Bankarnir hafa stórminnkað útlán til byggingarstarfsemi

Virði útlána íslensku banka til bygg­ing­ar­starf­semi hefur minnkað um tugi millj­arða króna á síð­ustu mán­uðum. Nettó útlán bank­anna í þessum flokki hafa verið nei­kvæð átta árs­fjórð­unga í röð.

Mikill samdráttur hefur orðið á lánveitingum til byggingarframkvæmda.
Mikill sam­dráttur hefur orðið á lán­veit­ingum til bygg­ing­ar­fram­kvæmda. Mynd: Anton Brink

Útistand­andi banka­lán vegna bygg­ing­ar­starf­semi eða mann­virkja­gerðar hjá íslensku bönk­unum námu 155 millj­örðum króna í sept­em­ber, en þau hafa minnkað um 27 millj­arða króna frá byrjun síð­asta árs.

Bank­arnir drógu allir úr nýjum lánum í bygg­ing­ar­starf­semi á haust­mán­uðum 2019, en síðan þá hefur virði þeirra að frá­dregnum upp­greiðslum á gömlum lánum verið nei­kvætt átta árs­fjórð­unga í röð. Þetta kemur fram í hag­tölum Seðla­bank­ans um stöðu banka­kerf­is­ins.

Minnkunin mest hjá Landsbankanum

Lands­bank­inn, Íslands­banki og Kvika greina allir frá lána­stöðu sinni til bygg­ing­ar­starf­semi í árs­reikn­ingum þeirra, en sam­kvæmt því var hún 20 millj­örðum minni í lok síð­asta árs. Þar er minnkunin mest hjá Lands­bank­anum, en virði útlána í flokknum þar minnk­aði um 16 millj­arða króna á milli ára. Minnkunin var aftur á móti nokkuð jöfn hjá Íslands­banka og Kviku, en báðir bank­arnir minnk­uðu útlánin sín til bygg­ing­ar­fram­kvæmda um 2 millj­arða króna hvor.

Sams konar flokkun er ekki að finna í árs­reikn­ingum Arion banka, en þar eru útlán til fast­eigna­fé­laga og bygg­ing­ar­starf­semi sett í einn flokk. Virði útlána í þessum flokki minnk­aði líka á síð­asta ári um tvo millj­arða.

Drógu úr nýjum útlánum 2019

Ef ný útlán bank­anna að frá­dregnum upp­greiðslum til bygg­ing­ar­starf­semi eru skoðuð eftir árs­fjórð­ungum sést að mikil breyt­ing átti sér stað á þriðja fjórð­ungi árs­ins 2019. Þetta má sjá á mynd­inni hér að ofan, en sam­kvæmt henni hafa ný útlán hjá bönk­unum nú verið nei­kvæð í átta árs­fjórð­unga sam­fleytt.

Í við­tali við Frétta­blaðið í síð­ustu viku sagði Lands­bank­inn að mikil sala íbúða og marg­falt meiri eft­ir­spurn fyrstu kaup­enda gerði það að verkum að verk­takar gátu selt feliri íbúðir og þannig losað um fé til að halda áfram upp­bygg­ingu, sem bank­inn hafi stutt með lán­veit­ingum. Bankinn sagð­ist hafa þjónað þessum geira vel og muni áfram lána traustum verk­tökum í góð bygg­ing­ar­verk­efni. Sömu­leiðis sögð­ust Íslands­banki og Arion banki vera jákvæð í garð slíkrar lán­veit­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár