Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið lítur dagsins ljós

Gott reglu­verk og öfl­ugt eft­ir­lit, hag­kvæmni í banka­rekstri og traust eign­ar­hald fjár­mála­fyr­ir­tækja eru þær þrjár meg­in­stoðir sem fram­tíð­ar­sýn íslensks fjár­mála­kerfis þarf að mót­ast af.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Gott reglu­verk og öfl­ugt eft­ir­lit, hag­kvæmni í banka­rekstri og traust eign­ar­hald fjár­mála­fyr­ir­tækja eru þær þrjár meg­in­stoðir sem fram­tíð­ar­sýn íslensks fjár­mála­kerfis þarf að mót­ast af. Þetta er nið­ur­staða starfs­hóps sem skip­aður var í febr­úar til að vinna hvít­bók um fjár­mála­kerfið en hóp­ur­inn hefur lokið störfum og skilað skýrslu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

[links]Frá þessu er greint í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Mark­miðið með skipun starfs­hóps­ins var að skapa traustan grund­völl fyrir umræðu, stefnu­mörkun og ákvarð­ana­töku um mál­efni er varða fjár­mála­kerfið, fram­tíð­ar­gerð þess og þróun. Mun fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra óska eftir því að efnt verði til umræðu á Alþingi um efni skýrsl­unnar í upp­hafi vor­þings, auk þess sem hún verður tekin til umfjöll­unar í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Einnig verður hvít­bókin birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda og umsagna óskað um efni hennar. Í kjöl­farið munu stjórn­völd vinna að til­lögum um breyt­ingar.

Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins og hæsta­rétt­ar­lög­maður er for­maður hóps­ins, en auk hans sitja í honum Guðrún Ögmunds­dóttir, for­stöðu­maður, laus­fjár­á­hætta, fjár­mála­fyr­ir­tæki, á fjár­mála­stöð­ug­leika­sviði Seðla­banka Íslands, Guðjón Rún­ars­son, lög­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja og Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð. Sylvía K. Ólafs­dóttir, for­stöðu­maður hjá Icelandair var einnig skipuð í hóp­inn og starf­aði með honum fram á haust.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að í hvít­bók­inni sé fjallað um þau stakka­skipti sem orðið hafa á reglu­verki um fjár­mála­kerfi heims­ins frá því alþjóð­lega banka­kreppan reið yfir. Það birt­ist meðal ann­ars í alþjóð­legum reglum sem inn­leiddar hafa verið í svip­aðri mynd hér á landi og í flestum þró­uðum ríkjum heims.

„Dregið hefur veru­lega úr áhættu í íslenska banka­kerf­inu, bankar eru betur í stakk búnir að takast á við áföll, eft­ir­lit er sterkara og við­bragðs­á­ætlun hefur verið mótuð. Leggur starfs­hóp­ur­inn áherslu á að ákvörðun verði tekin um að draga varn­ar­línu vegna fjár­fest­inga­banka­starf­semi við­skipta­banka og að komið verði á fót mið­lægum skulda­grunni sem nýtt­ist stjórn­völdum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum við að afla betri upp­lýs­inga um skuld­setn­ingu heim­ila og fyr­ir­tækja. Einnig er bent á að virk sam­keppni og öfl­ugt aðhald við­skipta­vina sé lyk­il­for­senda þess að hag­ræð­ing skili sér til neyt­enda og lít­illa fyr­ir­tækja. Þessir þættir séu mik­il­vægir til þess að traust bygg­ist upp að nýju á íslenska fjár­mála­kerf­inu,“ segir í frétt­inni.

Í hvít­bók­inni er bent á að fjár­mála­þjón­usta á sann­gjörnum kjörum sé mik­il­vægt hags­muna­mál heim­ila og fyr­ir­tækja en í könnun sem gerð var fyrir starfs­hóp­inn nefndu svar­endur lægri vexti og betri kjör oft­ast, þegar spurt var hvaða breyt­ingar væru helst til þess fallnar að auka traust til banka­kerf­is­ins. Í þessu sam­hengi dregur hóp­ur­inn fram mik­il­vægi þess að gera grein­ar­mun á vaxta­stigi og vaxta­mun. Háir útlána­vextir end­ur­spegla að nokkru leyti háa stýri­vexti sem eru hluti af ytra umhverfi bank­anna en skil­virkni í banka­rekstri í vaxta­mun og þjón­ustu­gjöldum.

Í skýrsl­unni kemur fram að smæð mark­að­ar­ins, háir skattar og tölu­vert miklar eig­in­fjár­kröfur valdi álagi sem hefur verið nefnt „Íslands­á­lag“. Mark­að­inn sé erfitt að stækka án auk­innar áhættu eða með því að breyta gjald­mið­ils­fyr­ir­komu­lagi og eig­in­fjár­kröfur ráð­ist af mati á ýmis­konar áhættu. Því sé erfitt að draga úr þeim kostn­aði til skamms tíma litið. Hins vegar sé hægt að draga úr rekstr­ar­kostn­aði með auknu sam­starfi um rekstur fjár­mála­inn­viða og lækkun sér­tækra skatta. Slíkar aðgerðir séu í höndum stjórn­valda og bank­anna sjálfra en virk sam­keppni og neyt­enda­vernd auki líkur á að ábati hag­ræð­ingar skili sér til neyt­enda.

Í hvít­bók­inni er vikið að breyt­ingum á eign­ar­haldi rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem munu hafa tölu­verð áhrif á fram­tíð fjár­mála­kerf­is­ins. Fram kemur að til staðar sé styrk umgjörð reglu­verks og eft­ir­lit miði að því að tryggja heil­brigt eign­ar­hald með kröfum til virkra eig­enda og tak­mörk­unum á áhrifum eig­enda. Tekið er fram að rök séu fyrir því að dregið verði úr víð­tæku eign­ar­haldi rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum til þess að draga úr áhættu, fórn­ar­kostn­aði og nei­kvæðum sam­keppn­is­á­hrifum. Í aðdrag­anda sölu bank­anna sé ástæða til að setja í for­gang lækkun sér­tækra skatta og lög­fest­ingu varn­ar­línu. Þá sé mik­il­vægt að stjórn­völd hugsi heild­stætt um fram­tíð­ar­eign­ar­hald þar sem fjöl­breytt eign­ar­hald sé til þess fallið að ná sátt og draga úr áhættu.

Kjarninn mun fjalla nánar um hvít­bók­ina í ítar­legri frétta­skýr­ingu í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár