Minnsti útlánavöxturinn frá upphafi faraldurs

Ásókn heim­ila og fyr­ir­tækja í ný banka­lán umfram upp­greiðslur hefur dreg­ist saman á síð­ustu mán­uðum eftir að hafa auk­ist hratt árið 2020. Ný útlán banka­kerf­is­ins eru nú þau sömu og þau voru fyrir far­ald­ur­inn, en sam­setn­ing þeirra hefur breyst tölu­vert.

Ný útlán til byggingargeirans hafa tekið við sér á síðustu mánuðum.
Ný útlán til bygg­ing­ar­geirans hafa tekið við sér á síð­ustu mán­uðum. Mynd: Anton Brink

Ný útlán banka­kerf­is­ins umfram upp­greiðslur námu 14,3 millj­örðum króna í des­em­ber og hefur sú tala ekki verið jafn­lítil síðan í jan­úar 2020. Þó er sam­setn­ingin á útlán­unum tölu­vert frá­brugðin því sem hún var fyrir far­ald­ur­inn, þar sem heim­ili skuld­setja sig nú mun meira heldur en fyr­ir­tæki. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­bank­ans um banka­kerfið.

Nýjum húsnæðis- og fyrirtækjalánum fækkar

Samkvæmt töl­unum juk­ust ný nettó útlán til heim­ila um 23,6 millj­arða króna í des­em­ber. Líkt og sést á mynd hér að neðan var þetta minnsta aukn­ingin í nýjum útlánum heim­ila á árinu, en hún var mest í júní þegar skuld­setn­ing þeirra jókst um 40,2 millj­arða króna.

Hins vegar er ásókn heim­ila í banka­lán þó enn mun meiri en hún var fyrir far­ald­ur­inn, en ný útlán þeirra umfram upp­greiðslur voru um helm­ingi minni á fyrstu mán­uðum árs­ins 2020.

Hjá fyr­ir­tækjum er þetta öfugt farið, en þar byrj­aði umfang nýrra nettó útlána að drag­ast saman á seinni hluta árs 2019. Þessi sam­dráttur hélt svo áfram í kjöl­far far­ald­urs­ins, en um mitt árið 2020 voru upp­greiðslur gam­alla lána meiri en aukin skuld­setn­ing fjóra mán­uði í röð.

Á fyrstu mán­uðum árs­ins 2021 fóru svo ný fyr­ir­tækja­lán að aukast aftur, en sú þróun sner­ist svo við á haust­mán­uðum í fyrra. Frá ágúst til des­em­ber minnk­aði skuld­setn­ing fyr­ir­tækja í banka­kerf­inu um 11,3 millj­arða króna, en minnkunin nam 3,8 millj­örðum króna í des­em­ber.

Lífeyrissjóðirnir snúa aftur

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um hefur hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á íbúða­lána­mark­aðnum auk­ist sam­hliða minni ásókn í ný lán hjá bönk­unum, en útlán sjóð­anna til heim­ila juk­ust um 7,6 millj­arða króna í nóv­em­ber. Þetta gerð­ist á sama tíma og þrír sjóðir fóru að bjóða upp á óverð­tryggð hús­næð­is­lán á svip­uðum kjörum og buð­ust hjá við­skipta­bönk­unum. [adspot]

Nóvember var fyrsti mán­uð­ur­inn þar sem heild­ar­virði nýrra lána hjá líf­eyr­is­sjóð­unum var meira en upp­greiðslur frá því í maí árið 2020, þegar ásóknin í hús­næð­is­lán stórjókst hjá bönk­unum.

Teikn um aukna íbúðauppbyggingu

Þrátt fyrir að heilt yfir hafi dregið úr útlánum banka til fyr­ir­tækja má sjá merki um við­snún­ing í lán­töku í nokkrum geirum. Ný útlán til fyr­ir­tækja vegna hús­næðis- og mann­virkja­gerðar juk­ust um 3,1 millj­arð króna í des­em­ber síð­ast­liðnum, en þau voru einnig jákvæð um 2,4 millj­arða króna í nóv­em­ber. Þetta er í fyrsta skiptið sem ný útlán til hús­næð­is­upp­bygg­ingar hafa auk­ist tvo mán­uði í röð frá upp­hafi far­ald­urs­ins, en þau hafa verið afar lítil frá seinni hluta árs 2019.

Virði útlána íslensku bank­anna til bygg­ing­ar­starf­semi minnk­aði um tugi millj­arða króna í fyrra. Samkvæmt Íslands­banka er minnkunin ekki til­komin vegna þess að bank­inn hafi verið að hafna verk­efnum. Hins vegar hafi eft­ir­spurnin eftir lánum í bygg­ing­ar­geir­anum minnkað, auk þess sem upp­greiðsla bygg­ing­ar­verk­taka sem hafa tekið slík lán orðið hrað­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár