Varnarlína dregin hjá þremur stærstu bönkunum

Takmörk verða sett á fjár­fest­ing­ar­starf­semi Íslands­banka, Lands­bank­ans og Arion banka, verði nýtt frum­varp fjár­mála­ráð­herra sam­þykkt.

Bankarnir þrír gætu þurft að sæta nýjum reglum um fjárfestingarstarfsemi
Bank­arnir þrír gætu þurft að sæta nýjum reglum um fjár­fest­ing­ar­starf­semi Mynd: Samsett

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem myndi tak­marka stöðu­töku fjár­mála­gern­inga hjá kerf­is­lega mik­il­vægum bönkum þannig að eig­in­fjár­þörf vegna gern­ing­anna myndi ekki ná yfir 15 pró­sentum af eigin fé bank­ans.

Varnarlínan

Samkvæmt frum­varp­inu er tak­mörk­un­unum ætlað að vera svokölluð varn­ar­lína til að skýla inni­stæðu­eig­endum stóru bank­anna og rík­is­sjóði fyrir fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi, sem er áhættu­sam­ari en önnur starf­semi þeirra.

Varn­ar­línan felur í sér að beinar og óbeinar stöður bank­anna í fjár­mála­gern­ingum megi ekki krefj­ast meira eigin fé en því sem nemur 15 pró­sentum af eig­in­fjár­grunni þeirra. Búist er við því að áhætta við­skipta­vina bank­anna minnki með slíkri varn­ar­línu, en frum­varpið bætir þó við að hún gæti dregið úr stærð­ar­hag­kvæmni og þjón­ustu­fram­boði þeirra.

Ekki er þó víst hvort frum­varpið muni hafa mikil áhrif á starf­semi bank­anna, þar sem umrætt hlut­fall var langt undir 15 pró­senta hámark­inu í fyrra. Í lok árs 2019 var stöðu­töku­hlut­fall bank­anna þriggja um 4,35 pró­sent, og hafði það lækkað úr 4,85 pró­sentum ára­mótin á undan.

Starfshópar, skýrslur og nefndir

Frum­varpið er afrakstur rúm­lega þriggja ára ferlis sem Benedikt Jóhann­es­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra hóf með skipun starfs­hóps um aðskilnað við­skipta- og fjár­fest­ing­ar­banka í mars árið 2017.

[links]Meðal til­lagna starfs­hóps­ins var að fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi yrði heim­iluð innan alhliða banka að skil­greindum mörkum. Þessar til­lögur voru svo betur útli­staðar í nefnd sem Bjarni skip­aði í jan­úar 2018, en hún lagði til að eig­in­fjár­þörf fjár­mála­gern­inga á meðal þeirra banka sem þykja kerf­is­lega mik­il­vægir, þ.e. Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, mætti ekki vera umfram 10-15% af eig­in­fjár­grunni þeirra. Seinna sama ár var tekið undir þessa til­lögu í hvít­bók um fram­tíð fjár­mála­kerf­is­ins.

Í kjöl­far útgáfu hvít­bók­ar­innar skip­aði Bjarni svo enn annan starfs­hóp til þess að vinna að frum­varp­inu, en í honum voru tveir full­trúar frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, ásamt tveimur full­trúum frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og einum full­trúa frá Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár