Fjármálaráðherra vill taka umræðu um sameiningu banka

Bjarni Bene­dikts­son vill hefja sölu­ferli Íslands­banka á næstu vikum. Banka­sýsla rík­is­ins hefur gert minn­is­blað þar sem lagt er til að bank­inn verði annað hvort skráður á markað eða seldur á upp­boði.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir vert að taka umræðu um það hvort rök séu fyrir því að sam­eina banka á Íslandi. Sem stendur eru þrír stórir við­skipta­bankar, tveir af þeim í eigu rík­is­ins, í kerf­inu og einn minni banki, Kvika.

Bjarni sagði í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi að það sé spurn­ing hversu raun­hæft það sé að treysta á þriggja banka sam­keppni. „Það hafa komið fram sjón­ar­mið um að við ættum að skoða sam­ein­ingu á bönk­unum, sem flestir mundu telja í dag að væri and­stætt sam­keppn­is­lög­unum, en við höfum enn ekki stigið það skref. Og í augna­blik­inu erum við að ein­blína á að losa um eign­ar­hald rík­is­ins og hitt verður áfram í skoðun[...]En ég er vel til í að taka þátt í umræðu um það hvort það séu rök fyrir því að stærri ein­ing geti mögu­lega skilað meiri hag­kvæmni.“

Vill hefja söluferlið á Íslandsbanka

Hann ræddi líka mögu­lega sölu á rík­is­bönk­unum ,en ríkið á bæði Lands­bank­ann og Íslands­banka. Heimild er í fjár­lögum til að selja allt hlutafé í Íslands­banka og allt að 34 pró­sent hlut í Lands­bank­anum. Bjarni sagð­ist von­ast til þess að salan á Íslands­banka gæti haf­ist á næstu vikum.

Það verður gert á grund­velli til­lögu frá Banka­sýslu rík­is­ins, sem hefur það hlut­verk að halda á eign rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Greint var frá því í byrjun mán­aðar að í nýlegu minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar væri lagt til að annað hvort ætti að selja að minnsta kosti 25 pró­sent hlut í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði og skrá þau bréf tví­hliða á mark­að, eða að selja allt að öllu hlutafé í bank­anum með upp­boðs­leið þar sem önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki eða sjóðir geti gert til­boð í hann.

Sam­an­lagt eigið fé bank­anna tveggja í dag er um 417 millj­­arðar króna. Rík­­is­­bank­­arnir greiddu eig­endum sínum 207 millj­­arða króna í arð á árunum 2013-2018.

Í Hvít­­­bók um fram­­­tíð­­­ar­­­sýn fyrir fjár­­­­­mála­­­kerf­ið, sem birt var í des­em­ber í fyrra, var fjallað ítar­­­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­­­is­­­bönk­­­un­um, Lands­­­bank­­­anum og Íslands­­­­­banka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­­­ur­­­skipu­­­leggja eign­­­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­­­ar­hald verði hluti af fjár­­­­­mála­­­kerf­inu til fram­­­tíð­­­ar.

Þá var einnig lagt til að það verði skoðað gaum­­­gæfi­­­lega hvernig megi efla sam­­­starf bank­anna á sviði inn­­­viða í fjár­­­­­mála­­­kerf­inu, til að auka hag­ræð­ingu í banka­­­kerf­inu og bæta þannig kjör til neyt­enda.

Minni græðgi og spilling ef ríkið á

Alls eru 61,2 pró­­sent lands­­manna jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka. Fjórð­ungur þjóð­­ar­inn­­ar, 25,2 pró­­sent, hefur enga fast­­mót­aða skoðun á slíku eign­­ar­haldi og ein­ungis 13,5 pró­­sent Íslend­inga eru nei­­kvæðir gagn­vart slíku eign­­ar­haldi.

Þetta er meðal þess sem kom fram í rann­­sókn sem Gallup vann fyrir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið og birt­ist með Hvít­­bók­inni. Mark­mið könn­un­­ar­innar var að skoða ítar­­lega traust til banka­­kerf­is­ins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir van­­trausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af land­inu öllu. Þátt­­töku­hlut­­fall var 54,5 pró­­sent.

Þegar þeir sem eru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka voru spurðir af hverju sögðu 24,4 pró­­sent þeirra, eða tæp­­lega fjórð­ung­­ur, að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili. Fimmt­ungur sagði að helsta ástæðan væri öryggi og/eða traust og 18,3 pró­­sent vegna þess að arð­­ur­inn færi þá til almenn­ings. Þá sögðu 15,7 pró­­sent að helsta ástæða þess að þeir væru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka vera þá að það þýddi að minni líkur væru á því að hlut­irnir myndu enda illa og að spill­ing og græðgi yrði minni.

Þeir sem voru nei­­kvæðir gagn­vart því að ríkið væri eig­andi við­­skipta­­banka töldu það ekki vera hlut­verk rík­­is­ins né að það væri hæft til þess að eiga við­­skipta­­banka. Þá væri hætta á spill­ingu og eign­­ar­hald á við­­skipta­­banka væri þar að auki áhætt­u­­samt fyrir rík­­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár