Horft til þess að nýta skráðan markað til að selja hluti í ríkisbönkunum

Í Hvítbók stjórn­valda um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið kemur fram að van­traust á fjár­mála­kerf­inu sé enn „djúp­stætt“. Langan tíma muni taka að ná upp trausti á því á nýjan leik.

Í Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið er fjallað ítar­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­is­bönk­unum, Lands­bank­anum og Íslands­banka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­ar­hald verði hluti af fjár­mála­kerf­inu til fram­tíðar.

Þá er einnig lagt til að það verði skoðað gaum­gæfi­lega hvernig megi efla sam­starf bank­anna á sviði inn­viða í fjár­mála­kerf­inu, til að auka hag­ræð­ingu í banka­kerf­inu og bæta þannig kjör til neyt­enda.

Í starfs­hópnum sem vanna að Hvít­bók­inni voru Lárus L. Blöndal, for­maður, Guðjón Rún­ars­son, Guðrún Ögmunds­dóttir, Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir og Sylvía K. Ólafs­dóttir, en hún hætti í starfs­hópnum í sept­em­ber 2018.

Fram kemur í Hvít­bók­inni að langt sé í það, að almenn­ingur hafi traust á fjár­mála­kerf­inu, sé mið tekið af könn­unum sem gerðar voru fyrir starfs­hóp­inn í tengslum við vinnu Hvít­bók­ar­innar. Hrun fjár­mála­kerf­is­ins er enn ofar­lega í huga fólks og end­ur­spegl­ast það í við­horfum fólks til bank­anna.

Aukin hagkvæmni möguleg

Nefnt er í Hvít­bók­inni að sam­ein­ing banka til að ná fram meiri hag­kvæmni og skil­virkni sé ekki endi­lega besta leiðin til þess, heldur frekar ætti að horfa til þess að bæta inn­við­ina í kerf­inu. Þrátt fyrir að sam­ein­ing sé lík­leg til að auka hag­kvæmni, þá hangi meira á spýt­unni.

T.d. með sam­rekstri á sér­stökum gagna­grunni yfir skuldir ein­stak­linga og fyr­ir­tækja, sem yrði óper­sónu­grein­an­legur, þá megi ná fram hag­kvæmni.

Er þetta meðal ann­ars talið geta aukið öryggi í fjár­mála­kerf­inu og stuðlað að neyt­enda­vænni fjár­mála­starf­semi.

Orðrétt segir meðal ann­ars: „Efast má um að það sé skyn­sam­legt að ráð­ast í sam­ein­ingar eða upp­skipt­ingu á starf­semi Íslands­banka og Lands­bank­ans fyrir sölu ríkis á eign­ar­hlutum sínum. Erfitt er að sjá rök fyrir sam­ein­ingu, inn­byrðis þeirra á milli eða við önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki. Ekki eru talin vera rök fyrir fullum aðskiln­aði milli við­skipta­banka- og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi hjá bönk­unum. Þeir eru báðir heima­mið­aðir í allri starf­semi sinni, með sterk eig­in­fjár­hlut­föll og lítið vægi fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi í rekstr­inum. Hvað mögu­legar aðrar rekstr­ar­umbætur áhrærir er nauð­syn­legt að slíkar breyt­ingar grund­vall­ist á fram­tíð­ar­sýn um rekst­ur­inn. Það er á for­ræði bank­anna sjálfra og eig­enda þeirra á hverjum tíma að huga stöðugt að hag­ræð­ingu í rekstri og að tryggja sem besta fjár­magns­skipan. Ekki eru rök fyrir því að fresta sölu­ferli til að fara í sér­stakar rekstr­ar­umbætur umfram þær sem gerðar hafa verið á umliðnum árum og eru í gangi. Við sölu munu síðan nýir eig­endur sem taka við kefl­inu fylgja eftir eigin áherslum.“

Tvískráning góð leið?

Fjallað er ítar­lega um þær leiðir sem í boði eru, þegar kemur að sölu á eign­ar­hlutum í fjár­mála­kerf­inu, og hvernig þær geti náð fram mark­miðum stjórn­valda um gott og heil­brigt fjár­mála­kerfi.

Fjallað er meðal ann­ars um þá leið að skrá bank­anna á markað, og selja þá með þeim hætti. Sú leið var farin í til­felli Arion banka og er meðal ann­ars vitnað til reynsl­unnar af henni í Hvít­bók­inni. Þar segir meðal ann­ars, að kaup­hallir á Norð­ur­lönd­unum séu opnar fyrir alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum og að það geti verið mikið unnið með því að fá trausta alþjóð­lega fag­fjár­festa til að koma að eign­ar­haldi á íslensku fjár­mála­kerfi.

Ríkið á Íslands­banka 100 pró­sent og Lands­bank­ann rúm­lega 98 pró­sent. Verði farin sú leið að skrá bank­anna á markað, t.d. með tví­skrán­ingu, er lík­legt að horft verði til þess að skrá bank­anna á Íslandi og síðan í ein­hverju Norð­ur­land­anna. Arion banki er skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð, og má því segja að komin sé ákveðin fyr­ir­mynd af því hvernig megi vinna að skrán­ing­unni.

Mikil verð­mæti eru í eign­ar­hlutum rík­is­ins í rík­is­bönk­unum tveimur, en sam­an­lagt eigið fé þeirra er um 450 millj­arðar króna.

Gagnsæi og heiðarleiki

Mikil áhersla er lögð á það í Hvít­bók­inni, að vandað verði til verka við sölu á eign­ar­hlutum í bönk­unum, og áhersla lögð á heið­ar­lega við­skipta­hætti og gagn­sæi. Er ekki síst vitnað til sög­unnar í þeim efnum, og hvernig staðan var í bönk­unum fyrir hrun þeirra, þegar stærstu lán­takar bank­anna voru einnig stærstu eig­endur þeirra.

Í Hvít­bók­inni er sagt að mikið geti verið unnið með því, að fá nor­rænan banka til að kaupa Íslands­banka, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, en ljóst sé að gera þurfi raun­hæfar vænt­ingar til þess að það geti gengið eftir.

„Það er hafið yfir allan vafa að gagn­sæi um eign­ar­hald fjár­mála­fyr­ir­tækja er mjög mik­il­vægt. Þar skiptir mestu að eft­ir­lits­að­ilar fái glögga yfir­sýn yfir eign­ar­hald allra þeirra sem fara með ráð­andi hlut í við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tæki. Fjár­mála­eft­ir­litið á Íslandi hefur þær heim­ildir sem þarf til að ná slíkri yfir­sýn. Gagnsæi eign­ar­halds er einnig mik­il­vægt fyrir þá sem stunda við­skipti við fjár­mála­fyr­ir­tæki, sér­stak­lega minni fjár­festa, lán­veit­endur og lán­taka. Það að hægt sé að bera kennsl á raun­veru­lega eig­endur og að gagn­sæi ríki um við­skipti fjár­mála­fyr­ir­tækis við aðila sem gætu verið tengdir stuðlar að auknu trausti við­skipta­vina og eflir trú­verð­ug­leika fjár­mála­fyr­ir­tækis. Opinber birt­ing upp­lýs­inga um raun­veru­lega eig­endur getur einnig leitt til betri stjórn­ar­hátta og við­skiptasið­ferðis. Almenn­ingur hefur því hags­muni af því að vita hverjir séu eig­endur fyr­ir­tækja sem hefur verið treyst til að varð­veita fjár­muni í formi inn­stæðna,“ segir í Hvít­bók­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár