Stefán tekur tímabundið við sem bankastjóri Arion banka

Fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Arion banka tekur tíma­bundið við starfi banka­stjóra frá 1. maí næst­kom­andi, þegar Hösk­uldur Ólafsson lætur af störfum.

Stefán Pétursson.
Stefán Pét­urs­son. Mynd: Arion banki

Stefán Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Arion banka, mun taka tíma­bundið við sem banka­stjóri bank­ans frá 1. maí næst­kom­andi, þegar Hösk­uldur Ólafsson lætur af störfum eftir níu ára starf. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka til Kaup­hallar Íslands.

Þar segir einnig að und­ir­bún­ingur að ráðn­ingu nýs banka­stjóra sé haf­inn. Stefán mun gegna starf­inu þar til að slíkur verður ráð­inn.

Miklar hrær­ingar hafa verið innan Arion banka und­an­farnar vikur og mán­uði. Hösk­uld­urtil­kynnti skyndi­lega að hann væri að hætta 12. apríl síð­ast­lið­inn. Hösk­uldur hefur neitað því að hann hafi verið rek­inn eða að það hafi verið þrýst á hann að hætta. Arion banki hefur verið í sviðs­ljós­inu vegna þess að þrír stórir við­skipta­vinir sem bank­inn hafði lánað fé höfðu ratað í þrot á skömmum tíma með til­heyr­andi útlána­töp­um. Um er að ræða United Sil­icon, Pri­mera Air og WOW air.

Í vik­unni áður en Hösk­uldur til­kynnti um afsögn sína ákvað Kaup­þing ehf., stærsti eig­andi bank­ans, að selja tíu pró­sent hlut í honum í lok­uðu útboði. Stoð­ir, sem einu sinni hétu FL Group, keyptu stóran hluta af því hlutafé auk þess sem Íslands­banki keypti umtals­verðan hlut fyrir við­skipta­vini sína í fram­virkum samn­ing­um.

Til við­bótar við þessi tíu pró­sent seldi Kaup­þing ehf., félag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús bank­ans sem féll með látum í októ­ber 2008, einnig fimm pró­sent hlut til vog­un­ar­sjóðs­ins Taconic Capi­tal á 6,5 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár