til að mán­að­ar­laun stjórn­ar­manna verði 600 þús­und krónur á mán­uði, að mán­að­ar­laun vara­for­manns verði kr. 900 þús­und krónur og að mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns­ins, Brynj­ólfs Bjarna­sonar, verði 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Auk þess áttu stjórn­ar­menn sem búsettir eru erlendis að fá 300 þús­und krónur fyrir ferða­lög vegna hvers stjórn­ar­fundar sem þeir sækja í eigin per­sónu. Þar að auki yrði heim­ilt að greiða þeim stjórn­ar­mönnum sem sitja í und­ir­nefndum stjórnar 200 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund, en þó að hámarki 400 þús­und krónur á mán­uði. Formenn stjórn­ar­nefnda áttu að geta fengið 300 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund, en þó aldrei meira en 600 þús­und krónur á mán­uði.

[adspot]Lif­eyr­is­sjóður verzlunarmanna sendi stjórn­inni breyt­ing­ar­til­lögu fyrr í dag. Samkvæmt henni er lagt til að laun stjórn­ar­manna og nefnd­ar­manna verði óbreytt frá því sem sam­þykkt var á aðal­fundi í fyrra auk þess sem horfið verði frá því að greiða tvö­föld stjórn­ar­laun sem búsettir eru erlendis. Útlagður ferða­kostn­aður stjórn­arm­anda sem búi ann­ars­staðar en á ÍSlandi verði greiddur en þó með þeim tak­mörk­unum að hann fari aldrei yfir 300 þús­und krónur fyrir hvern stjórn­ar­fund.

Breyt­ing­ar­til­laga líf­eyr­is­sjóðs­ins er m.a. eft­ir­far­andi:

,,Lagt er til að mán­að­ar­laun stjórn­ar­manna verði kr. 490.900, mán­að­ar­laun vara­for­manns verði kr.736.200 en mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns verði kr. 981.400. Stjórn­ar­menn búsettir erlendis skulu fá end­ur­greiddan útlagðan kostnað fyrir ferða­lög vegna stjórn­ar­funda sem þeir sækja í eigin per­sónu, þó að hámarki kr. 300.000 fyrir hvern fund. Þar að auki verði heim­ilt að greiða þeim stjórn­ar­mönnum sem sitja í stjórn­ar­nefndum félags­ins að hámarki kr. 196.300 á mán­uði fyrir setu í hverri nefnd og for­mönnum stjórn­ar­nefnda kr. 255.000 á mán­uði. Stjórn­ar­laun vara­manna verði kr. 248.600 fyrir hvern set­inn fund, þó að hámarki kr. 490.900 á mán­uði, ef um fleiri en einn fund er að ræða á mán­uði."

Stjórnarmönnum fækkar um tvo

Tillagan um hækkun stjórn­ar­launa byggir á skýrslu til­nefn­ing­ar­nefndar Arion banka. Þegar liggur fyrir að það eigi að ráð­ast í nokkrar breyt­ingar á stjórn bank­ans. Þannig á að fækka stjórn­ar­mönnum úr sjö í fimm og hætta að greiða þeir stjórn­ar­mönnum sem búa erlendis tvö­falt fyrir stjórn­ar­setu. Með því yrðu laun erlendu stjórn­ar­mann­anna, sem verða tveir eftir aðal­fund­inn á morgun, 37 pró­sent lægri þrátt fyrir að fyr­ir­huguð hækkun á grunn­launum yrði að veru­leika. Stjórn­ar­laun íslensku stjórn­ar­mann­anna myndu hins vegar hækka um 22 pró­sent. Sam­an­lagt myndi kostn­aður vegna launa stjórn­ar­manna í Arion banka drag­ast saman um 27 pró­sent á næsta ári sam­kvæmt til­lög­unni, en þar skiptir eðli­lega mestu máli að stjórn­ar­mönnum verður fækkað um tvo og afnám þeirrar reglu að borga þeim stjórn­ar­mönnum sem búa erlendis tvö­falt.

Í grein­ar­gerð sem fylgir breyt­ing­ar­til­lögu Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna segir að við mat á fjár­hæð stjórn­ar­launa horfi sjóð­ur­inn meðal ann­ars til „eðli­legs umfangs og eðlis rekstrar og ábyrgðar líkt og fram kemur í hlut­hafa­stefnu LV. Í til­viki Arion banka er horft til sam­bæri­legra starfsein­inga hér­lendis og í því ljósi lagt til að stjórn­ar­laun verði óbreytt og að ekki verði gerður grein­ar­munur á fjár­hæð eftir búsetu stjórn­ar­manns.“

Gildi ætlar líka að greiða atkvæði gegn tillögunni

Fleiri eig­endur Arion banka hafa gert athuga­semdir við til­lögur stjórnar bank­ans. Þannig hefur Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem er stærsti ein­staki eig­andi bank­ans með 9,61 pró­sent eign­ar­hlut, til­kynnt að hann ætli líka að greiða atkvæði gegn til­lögu um þóknun til stjórn­ar­manna á þeim grund­velli að fjár­hæðir sem þar eru lagðar til séu hærri en það sem gengur og ger­ist.

[links]Gildi ætlar auk þess að greiða atkvæði gegn til­lögu um starfs­kjara­stefnu Arion banka. Í bókun sem sjóð­ur­inn hefur birt og hyggst leggja fram á aðal­fund­inum segir að hann telji stjórn­ina ekki hafa „með full­nægj­andi hætti rök­stutt þörf­ina og til­gang þess að nýta heim­ild til að koma á fót árang­urstengdu launa­kerfi, aukn­ingu kaup­rétta og áskrift­ar­rétt­ind­um. Laun stjórn­enda bank­ans virð­ast að mati sjóðs­ins, þegar til­lit er tekið til mögu­leika á árang­urstengdum greiðsl­um, kaup­réttum og áskrift­ar­rétt­ind­um, hærri en það sem gengur og ger­ist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyr­ir­tækjum sem starfa á íslenskum mark­að­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár