Stærsti eigandi Arion banka leggst gegn bónusum og kaupréttum innan bankans

Gildi segir að laun stjórn­enda Arion banka séu, að teknu til­liti til árang­urstengdra greiðslna, kaup­rétta og áskrift­ar­rétt­inda, hærri „en það sem gengur og ger­ist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyr­ir­tækjum.“

Stjórn Arion banka hefur gert tillögu um starfskjarastefnu fyrir bankans. Stærsti eigandi bankans er á móti þeirri stefnu.
Stjórn Arion banka hefur gert til­lögu um starfs­kjara­stefnu fyrir bank­ans. Stærsti eig­andi bank­ans er á móti þeirri stefnu. Mynd: Arion banki

Gildi líf­eyr­is­sjóður mun gera athuga­semdir við og greiða atkvæði gegn til­lögu stjórnar Arion banka um starfs­kjara­stefnu bank­ans. Sjóð­ur­inn, sem er stærsti ein­staki eig­andi Arion banka með 9,61 pró­sent eign­ar­hlut, telur að stjórnin hafi ekki „með full­nægj­andi hætti rök­stutt þörf­ina og til­gang þess að nýta heim­ild til að koma á fót árang­urstengdu launa­kerfi, aukn­ingu kaup­rétta og áskrift­ar­rétt­indum. Laun stjórn­enda bank­ans virð­ast að mati sjóðs­ins, þegar til­lit er tekið til mögu­leika á árang­urstengdum greiðslum, kaup­réttum og áskrift­ar­rétt­indum, hærri en það sem gengur og ger­ist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyr­ir­tækjum sem starfa á íslenskum mark­aði.“

Þetta kemur fram í bókun sem Gildi ætlar að leggja fram á aðal­fundi Arion banka sem haldin verður 16. mars næst­kom­andi, og sjóð­ur­inn hefur birt á vef sínum. Mik­il­vægt er að mati Gildis að ef félög ákveði að not­ast við árang­urstengd launa­kerfi sé gætt heild­ar­sam­hengis. Til dæmis að föst laun séu þá lægri sam­an­borið við félög þar sem slík kerfi eru ekki til staðar. „Þá er mik­il­vægt að slíkt kerfi hvetji ekki til óeðli­legar áhættu­töku,“ segir í bók­un­inni.

Gildi ætlar líka að greiða atkvæði gegn til­lögu um þóknun til stjórn­ar­manna á þeim grund­velli að fjár­hæðir sem þar eru lagðar til séu hærri en það sem gengur og ger­ist.

Stjórnendur geta fengið fjórðung af árslaunum

Í des­em­ber í fyrra var greint frá því að öllu fast­ráðnu starfs­­fólki Arion banka muni standa til boða að geta fengið allt að tíu pró­­sent af föstum árs­­launum sínum á árinu 2021 í kaupauka þegar árs­­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2021 liggur fyr­ir, ef þau mark­mið sem nýtt kaupauka­­kerfi til­­­greinir nást.

Þeir stjórn­­endur og það starfs­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans mun geta fengið allt að 25 pró­­sent af föstum árs­­launum í kaupauka­greiðslu, en þá í formi hluta­bréfa í bank­­anum sem verða ekki laus til ráð­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­um.

[adspot]Það fólk er með mun hærri laun en venju­­legt starfs­­fólk bank­ans. Mán­að­­ar­­laun Bene­dikts Gísla­sonar, banka­­stjóra Arion banka, voru til að mynda 4,7 millj­­ónir króna á mán­uði á árinu 2019.

Þau mark­mið sem Arion banki þarf að ná til að kaupa­auka­­kerfið fari í gang fela í sér að arð­­semi bank­ans verðir að vera hærri en vegið með­­al­­tal arð­­semi helstu keppi­­nauta bank­ans: Íslands­­­banka, Lands­­banka og Kviku. „Ná­ist þetta mark­mið ekki, verður ekki greiddur út kaup­­auki. Heild­­ar­fjár­­hæðin sem veitt verður til kaupauka­greiðslna verður þó aldrei hærri en sem nemur arð­­semi bank­ans umfram vegið með­­al­­tal arð­­semi sam­keppn­is­að­ila,“ segir í til­­kynn­ingu frá Arion banka til þeirra hluta­bréfa­­mark­aða sem bank­inn er skráður á, en hann er tví­­­skráður á Íslandi og í Sví­­þjóð.

Stjórn Arion banka hefur sam­­þykkt hið breytta kaupauka­­kerfi og telur það í fullu sam­ræmi við reglur Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins um kaupauka­greiðslur starfs­­fólks fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja og starfs­kjara­­stefnu bank­ans sem sam­­þykkt var á hlut­hafa­fundi. Áður hafði stjórn bank­ans sam­­þykkt að engar kaupauka­greiðslur yrðu greiddar út vegna árs­ins 2020.

Geta keypt bréf undir markaðsvirði

Kaup­rétt­ar­á­ætl­un­in, sem nær til allra fast­ráð­inna starfs­manna, var sam­þykkt á aðal­fundi Arion banka í mars í fyrra og mark­mið hennar er sagt vera að „sam­þætta hags­muni starfs­fólks við lang­tíma­hags­muni bank­ans.“

[links]Í febr­úar síð­ast­lið­inn var svo greint frá því að allir 628 fast­ráðnir starfs­menn Arion banka sem eiga rétt á að gerð kaup­rétt­ar­samn­ing við bank­ann hafi gert slík­an. Í samn­ingnum felst að starfs­menn­irnir geta keypt hluta­bréf í bank­anum fyrir alls 600 þús­und krónur einu sinni á ári í fimm ár. Fyrsti nýt­ing­ar­dagur er í febr­úar á næsta ári en sá síð­asti í febr­úar 2026.

Kaup­verð starfs­manna Arion banka á hlutum í bank­anum er vegið með­al­verð í við­skiptum með hluta­bréf félags­ins tíu við­skipta­daga fyrir samn­ings­dag, sem er 3. febr­úar 2021, eða 95,5 krónur hver hlut­ur. Það er 23,5 pró­sent undir núver­andi mark­aðs­gengi Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár