Íslandsbanka gert að bæta upplýsingagjöf um neytendalán

Upp­lýs­inga­gjöf Íslands­banka þegar kemur að neyt­enda­lánum er ófull­nægj­andi að mati Neyt­enda­stofu. Bankanum eru gefnar fjórar vikur til að bregð­ast við athuga­semdum stofn­un­ar­innar, ef ekki megi hann búast við sektum.

Íslands­banki braut gegn lögum um neyt­enda­lán með ófull­nægj­andi upp­lýs­inga­gjöf í stöðl­uðu eyðu­blaði með neyt­enda­láni og í lánssamn­ingi til neyt­enda. Neyt­enda­stofa hefur veitt Íslands­banka fjög­urra vikna frest til að koma málum í rétt horf en verði það ekki gert má bank­inn búast við sektum.

Þetta kemur fram í ákvörðun Neyt­enda­stofu frá 26. nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Ófullnægjandi upplýsingagjöf

Neyt­enda­stofa hóf athugun á upp­lýs­inga­gjöf Íslands­banka í vor en sam­bæri­legt erindi var sent á aðra banka og neyt­enda­lán­veit­endur. Enn sem komið er hefur nið­ur­staða í til­fellum er varða aðra lán­veit­endur ekki verið birt.

Skoðunin fólst í því að yfir­fara hvort ann­ars vegar staðlað eyðu­blað sem Íslands­banki afhendir neyt­endum fyrir samn­ings­gerð og hins vegar láns­samn­ingur væru í sam­ræmi við lög. Nið­ur­staða Neyt­enda­stofu var að upp­lýs­inga­gjöfin væri ófull­nægj­andi. [adspot]

Neyt­enda­stofa gerði meðal ann­ars athuga­semdir við ófull­nægj­andi upp­lýs­ingar varð­andi breyt­ingu á vöxtum, varð­andi lán í appi og um árlega hlut­falls­tölu kostn­aðar. Einnig þótti upp­lýs­inga­gjöf um kostnað við notkun greiðslu­leiða ekki full­nægj­andi en þar var látið nægja að vísa á verð­skrá á heima­síðu bank­ans. Hið sama gilti um kostnað vegna van­skila.

Íslands­banki hefur nú þegar gert breyt­ingar á þeim atriðum sem Neyt­enda­stofu gerði athuga­semdir fyrir utan þá athuga­semd að bæta þyrfti upp­lýs­ingar um hvaða þættir gætu haft áhrif á vaxta­breyt­ingar.

Féllst ekki á að gera breytingar á upplýsingum um útlánsvexti

Í bréfi Neyt­enda­stofu til Íslands­banki segir að stofn­unin telji að upplýsinga­gjöf Íslands­banka í stöðluðum upplýsingum um að vextir og breyt­ingar á þeim taki meðal ann­ars mið af „og/eða öðrum ófyr­irséðum kostn­aði“ geti talist ófull­nægj­andi upplýsingar um skil­yrði fyrir breyt­ingu á útlánsvöxtum.

Í svari Íslands­banka var ekki fall­ist á þessa athuga­semd Neyt­enda­stofu og vísaði bank­inn til þess að þetta væri við­leitni til þess að veita neyt­endum upplýsingar með sem ítar­leg­ustum og skýrustum hætti um hvaða þættir geti mögulega haft áhrif á vaxta­breyt­ingar. Óhjákvæmi­legt er að mati bank­ans að ófyr­irséðir þættir geti mögulega haft áhrif á vexti.

Að mati Neyt­enda­stofu getur til­vísun í ófyr­i­s­éðan kostnað aftur á móti ekki talist full­nægj­andi upplýsingar um skil­yrði fyrir breyt­ingu á útlánsvöxtum og tryggi ekki gagn­sæi eða að neyt­endum sé gert kleift að átta sig á því á hvaða grund­velli vaxta­breyt­ingar byggj­ast. Auk þess telur stofn­unin að upp­taln­ing á þáttum sem geta leitt til breyt­inga á útlánsvöxtum þjóni takmörkuðum til­gangi þegar til­greint er að annar ófyr­irséður kostn­aður geti einnig leitt til breyt­inga á útlánsvöxtum. 

Fjórar vikur til að kippa þessu í liðinn

Neyt­enda­stofa beinir því þeim fyr­ir­mælum til Íslands­banka að koma þessum upp­lýs­ingum í við­un­andi horf. Auk þess gerir stofn­unin kröfu um að bank­inn geri við­eig­andi umbætur á upp­lýs­ingum í stöðl­uðu eyðu­blaði og láns­samn­ingi innan Íslands­banki við Haga­smára í Kópavogi. Geri bank­inn það ekki innan fjög­urra vikna er við­búið að Neyt­enda­stofa leggi sektir á bank­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár